Morgunblaðið - 08.05.2019, Side 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Krossadalur, Tálknafjarðarhreppur, 0,21% ehl., fnr. 212-4318, þingl.
eig. Sveinbjörn Sverrisson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á
Norðurlandi vestra, mánudaginn 13. maí nk. kl. 10:30.
Miðbær, Vesturbyggð, 0,0128% ehl., fnr. 212-3347, þingl. eig. Melkorka
Marsibil Felixdóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi
vestra, mánudaginn 13. maí nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
6. maí 2019
Tilkynningar
Opið hús / kynningafundur
Opið hús / kynningafundur vegna fyrirhugaðra breytinga
! "
# !$%
Breytingin felst í að 7 lóðum fyrir einbýlishús við Fagralund
er breytt í 12 lóðir fyrir rað- og parhús.
Breyting á Akralundi 8, 10, 12 og 14 felst í að heimila
að í hverju húsi má vera 4-6 íbúðir í stað fjögurra.
Eftir kynningu á ofangreindum skipulagsbreytingum verða
!
ofangreindar skipulagsbreytingar mun frestur til að gera
"
#
Sviðsstjóri skipulags-
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Foreldramorgnar kl. 9.30-
11.30, allir velkomnir. Söngstund kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15.
Bókaspjall með Hrafni kl.15.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl.13 til
16. Stólaleikfimi með Öldu Maríu íþróttafræðingi kl.13.30. Ljóðalestur,
spjall, handavinna og spil. Kaffi og með því á eftir í boði kirkjunnar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Árskógar 4 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-16.
Bridge kl. 12.30. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Opið fyrir inni-
pútt og 18 holu púttvöll úti. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-
15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Bústaðakirkja Félagsstarfið verður á sínum stað á miðvikudaginn
kl. 13, það verða grillaðar pylsur og við syngjum inn sumarið.
Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Bústaðakirkju.
Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl.9, samvera frá Laugarnes-
kirkju kl.14. Verslunarferð í Bónus kl.14.40.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Ljóðahópur Soffíu kl. 9.45-11.30. Línudans kl. 10-11.15.
Listasmiðja opin kl. 9-12. Hádegismatur kl. 14.30. Tálgun með Valdóri
kl. 13.30-16. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Hugmyndabankinn opinn kl.9-16.
Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-13, postulínsmálun kl.
9-12. Bókband kl. 13-17, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, myndlist kl.
13.30-16.30, dans með Vitatorgsbandinu kl. 14-15. Kaffisala frá kl.
14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59, s. 411 9450.
Furugerði 1 Bókmenntahópur kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl.
11.30-12.30. Ganga kl. 13, botsía kl. 14, prjónaklúbbur kl. 14. Kaffisala
kl. 14.30-15.30. Náttúrulífsmyndir, sýning kl. 15.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.30. Liðstyrkur, Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Brids í Jónshúsi
kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gjábakki Kl. 9, handavinna, kl. 9 botsía, opinn tími, kl. 9.30 glerlist,
kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálning.
Gullsmári Myndlist kl. 9, postulínsmálun/kvennabrids, silfursmíði
kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið, allir velkomnir.
Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika alla virka daga, kl. 10 bók-
menntaklúbbur annan hvern miðvikudag, kl. 11 línudans, kl. 13 bingó,
kl. 13 handmennt. Kl. 16 Gaflarakórinn, Hjallabraut 33, kl. 9 fjölstofan.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10, sam-
verustund með grunnskólabörnum kl. 10.30 og hádegismatur kl.
11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl.
13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Gönguhópar frá Borgum kl. 10 í dag, keila í Egilshöll kl. 10
í dag. Stjórnar og nefndarfundur Korpúlfa kl 10 í Borgum. Logy tísku-
sýning með sumarlínuna í Borgum í dag, sala og sýning kl. 13, allir
velkomnir. Kaffiveitingar frá kl. 14.30 til 15.30 í Borgum.
Langholtskirkja Samvera eldri borgara hefst með helgistund í
kirkjunni kl. 12.10, að því loknu er hádegisverður í safnaðarheimilinu.
Söngur, spil, spjall og handavinna fram að miðdegiskaffi kl. 14.30.
Vertu velkominn !
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11-11.30, opin
trésmiðja kl. 9-12. Viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, félagsvist
kl. 13.30, Bónusbíllinn kl. 14.40, bókasafnshópur kl. 14.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir vel-
komnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði,
Stangarhyl 4, kl. 10. Kaffi og rúnnstykki eftir göngu.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Ragnar Gunnars-
son segir frá Keníuferð sinni.
Allir velkomnir.
Kynningarfundur tillögu
að endurskoðun deiliskipulags
miðbæjar Egilsstaða.
Kynningarfundur tillögu að endurskoðun deili-
skipulags miðbæjar Egilsstaða verður haldinn
í fundarsal Egilsstaðaskóla fimmtudaginn 16.
maí nk. kl. 16:30 skv. 4. mgr. 40. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
Skipulags- og byggingafulltrúi
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine í
Martin Slóvakíu heldur kynningar-
fund í Menntaskólanum í Kópavogi
kl. 17, 8. maí. Dr Andrej Krajovic.
Inntökupróf verður haldið í MK í
Kópavogi 3. júní klukkan 10.
Uppl. kaldasel@islandia.is. og
fá. 8201071.
með
morgun-
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Elsku Helgi minn. Minning-
arnar um þig hrannast upp í
huga mér. Lítill strákhnokki með
fallegu ljósu lokkana og einn kol-
svartan lokk. Lokkurinn stóð
eins og flagg upp úr hvirflinum
og gránaði á unga aldri.
Glaðvær fjörkálfur, fyndinn,
orðheppinn og með eindæmum
stríðinn, sérstaklega í minn garð
á tímabili. Oft varð heitt í kol-
unum okkar á milli vegna stríðni
þinnar, flogist á og orðaskak en
auðvitað féllumst við alltaf í
faðma í lokin. Þú fékkst fljótt
brennandi áhuga á bílum, vél-
búnaði og dundaðir löngum
stundum í bílskúrnum við að gera
upp bíla. Nákvæmur, fjölhæfur
og vandvirkur til allra verka.
Árið 1987 urðu kaflaskil í þínu
lífi, þegar þú varðst fyrir slysi
þar sem þú lást á milli heims og
helju í tvær vikur. Þegar þú
komst til meðvitundar og gast
aðeins tjáð þig á blaði skrifaðir
þú:
„Ég er eins og olíuhreinsistöð
með allar þessar slöngur og
tæki.“ Alltaf með kímnigáfuna á
réttum stað til að létta á þínu
fólki.
Þegar ég heimsótti þig kvöldið
fyrir andlát þitt var mjög af þér
dregið en andinn sterkur. Við
systkinin göntuðumst með þér og
Helgi Lárusson
✝ Helgi Lárussonfæddist 26.
mars 1964. Hann
lést 18. apríl 2019.
Útför Helga fór
fram 3. maí 2019.
Jarðsett verður í
kirkjugarðinum við
Minningarkapellu
Jóns Steingríms-
sonar á Kirkju-
bæjarklaustri.
hlógum saman. Þér
var líka mjög í mun
að við læsum yfir
erfðaskrána og
hvernig þú vildir
hafa allt í kringum
jarðarförina þína,
vegna þess að þér
var umfram allt um-
hugað um börnin
þín þrjú sem þú
varst ákaflega stolt-
ur af enda öll vel
gerðar manneskjur.
Þú varst ekki hræddur við að
deyja. Sagðir við okkur að það
hefðir þú prufað tvisvar sinnum.
Aldrei hefði þér liðið eins vel á
ævinni, þar sem þú gekkst inn í
björt ljósgöng og fannst ólýsan-
legan frið. Dauðastríð þitt tók að-
eins fimm vikur. Þú mættir ör-
lögum þínu af æðruleysi, styrk og
umhyggju fyrir þínum nánustu.
Ég er þakklát fyrir að hafa átt
þig sem bróður. Þú hefur kennt
okkur systkinunum svo mikið
með æðruleysi þínu. Það er
sterkur strengur á milli okkar
systkinanna og nú hefur stórt
skarð verið höggvið með fráfalli
þínu.
Þú munt alltaf vera í hjarta
okkar. Starfsfólki lyflækninga-
deildar sjúkrahússins á Akureyri
ber ég mínar bestu þakkir fyrir
alúðlega umönnun í hvívetna.
Elsku bróðir, nú hefur þú
fengið hvíldina og ert genginn
inn í fallegu ljósgöngin þín og
friðinn. Ég er viss um að amma
Lauga hefur staðið þar í farar-
broddi með opinn faðminn til að
taka á móti þér. Hvíl í friði elsku-
legur, minningin um góðan dreng
lifir. Vertu sæll að sinni, þig signi
ljósið bjarta.
Þín systir,
Vala Lárusdóttir.
Um þessar
mundir eru tólf ár
liðin síðan við Ágúst
Þór Árnason áttum
fyrst samleið sem gestir á fundi
Rótarýklúbbs Eyjafjarðar – báðir
gengum við inn í félagsskapinn í
kjölfarið, ég strax um vorið 2007
en Ágúst Þór að afloknu sumar-
leyfi, vildi líklega stúdera hópinn
örlítið betur.
Þá þekkti ég Ágúst Þór aðeins í
gegnum sína rösklegu framgöngu
á fundum hér í bænum, á vett-
vangi þjóðmála og í fjölmiðlastarfi
eins og reyndar flestir aðrir, því
Ágúst Þór tjáði skoðanir sínar svo
eftir var tekið – bæði fumlaust og
ákveðið.
Vildi vera í eldlínunni, þorði að
fara á móti straumnum í fræði-
mennsku, var líklega ekki allra,
sem var í raun mesti styrkleiki
hans bæði sem persónu og fræði-
manns.
Við urðum fljótt vinir í gegnum
félagsstarfið hjá Rótarýklúbbi
Eyjafjarðar – Ágúst Þór stýrði
mjög fimlega umræðunni á fund-
um okkar, hafði bæði næmt
innsæi fyrir öllu því sem skipti
máli, gerði hversdagslega um-
Ágúst Þór Árnason
✝ Ágúst ÞórÁrnason fædd-
ist 26. maí 1954.
Hann lést 11. apríl
2019.
Útför Ágústs
Þórs fór fram 26.
apríl 2019.
ræðu mun innihalds-
ríkari og kom oft
með gesti með sér til
fundarins sem höfðu
bæði áhrif í sam-
félagslegri umræðu
og höfðu ríkulega til
mála að leggja.
Ástríða hans fyrir
bættu samfélagi og
manngæska skein í
gegnum allar hans
vangaveltur og pæl-
ingar.
Ágúst Þór hafði mjög háleit
markmið fyrir okkar fámenna en
góðmenna klúbb – skipulag hans
á forsetastóli síðustu árin miðað-
ist aldrei við annað en stækka
hann og efla þó að á móti blési.
Hafði bæði góð markmið um
gestakomur og fundahaldið – en
þó ekki síður um matinn.
Það var mikið og þungt reiðar-
slag þegar okkar góði félagi veikt-
ist og sorglegt hversu snörp bar-
áttan varð. Ég mun sakna mjög
vinar í stað – góðra umræðna um
þjóðfélagsmál af öllu tagi en ekki
síður um kvikmyndir, því ástríða
okkar fyrir þeim var sameiginleg.
Við félagar í Rótarýklúbbi
Eyjafjarðar kveðjum góðan fé-
laga okkar og vin með virðingu og
þökk fyrir gott samstarf og vin-
áttu síðustu tólf árin og vottum
fjölskyldu hans og vinum innilega
samúð.
Blessuð sé minningin um
Gústa.
Stefán Friðrik Stefánsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar