Morgunblaðið - 08.05.2019, Page 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
Á palli:
VIÐAR Smágrár
Opið : 8-18 v i r ka daga, 10-14 laugardaga • S ími 588 8000 • s l ippfe lag id. i s
Á grindverki:
VIÐAR Húmgrár
Viðarvörn
70 ára María er Reyk-
víkingur en býr í
Reykjanesbæ. Hún er
með BA-próf í guð-
fræði og diplóma í fötl-
unarfræði og er að
vinna að MA-ritgerð.
Hún starfaði síðast
sem verkefnastjóri Menningarseturs á
Útskálum.
Maki: Leifur A. Ísaksson, f. 1947, kennari
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Börn: Ísak, f. 1967, Ásgeir Hinrik, f. 1968,
Arnar, f. 1976, og Berglind, f. 1977.
Barnabörnin eru fimm og barnabarna-
börn eru tvö.
Foreldrar: Haukur Jóhann Sigurðsson, f.
1919, d. 1980, og Helga Guðmundsdóttir,
f. 1923, d. 1984. Þau voru bús. í Rvík.
María
Hauksdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Glaumur og gleði eru lykilorð
næstu vikur. Ekki láta glepjast af gylli-
boðum, hinkraðu aðeins.
20. apríl - 20. maí
Naut Hlustaðu á líkama þinn og farðu
eftir því sem hann segir þér. Vertu hrein-
skilin/n strax í upphafi, það margborgar
sig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert á nýjum og spennandi
stað í ástarsambandi. Ekki kasta hæfi-
leikum þínum á glæ. Hafðu trú á þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Auðgaðu andann með því að lesa
eitthvað óvenjulegt sem þú hefur ekki
lagt þig eftir áður. Einbeittu þér að því
sem þú þráir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu þess að ganga ekki á rétt
annarra. Sem betur fer hringja viðvör-
unarbjöllur þegar þú færð símhringingu
að utan.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú ert tíminn til að viðra vanda-
mál sem þú hefur lengi falið. Einhver
heldur að hann eigi þig með húð og hári.
Leiðréttu þann misskilning strax.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur haldið spennunni inni og
verður að hleypa henni út með ein-
hverjum hætti. Stundum er besta ákvörð-
unin sú að ákveða ekki neitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sannleikurinn er sagna best-
ur og það skaltu hafa í huga, allavega
gagnvart þínum nánustu. Sagt er að
kennarinn birtist þegar nemandinn er
tilbúinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Passaðu hornin í dag, þau
gætu stungist í fólk sem er of áhrifaríkt
til að þú hafir efni á því að styggja það.
Hristu af þér feimnina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að öðlast frið innra
áður en þú hjálpar öðrum. Stjórnendur
eru ekki á sama máli og þú, sem dregur
úr þér allan mátt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú vilt skipuleggja allt sem er
í góðu lagi ef þú reynir um leið að vera
sveigjanleg/ur þegar það á við. Nýttu þér
hæfileika þína til skipulagningar núna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það verða báðir aðilar í sambandi
að leggja sitt af mörkum ef sambandið á
að geta gengið. Til að vera í núinu þarftu
að hætta allri sjálfsgagnrýni.
fyrstu einkasýningu 1985 en þær eru
nú orðnar yfir 50. Nú stendur yfir sýn-
ing hans í Gallerý LAK, ( Læknastofur
Akureyrar) og stendur út júní. Jón
Ingi hlaut listamannalaun 1981, við-
urkenningu menningarnefndar Selfoss
1997, Menningarverðlaun Árborgar
2011 og var Heiðurslistamaður Mynd-
listarfélags Árnessýslu 2017.
Jón Ingi var einn af stofnfélögum
Lionsklúbbs Selfoss og hefur unnið
ýmis störf í þágu klúbbsins og verið
formaður, ritari og fleira og starfar
hann enn með klúbbnum. „Ég fór á eft-
irlaun 1996 og hætti kórstjórn árið
2000 og kennslu í Tónlistarskólanum
leikara. Kórnemendur hafa margir
haldið áfram að syngja í kórum, nokkr-
ir syngja í Dómkórnum og sem ein-
sögvara get ég nefnt Kristjönu
Stefánsdóttur djasssöngkonu.“
Jón Ingi færði sig yfir í Gagnfræða-
skólann og kenndi þar ensku, dönsku
og tónmennt og stundum myndmennt.
Hann var aðstoðarskólastjóri við
Gagnfræðaskólann 1976-1996 fyrir
utan þegar hann var skólastjóri 1979-
80 og 1987-1991.
Jafnframt fékkst Jón Ingi við að
mála, einkum vatnslitamyndir og í olíu.
Hann sýndi oft í samsýningum Mynd-
listarfélags Árnesinga og hélt sína
J
ón Ingi Sigurmundsson
fæddist 8. maí 1934 á
Eyrarbakka og ólst þar
upp. „Ég á góðar æsku-
minningar við leik og störf.
Almennt höfðu menn ekki eitt starf en
voru með skepnur, ræktuðu kartöflur,
voru í fiskvinnslu eða á sjó. Við krakk-
arnir lékum okkur saman úti í ýmsum
leikjum. Ég var átta sumur í síma-
vinnuflokki Ólafs Magnússonar, móð-
urbróður míns, og var sofið í tjöldum
og unnið á ýmsum stöðum sunnan-
lands og á Norðurlandi.“
Jón Ingi tók landspróf á Selfossi
1951, var næstu þrjú ár í Kennara-
skólanum og lauk almennu kennara-
prófi og söngkennaraprófi 1954. „Ég á
góðar minningar úr náminu og var
fyrsta utanlandsferðin farin í útskrift-
arferð um Evrópu.“ Jón Ingi hafði
einnig frá unga aldri lært á orgel og
síðar píanó, bæði í einkatímum, Tón-
skóla kirkjunnar, og Tónlistarskól-
anum í Reykjavík.
Jón Ingi flutti á Selfoss 1954 og
starfaði við almenna kennslu við
Barnaskólann og tónmenntakennslu
fyrstu árin. „Við Edda giftum við okk-
ur 1958 og fórum til Kaupmannahafn-
ar. Sigldum með Heklu með viðkomu í
Færeyjum og Bergen. Ég fór í tónlist-
ardeild Kennaraháskólans í Kaup-
mannahöfn og lærði píanóleik, hljóm-
fræði o.fl. en Edda lauk tveggja ára
námi í handavinnu í Haandarbejdes
Fremme skole. Þá tók aftur við
kennsla á Selfossi. Ég fór svo eitt sum-
ar í enskunám í London.“ Hann fékk
orlof 1971-72 og fór til Kaupmanna-
hafnar með fjölskylduna og var við
nám í framhaldsdeild Kennaraháskól-
ans í tónlist og í enskunámi og Edda
var í dönskunámi í Kennara-
háskólanum.
Jón Ingi stofnaði Stúlknakór Gagn-
fræðaskólans á Selfossi 1960 og Kór
Fjölbrautaskóla Suðurlands 1983 og
kenndi jafnframt á píanó og tónfræði-
greinar við Tónlistarskóla Árnesinga
og var skólastjóri 1968-1971. „Ég á
margar skemmtilegar minningar frá
starfinu hjá Kór Fjölbrautaskólans t.d.
velheppnaðar kórferðir til Norður-
landa og Þýskalands. Nokkrir af pí-
anónemendum mínum hafa haldið
áfram námi og gæti ég þá t.d. nefnt
Vigni Þór Stefánsson djasspíanó-
1998. Ég hef nú nægan tíma til að mála
og sinna fjölskyldunni, garði og sum-
arbústaðnum í Vaðnesi í Grímsnesi.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns Inga er Edda Björg
Jónsdóttir kennari, f. 4. maí 1938. For-
eldrar Eddu voru hjónin Jón Pálsson,
bókbandsmeistari og tómstundaráðu-
nautur Reykjavíkurborgar, f. 23. apríl
1908, d. 22.ágúst 1979 og Vilborg Sig-
urrós Þórðardóttir, húsmóðir í Reykja-
vík, f. 19. maí 1909, d. 19. apríl 1997.
Börn Jóns Inga og Eddu eru 1) Vil-
borg, kennari og bókari, f. 25. febrúar
1960.Eiginmaður: Ólafur Kristinn
Guðmundsson, iðnrekstrarfræðingur,
f. 8. júní 1961. Börn : Sindri Snær, við-
skiptafræðingur, f. 22. ágúst 1994; Jón
Ingi, nemi í tölvunarfræði í HR, f. 24.
október 1998, 2) Ágústa María, leik-
skólakennari, f. 13. október 1961. Eig-
inmaður: Birgir Guðmundsson, rekstr-
arhagfræðingur, f. 4. maí 1962. Börn:
Guðjón Árni, kvikmyndafræðingur, f.
4. desember 1990. Eiginkona: Elíza-
beth Lopez Arriaga, mannauðsstjóri, f.
6. apríl 1984. Barn: Björn Santiago f.
27. júní 2018; Edda Karen, nemi í HÍ, f.
23. febrúar 1995; Janus Bjarki, nemi í
HÍ, f. 12 janúar 1998; 3) Selma Björk,
leikskólakennari, f. 15. janúar 1964.
Eiginmaður: Jóhann Böðvar Sigþórs-
son, bakari, f. 4. desember 1963. Börn:
Sigþór Constantin, nemi f. 5. júní 1998;
Jón Ingi Sigurmundsson, myndlistarmaður, fv. aðstoðarskólastj. og kórstjóri – 85 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Sigurmundur Páll, Vilborg, Jón Ingi, Edda, Selma Björk og Ágústa María.
Hefur nægan tíma til að mála
Við trönurnar Jón Ingi staddur við Álftavatn að mála Búrfell í Grímsnesi.
40 ára Magnús er
Reykvíkingur en býr í
Kópavogi. Hann er raf-
virkjameistari að
mennt frá 2018 og er
með eigið fyrirtæki
sem heitir Raf-
magnus. Hann stofn-
aði fyrirtækið árið 2016.
Maki: Heiðdís Ágústsdóttir, f. 1983, mót-
tökustjóri hjá Pipar/TBWA.
Sonur: Stormur Magnússon, f. 2013.
Systkini: Sandra Valdís, f. 1975, og Árni
Emil, f. 1993.
Foreldrar: Guðmundur Gunnarsson, f.
1952, verkamaður hjá ÞG verk, og Helga
Lára Árnadóttir, f. 1956, vinnur við heim-
ilisþrif. Þau eru búsett í Reykjavík.
Magnús Gunnar
Guðmundsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is