Morgunblaðið - 08.05.2019, Side 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
Pepsi Max-deild kvenna
Keflavík – ÍBV.......................................... 0:2
Stjarnan – HK/Víkingur.......................... 1:0
Selfoss – Breiðablik.................................. 1:4
Staðan:
Breiðablik 2 2 0 0 6:1 6
Stjarnan 2 2 0 0 2:0 6
Valur 1 1 0 0 5:2 3
Fylkir 1 1 0 0 2:1 3
ÍBV 2 1 0 1 2:2 3
HK/Víkingur 2 1 0 1 1:1 3
KR 1 0 0 1 0:1 0
Þór/KA 1 0 0 1 2:5 0
Keflavík 2 0 0 2 1:4 0
Selfoss 2 0 0 2 1:5 0
Úrslitakeppni EM U17 karla
Leikið á Írlandi:
Ungverjaland – Ísland ............................ 2:1
Rajmund Molnár 31., András Nemeth 90.
(víti) – Mikael Egill Ellertsson 48.
Portúgal – Rússland................................. 2:1
Staðan:
Ungverjaland 2 2 0 0 3:1 6
Ísland 2 1 0 1 4:4 3
Portúgal 2 1 0 1 2:2 3
Rússland 2 0 0 2 3:5 0
Í lokaumferðinni á föstudag leikur Ísland
við Portúgal og Ungverjaland við Rúss-
land. Tvö efstu liðin komast í átta liða úrslit
keppninnar.
Þróunarmót UEFA U17 kvenna
Leikið í Króatíu:
Ísland – Búlgaría ..................................... 6:0
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir 28., 46.,
78., Aníta Ýr Þorvaldsdóttir 49., Hildur
Lilja Ágústsdóttir 67., 75.
Ísland mætir Makedóníu á morgun og
Króatíu á laugardaginn.
Meistaradeild karla
Undanúrslit, seinni leikur:
Liverpool – Barcelona ............................ 4:0
Divock Origi 7., 79., Georginio Wijnaldum
54., 56.
Liverpool í úrslit, 4:3 samanlagt.
Svíþjóð
B-deild:
Degerfors – Brage................................... 1:0
Bjarni Mark Antonsson fór meiddur af
velli hjá Brage á 22. mínútu.
KNATTSPYRNA
2. UMFERÐ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Öll tólf liðin hafa tapað stigum í
fyrstu tveimur umferðunum í úr-
valsdeild karla í fótbolta og það ger-
ist svo sannarlega ekki á hverju ári.
Þetta hefur aldrei áður gerst eftir
að liðum var fjölgað úr tíu í tólf frá
og með tímabilinu 2008 og það þarf
að fara sautján ár aftur í tímann, til
ársins 2002, til að finna sambærilega
stöðu í deildinni að tveimur umferð-
um loknum.
Þá voru Fylkir, KR, Þór og Kefla-
vík í fjórum efstu sætunum með 4
stig hvert, og rétt eins og nú var eitt
lið stigalaust á botninum – ÍA.
Nú eru Fylkir, KR, ÍA, Breiða-
blik og FH öll með 4 stig í fimm
efstu sætum deildarinnar og eitt lið
situr eftir stigalaust á botninum –
Eyjamenn.
Allt benti reyndar til þess að
Fylkir yrði í efsta sætinu, þar til
Óttar Bjarni Guðmundsson jafnaði
fyrir Skagamenn á þriðju mínútu í
uppbótartíma, 2:2.
Hvort þetta sé merki um að deild-
in verði jafnari en áður er of
snemmt að fullyrða um, en fjórum
af sex leikjum 2. umferðar lauk með
jafntefli. Eini afgerandi sigurinn var
hjá KR gegn ÍBV, 3:0, eftir marka-
lausan fyrri hálfleik.
Bara einn eins marks leikur
Þá hafa minnst tvö mörk verið
skoruð í öllum leikjum deildarinnar
til þessa nema einum – þegar KA
lagði Íslandsmeistara Vals að velli á
sunnudaginn, 1:0, á gamla og góða
Akureyrarvellinum (sem nú er
kenndur við Greifann), en aldrei
hefur verið spilað jafn snemma vors
á honum.
Nýliðar HK fengu sitt fyrsta stig
með 2:2 jafntefli í grannaslag gegn
Blikum, sem björguðu sér á ótrúleg-
an hátt með tveimur mörkum á
lokamínútunum.
Víkingar hafa komið einna mest á
óvart með frammistöðu sinni gegn
Val og FH. Uppskeran er reyndar
aðeins tvö stig og gat verið meiri en
það er þó tveimur stigum meira en
flestir reiknuðu með.
Óskar er fremstur
á mörgum sviðum
Óskar Örn Hauksson, kant-
maðurinn reyndi og fyrirliði KR-
inga, er leikmaður 2. umferðar hjá
Morgunblaðinu. Óskar lék mjög vel
í 3:0 sigrinum á Eyjamönnum þar
sem hann skoraði glæsilegt mark og
lagði upp hin tvö – það fyrra með
skalla í stöng og það seinna með
gullfallegri stungusendingu á Björg-
vin Stefánsson.
Óskar hefur með þessu marki
skorað á sextán tímabilum í röð í úr-
valsdeildinni, eða frá því hann lék
þar fyrst með Grindavík árið 2004.
Þá gerði hann sitt fyrsta mark í
deildinni í 3:2 sigri gegn Keflavík,
með sinni fyrstu snertingu eftir að
hafa komið inn á sem varamaður,
eftir sendingu frá Eysteini Hauks-
syni.
Óskar, sem verður 35 ára í ágúst
og ólst upp í Njarðvík er marka-
hæstur núverandi leikmanna í deild-
inni. Hann skoraði sitt 69. mark og
er kominn í 17.-19. sætið yfir þá
markahæstu frá upphafi ásamt Al-
berti Ingasyni og Pétri Ormslev.
Óskar er jafnframt leikjahæstur
þeirra sem nú spila í deildinni með
289 leiki, sá þriðji hæsti frá upphafi,
og hann hefur líka spilað flesta leiki
í röð af núverandi leikmönnum.
Leikurinn gegn ÍBV á sunnudaginn
var hans 79. leikur í röð fyrir KR í
deildinni.
Þegar Óskar skallaði í stöngina
fylgdi Pálmi Rafn Pálmason á eftir
og skoraði sitt 100. deildamark á
ferlinum eins og fjallað var um í
blaðinu í gær.
Júlíus kemur sterkur heim
Besti ungi leikmaður 2. umferð-
ar að mati Morgunblaðsins var Júl-
íus Magnússon miðjumaður Vík-
ings. Júlíus er tvítugur, uppalinn í
Víkingi en hefur leikið með ung-
lingaliðum og varaliði Heerenveen í
Hollandi undanfarin ár. Hann hefur
komið sterkur inná miðjuna hjá Vík-
ingi í fyrstu tveimur leikjunum. Júl-
íus á að baki 33 leiki með yngri
landsliðum Íslands, 15 þeirra með
21-árs landsliðinu þar sem hann er
áfram gjaldgengur á þessu ári og
næsta.
Báðir markaskorarar ÍA í 2:2
jafnteflinu við Fylki skoruðu sitt
fyrsta mark í efstu deild, miðvörð-
urinn Óttar Bjarni Guðmundsson og
bakvörðurinn Hörður Ingi Gunn-
arsson.
Þriðji leikmaðurinn sem skoraði í
fyrsta sinn í deildinni var hollenski
framherjinn Patrick N’Koyi sem
gerði mark Grindavíkur gegn
Stjörnunni úr vítaspyrnu. N’Koyi er
29 ára gamall, fæddur í Saír, eða
Lýðveldinu Kongó eins og landið
heitir í dag.
Nú kom hinn tvíburinn inn á
Þá léku þrír nýir leikmenn í
deildinni í 2. umferð. Þorri Mar
Þórisson kom inn á hjá KA gegn
Val, rétt eins og tvíburabróðir hans
Nökkvi Þeyr Þórisson gerði gegn
ÍA í fyrstu umferðinni. Faðir þeirra
Þórir Áskelsson lék lengi með Þór.
Mohamed Didé Fofana, miðju-
maður frá Gíneu sem er í láni frá
Sogndal í Noregi, spilaði sinn fyrsta
leik með Víkingi gegn FH en hann
er 21 árs og hefur leikið með U20
ára landsliði þjóðar sinnar í loka-
keppni HM. Portúgalski markvörð-
urinn Rafael Veloso kom í mark
ÍBV í stað Halldórs Páls Geirssonar
og stóð sig vel gegn KR. Veloso er
25 ára gamall og lék síðast með
Valdres í Noregi.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Guðmundur Kristjánsson, FH 3
Sam Hewson, Fylki 3
Almarr Ormarsson, KA 2
Björn Berg Bryde, HK 2
Björn Daníel Sverrisson, FH 2
Einar Karl Ingvarsson, Val 2
Eyjólfur Héðinsson, Stjörnunni 2
Guðjón Baldvinsson, Stjörnunni 2
Gunnar Þorsteinsson, Grindavík 2
Halldór Smári Sigurðsson, Víkingi 2
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 2
Jónatan Ingi Jónsson, FH 2
Júlíus Magnússon, Víkingi 2
Logi Tómasson, Víkingi 2
Martin Rauschenberg, Stjörnunni 2
Ólafur Örn Eyjólfsson, HK 2
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 2
Nikolaj Hansen, Víkingi 2
Pálmi Rafn Pálmason, KR 2
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 2
Markahæstir
KR 12
FH 11
KA 11
ÍA 10
Víkingur R. 10
Fylkir 9
HK 9
Stjarnan 8
Breiðablik 7
Valur 7
Grindavík 5
ÍBV 5
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Þórður Ingason
Víkingi
Ýmir Már
Geirsson
KA
Óskar Örn Hauksson
KR
Almarr
Ormarsson
KA
Kennie Chopart
KR
Sam Hewson
Fylki
Guðjón Baldvinsson
Stjörnunni
Björn Berg Bryde
HK
Guðmundur
Kristjánsson
FH
Ásgeir Marteinsson
HK
Óttar Bjarni
Guðmundsson
ÍA
2. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
Óskar Örn Hauksson, KR 2
Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 2
Pálmi Rafn Pálmason, KR 2
Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 2
Sölvi Geir Ottesen, Víkingi 2
2
2
Ekki gerst í sautján ár
Öll liðin í deildinni hafa þegar tapað stigum Óskar Örn Hauksson var
besti leikmaður 2. umferðar Júlíus Magnússon besti ungi leikmaðurinn
Morgunblaðið/Hari
Bestur Óskar Örn Hauksson leikur
listir sínar gegn Eyjamönnum.
Aron Pálmarsson og félagar í
Barcelona mæta Vardar frá
Makedóníu í undanúrslitum
Meistaradeildar Evrópu í hand-
bolta. Leikið er 1. júní í Köln en
úrslitaleikurinn er degi síðar. Í
hinum undanúrslitaleiknum leika
Kielce og Veszprém, fyrra lið
Arons.
Aron tekst á við
Vardar í Köln