Morgunblaðið - 08.05.2019, Page 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 20. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105, kata@mbl.is
Blaðið verður með góðum
upplýsingum um garðinn,
pallinn, heita potta,
sumarblómin, sumar-
húsgögn og grill ásamt
girnilegum uppskriftum.
Garðar &grill
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 24. maí
SÉRBLAÐ
HANDBOLTI
Grill 66-deild karla
Umspil, úrslit, fjórði leikur:
HK – Víkingur ...................................... 28:26
Staðan er jöfn, 2:2, og liðin mætast í
oddaleik á föstudag í Víkinni kl. 18.
Danmörk
Úrslitakeppnin, 1. riðill:
SönderjyskE – Holstebro ................... 29:28
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1
mark fyrir SönderjyskE.
Vignir Svavarsson hjá Holstebro er frá
keppni vegna meiðsla.
Staðan eftir 4 umferðir af 6: Skjern 6,
Aalborg 6, SönderjyskE 4, Holstebro 3.
Úrslitakeppnin, 2. riðill:
Skanderborg – GOG............................ 32:30
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 3 mörk
fyrir GOG.
Staðan eftir 4 umferðir af 6: GOG 8,
Bjerringbro/Silkeborg 5, Skanderborg 4,
Århus 2.
Frakkland
Antibes – Nanterre ............................. 70:86
Haukur Helgi Pálsson skoraði 2 stig og
tók 2 fráköst fyrir Nanterre á þeim 11 mín-
útum sem hann spilaði.
Austurríki
Átta liða úrslit, þriðji leikur:
Flyers Wels – Klosterneuburg........... 73:87
Dagur Kár Jónsson skoraði 8 stig, tók 4
fráköst og átti 4 stoðsendingar fyrir Wels á
34 mínútum.
Klosterneuburg vann einvígið, 3:0.
Svíþjóð
Þriðji úrslitaleikur:
Södertälje – Borås .............................. 79:76
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 7 stig og
átti 2 stoðsendingar á 18 mínútum fyrir
Borås.
Staðan er 3:0 fyrir Södertälje.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Boston – Milwaukee ......................... 101:113
Staðan er 3:1 fyrir Milwaukee.
Vesturdeild, undanúrslit:
Houston – Golden State ................... 112:108
Staðan er 2:2.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Þórsvöllur: Þór/KA – Fylkir..................... 18
Meistaravellir: KR – Valur.................. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, fjórði leikur:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar (1:2) 18.30
Í KVÖLD!
SELFOSS/GARÐABÆR/
KEFLAVÍK
Guðmundur Karl
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skúli B. Sigurðsson
Breiðablik sýndi mátt sinn og megin
þegar liðið mætti á Selfossvöll í gær
og sigraði 4:1 í 2. umferð Pepsi Max-
deildar kvenna í knattspyrnu. Blikar
eru því með fullt hús stiga en Selfoss
er enn í leit að sínum fyrsta sigri.
Blikaliðið var ekki árennilegt í gær-
kvöldi með mikil gæði sóknarlega og
Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur
komna í byrjunarliðið. Hún var ekki
lengi að láta að sér kveða, skoraði
strax á 8. mínútu og lagði svo upp
mark númer tvö. Berglind var mikið í
boltanum, sérstaklega framan af
leiknum, og var stöðugt ógnandi og
lítur út fyrir að vera í góðu formi.
Þær unnu líka vel fyrir liðið, Agla
María Albertsdóttir og Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir, sem voru duglegar að
koma sér upp í hornin, aftur fyrir
vörn Selfoss og skapa hættu með fyr-
irgjöfum. Selfyssingar náðu að loka
meira á þessa umferð upp vængina í
seinni hálfleiknum.
Baráttan á miðjunni var skemmtileg
þar sem Hildur Antonsdóttir fór mik-
inn fyrir Blika á móti hinni léttleikandi
Grace Rapp og hinni grjóthörðu Þóru
Jónsdóttur. Hildur hafði betur í kvöld;
skoraði þriðja mark Blika og fiskaði
vítaspyrnuna í því fjórða.
Blikalestin mætti á fullri ferð í leik-
inn en um leið og hann róaðist héldu
þær vínrauðu sjó og vel það. Varn-
arleikurinn hefur verið aðal Selfyss-
inga og því óvenjulegt að sjá þær gefa
fjögur mörk.
Fullt hús eftir keimlíka sigra
Stjarnan er með fullt hús stiga eftir
tvo keimlíka 1:0-heimasigra. Sá síðari
kom í gær gegn HK/Víkingi. Hin 16
ára gamla Jana Sól Valdimarsdóttir
skoraði sigurmarkið á 73. mínútu, ell-
efu mínútum eftir að hún kom inn á
sem varamaður í sínum þriðja leik í
meistaraflokki.
Markið hjá Jönu var afar huggu-
legt. Hún sneri af sér varnarmann
áður en hún lagði boltann glæsilega í
fjærhornið. Markið kom nokkuð
gegn gangi leiksins, þar sem HK/
Víkingur var sterkari aðilinn stærst-
an hluta seinni hálfleiks. Eins og í
fyrsta leiknum gegn Selfossi gekk
Stjörnunni frekar illa að skapa opin
marktækifæri, en að sama skapi gáfu
heimamenn fá færi á sér. Úr varð
mikil stöðubarátta á miðjunni, þar
sem Stjarnan hafði undirtökin í fyrri
hálfleik en HK/Víkingur í þeim síð-
ari. Mexíkóska landsliðskonan Ranae
Cuéllar hefur ekki verið áberandi í
fyrstu tveimur leikjum sínum hér á
landi og þarf Stjarnan meira frá
henni. Að sama skapi þurfa kant-
mennirnir að þjónusta hana betur.
Stjarnan vinnur væntanlega ekki lið
á borð við Val eða Breiðablik án þess
að sóknarleikurinn verði sterkari.
HK/Víkingur náði fínum spilköflum í
gær, en það vantaði odd á spjótið og
fengu sóknarmennirnir ekki úr miklu
að moða. Það þarf að taka sókn-
arleikinn fyrir á æfingum hjá báðum
liðum.
ÍBV tök völdin í seinni
Keflavík spilaði sinn fyrsta heima-
leik í efstu deild í langan tíma þegar
liðið mætti ÍBV í gærkvöldi. Fyrir-
fram mátti allt eins búast við hörku-
leik þar sem bæði lið töpuðu naum-
lega í fyrstu umferðinni þrátt fyrir að
hafa spilað ágætlega. Ekki var fram-
an af leik að sjá mikinn getumun á
liðunum en þegar leið á seinni hálf-
leik tóku Eyjakonur völdin í leiknum,
skoruðu úr þeim færum sem þær
fengu og sigruðu verðskuldað.
Ef eitthvað er hefði ÍBV hæglega
getað bætt við en liðið fór illa með
nokkur kjörin færi í leiknum. Kefla-
vík gerði hins vegar vel og sýndi
gestum sínum litla gestrisni. Heima-
konur fengu vissulega sín færi í
leiknum og á 26. mínútu hefðu þær
líkast til viljað VAR-tæknina á
Nettóvöllinn sinn þegar boltinn virt-
ist fara yfir línuna eftir hornspyrnu.
Það var vissulega kraftur í þessu
Keflavíkurliði en bæði reynsluleysi
og svo að því er virtist þreyta hrjáðu
liðið eftir því sem leið á leikinn. Þetta
setja þær inn á reikning í reynslu-
bankanum fræga og nokkuð ljóst að
þær eiga eftir að gera eitthvað meira
en að stríða andstæðingum sínum í
sumar.
ÍBV-liðið, leitt af Cloé Lacasse í
þetta skiptið, gerði nákvæmlega það
sem þurfti til; stóðst ákefð og baráttu
Keflavíkur og vann sem fyrr segir
leikinn verðskuldað.
Blikalestin á fullri ferð
Berglind mætti af miklum krafti í byrjunarlið Breiðabliks sem skoraði fjögur á
Selfossi Annar 1:0-sigur hjá Stjörnukonum ÍBV hafði betur gegn Keflavík
Morgunblaðið/Eggert
Atgangur Diljá Ýr Zomers sækir að marki HK/Víkings í gær þar sem Stjörnukonur náðu að innbyrða 1:0-sigur.
Keflavík – ÍBV 0:2
0:1 Cloé Lacasse 55.
0:2 Clara Sigurðardóttir 84.
MM
Cloé Lacasse (ÍBV)
M
Sveindís Jane Jónsdóttir (Keflav.)
Natasha Anasi (Keflavík)
Katla María Þórðardóttir (Keflav.)
Emma Kelly (ÍBV)
Clara Sigurðardóttir (ÍBV)
Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertss., 7.
Stjarnan – HK/Víkingur 1:0
1:0 Jana S. Valdimarsdóttir 73.
I Gul spjöldMaría Sól Jakobsdóttir og
Jasmín Erla Ingadóttir (Stjörnunni),
Kristrún Kristjánsdóttir og Tinna Óð-
insdóttir (HK/Víkingi)
M
Birta Guðlaugsdóttir (Stjörnunni)
Sóley Guðmundsdóttir (Stjö.)
Edda M. Birgisdóttir (Stjörnunni)
Keflavík – ÍBV 0:2 Stjarnan – HK/Víkingur 1:0
Selfoss – Breiðablik 1:4
Viktoría V. Guðrúnardóttir (Stjö.)
Jana S. Valdimarsdóttir (Stjö.)
Halla M. Hinriksdóttir (HK/Vík.)
Þórhildur Þórhallsdóttir (HK/Vík.)
Karólína Jack (HK/Víkingi)
Dómari: Steinar Berg Sævarsson, 8.
Selfoss – Breiðablik 1:4
0:1 Berglind B. Þorvaldsdóttir 4.
0:2 Alexandra Jóhannsdóttir 27.
1:2 Darian Powell 34.
1:3 Hildur Antonsdóttir 42.
1:4 Agla María Albertsd. 82. (víti)
I Gul spjöldHólmfríður Magnúsdóttir
og Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari
(Selfossi), Agla María Albertsdóttir
og Þorsteinn Halldórsson þjálfari
(Breiðabliki).
M
Grace Rapp (Selfossi)
Þóra Jónsdóttir (Selfossi)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
(Breiðabliki)
Agla María Albertsdóttir
(Breiðabliki)
Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki)
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
(Breiðabliki)
Alexandra Jóhannsdóttir (Brei.)
Dómari: Bríet Bragadóttir, 8.