Morgunblaðið - 08.05.2019, Page 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
JAPANSKIR HNÍFAR
Allt fyrir eldhúsið
Hágæða hnífar og töskur
Allir velkomnir
Einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
Hjónin Borja González og Ana
Maria Vidal eru tekin við sem aðal- og
aðstoðarþjálfarar kvennaliðs Aftureld-
ingar í blaki eftir að hafa þjálfað
meistaraflokka Þróttar í Neskaupstað
undanfarin ár. Ana Maria mun auk
þess að vera aðstoðarþjálfari hafa um-
sjón með allri styrktarþjálfun blak-
deildar Aftureldingar. Piotr Kempisty
verður áfram þjálfari meistaraflokks
karla og mun hann spila með liðinu.
Daníel Þór Líndal Sigurðsson, 17
ára piltur sem búsettur er í Belfast á
Norður-Írlandi, lenti í öðru sæti í U18
flokki á breska unglingameist-
aramótinu í skylmingum sem haldið
var um síðustu helgi. Daníel er fæddur
í London árið 2001 en báðir foreldrar
hans eru íslenskir og hefur hann keppt
fyrir Íslands hönd á alþjóðlegum mót-
um.
Stefán Darri Þórsson er snúinn aft-
ur í Safamýri til liðs við handknatt-
leikslið Fram. Stefán Darri lék síðast
fyrir Fram, uppeldisfélag sitt, fyrir
þremur árum en hann hefur í vetur
leikið með Alcob-
endas,
botnliði
efstu deild-
ar Spánar.
Áður var
Stefán Darri
hjá Stjörn-
unni 2016-2018.
Hann skrifaði undir
samning við Fram sem
gildir til ársins 2022
og samkvæmt til-
kynningu frá Fram er
frekari frétta að
vænta af leikmanna-
málum á næstunni.
Eitt
ogannað
„Þessi leikur allur var bara of mikið.
Þetta var yfirþyrmandi. Við spil-
uðum við mögulega besta lið heims.
Það að vinna var erfitt, en ég skil
ekki hvernig þeim tókst að halda
markinu líka hreinu. Þetta er ótrú-
legt,“ sagði sigurreifur Jürgen
Klopp eftir stórkostlegt afrek Liver-
pool á Anfield í gærkvöld þegar liðið
sló út Barcelona með 4:0-sigri, í und-
anúrslitum Meistaradeildar Evrópu
í fótbolta.
Liverpool er nú komið í úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu annað árið í
röð, og þetta verður í níunda sinn
alls sem liðið leikur til úrslita í
keppni þeirra bestu í álfunni. Liver-
pool mætir annaðhvort Ajax eða
Tottenham í úrslitaleiknum í Madrid
hinn 1. júní.
Barcelona mætti með 3:0-forskot
til Englands, gegn liði sem var án
Mohameds Salah og Robertos Firm-
inos vegna meiðsla og missti Andy
Robertson einnig meiddan af velli,
en fór heim með skottið á milli lapp-
anna eftir 4:0-tap og furðuleg mistök
í markinu sem að lokum réð úrslit-
um. Divock Origi skoraði fjórða
mark Liverpool rúmum tíu mínútum
fyrir leikslok með auðveldu skoti úr
teignum eftir ótrúlega kænsku
Trents Alexander-Arnolds, sem tók
hornspyrnu þegar leikmenn Barce-
lona héldu að hann væri á leið frá
hornfánanum til að leyfa liðsfélaga
að taka spyrnuna.
„Þetta var bara innsæi. Maður sá
tækifæri,“ sagði Alexander-Arnold
um markið mikilvæga, sem var mark
númer tvö hjá Origi í leiknum:
„Þetta snýst miklu frekar um liðið
[en mörkin mín]. Við spiluðum svo
vel. Við vissum að þetta yrði einstakt
kvöld. Við vildum berjast fyrir hina
meiddu liðsfélaga okkar, og við
börðumst svo vel,“ sagði Origi.
Þáttur Georginios Wijnaldums
var einnig mikill en Hollendingurinn
skoraði tvö mörk á tveimur mínútum
þegar Liverpool komst í 3:0 snemma
í seinni hálfleik, eftir að Wijnaldum
hafði komið inn á fyrir Robertson. Á
þeim langa tíma sem enn var til
stefnu tókst Barcelona varla að
skapa sér færi, en liðið hafði farið
illa með nokkrar afar álitlegar sókn-
ir í fyrri hálfleik. sindris@mbl.is
„Þetta er ótrúlegt“
Magnaðir Liverpoolmenn í úrslit
Kænska bakvarðarins gerði útslagið
AFP
Sniðugur Xherdan Shaqiri faðmar Trent Alexander-Arnold sem lagði upp
tvö mörk í sigri Liverpool. Seinna markið kom úr afar sniðugri hornspyrnu.
Íslenska drengjalandsliðinu í knatt-
spyrnu nægir jafntefli gegn Portúgal í
Dublin á föstudaginn til að komast í
átta liða úrslit Evrópukeppninar í
flokki U17 drengja sem þar stendur yf-
ir. Þeir töpuðu 1:2 fyrir Ungverjum í
gær, þar sem Mikael Egill Ellertsson,
leikmaður SPAL á Ítalíu, jafnaði fyrir
Ísland en Ungverjar skoruðu sig-
urmarkið úr vítaspyrnu í uppbót-
artíma. Sigurinn á Rússum, 3:2, í fyrsta
leik þýðir að Ísland er með betri
markatölu en Portúgal fyrir leik lið-
anna í lokaumferðinni en Portúgal
vann Rússland í gær, 2:1. vs@mbl.is
Strákarnir þurfa
stig gegn Portúgal
Ljósmynd/SPAL
Skoraði Mikael Egill Ellertsson
gerði mark Íslands í gær.
Þrír Íslendingar verða í herbúðum
danska úrvalsdeildarfélagsins GOG
næsta vetur. Í gær greindi félagið,
sem er í baráttu um danska meist-
aratitilinn, frá komu Viktors Gísla
Hallgrímssonar, hins 18 ára lands-
liðsmarkvarðar úr Fram.
Óðinn Þór Ríkharðsson kom til
GOG frá FH í fyrra og Arnar Freyr
Arnarsson kemur til félagsins frá
Kristianstad í sumar. Allir hafa
þeir verið í landsliðinu og allir léku
þeir með Fram veturinn 2015-2016,
þó að Viktor hafi þá reyndar ekki
verið byrjaður í meistaraflokki.
Íslenskt þríeyki
hjá GOG í haust
Morgunblaðið/Hari
Bless Viktor Gísli Hallgrímsson
kveður Fram og heldur utan.
Eftir að hafa lent 2:0 undir í ein-
vígi sínu við Víkinga eru HK-ingar
búnir að knýja fram oddaleik í ein-
vígi liðanna um sæti í efstu deild
karla í handbolta. HK vann með
tveggja marka mun þegar liðin
mættust í Digranesi í gærkvöld,
28:26, eftir að hafa verið tveimur
mörkum undir í hálfleik, 15:13.
Oddaleikur liðanna fer fram í
Víkinni á föstudaginn klukkan 18.
HK sló út Þrótt á leið sinni í einvíg-
ið við Víkinga, sem þurftu ekki að
spila til að komast í umspilið við
HK eftir að hafa endað ofar í 1.
deildinni í vetur að loknum jöfnum
slag við Þrótt og HK. Á það má
benda að HK-ingar hafa bætt heil-
um átta leikjum við tímabilið hjá
sér, eftir að hafa leikið 18 leiki í
deildinni.
Bjarki Finnbogason var marka-
hæstur hjá HK með átta mörk í
gær og Blær Hinriksson kom næst-
ur með sjö. Hjá Víkingum voru
Einar Marteinn Einarsson og Hjalti
Már Hjaltason markahæstir með
fimm mörk hvor. sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Enn von Jón Heiðar Gunnarsson, Elías Björgvin Sigurðsson og Þorvaldur
Snær Sigurðarson fagna sigrinum á Víkingi í Digranesi í gærkvöld.
HK bjó til úrslitaleik
um sæti í efstu deild