Morgunblaðið - 08.05.2019, Page 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
VISBY sófi
2ja og 3ja sæta, horn eða tungusófar,
mikið úrval af áklæði og leðri
Erum á
facebook
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
Hjóla-
legur
Renndu við hjá okkur
í Tangarhöfða 13
Margar helstu stjörnur skemmt-
analífsins vestanhafs, leikarar sem
tónlistarmenn, mættu á hina umtöl-
uðu árlegu glyssýningu Met Gala í
New York í fyrrakvöld. Viðburð-
urinn er haldinn í Metropolitan-
listasafninu við Fimmtu breiðgötu
og er tilefnið að safna fé fyrir bún-
ingadeild safnsins sem geymir
marga fræga og merka flíkina.
Þema veislunnar í ár var upp á
ensku „Camp: Notes on Fashion“ og
gestir hvattir til að ganga sem lengst
í óvenjulegum og ögrandi glæsi-
klæðnaði en heitið var sótt í fræga
grein eftir Susan Sontag frá 1964,
„Notes on Camp“.
AFP
Senuþjófur Söng- og leikkonan Lady Gaga birtist þrisvar sinnum á rauða dreglinum við Metropolitan-safnið.
Glamúrsýning stjarnanna
Skrautleg Tískublaðamenn hrósuðu söngkonunni Celine Dion fyrir til-
komumikla framkomu þar sem hún mætti silfruð með fjaðraskraut.
Kertastjaki Katy Perry var skraut-
leg en líklega var erfitt að setjast.
Dragsíður Cardi B. sópaði gólf sala
safnsins með síðum kjólnum.
Sýnilegur Leikarinn og söngvarinn
Ezra Miller var vel eygður.
Sýningar 58. Feneyjatvíæringsins,
viðamestu myndlistarhátíðar sem
reglulega er haldin, verða opnaðar á
morgun, fimmtudag. Í gær og í dag
eru svokallaðir blaðamannadagar,
þar sem fulltrúar fjölmiðla geta
skoðað jafnt hina fjölmörgu þjóð-
arskála sýningarinnar sem megin-
sýninguna „May You Live In Inter-
esting Times“ sem sett er upp í
ítalska skálanum á aðal sýningar-
svæðinu, garðinum Giardini, og
hinni miklu byggingu Arsenale, þar
sem á miðöldum voru gerð reipi fyr-
ir flota Feneyja.
Í gær bárust fyrstu myndirnar af
hinni viðamiklu innsetningu Hrafn-
hildar Arnardóttur, sem kallar sig
Shoplifter, í íslenska skálanum en
hann er í fyrrverandi vöruhúsi á
Giudecca-eyju. Verkið kallar Hrafn-
hildur Chromo Sapiens og hefur
skapað það úr hári, einkennisefni
sínu. Hljómsveitin HAM hefur samið
tónverk sem mun hljóma í verkinu
og flytur sveitin það við opnunina.
Bandaríski sýningarstjórinn
Ralph Rugoff var valinn til að setja
saman meginsýninguna að þessu
sinni og hefur hann valið verk eftir á
áttunda tug lifandi listamanna til að
draga fram sýn sína á merkustu
meginstrauma listarinnar um þessar
mundir. Auk þeirrar sýningar, sem,
og sýninganna í fleiri tugum þjóð-
arskála, þá er fjöldi annarra for-
vitnilegra sýninga í ýmsum söfnum
og höllum Feneyja. efi@mbl.is
Ljósmynd/Ugo Carmeni
Litasprengja Hluti verks Hrafnhildar Arnardóttur, Chromo Sapiens, í íslenska skálanum.
AFP
„Staðreynd“ Eitt verka stjörnuljósmyndarans Zanele Muholi í Suður-Afríska skálanum.
AFP
Hollenski skálinn Gestur skoðar verkið „The new ut-
opia begins here“ eftir listakonuna Iris Kensmil.
AFP
Múr Í skála Mexíkó hefur listakonan Teresa Margolles
reist múr og kallar verkið „Muro Ciudad Juarez, 2010“.
Myndlistarveislan að
hefjast í Feneyjum