Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 595 1000 Sérferð til Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð g Víetnam . ge tur 20. september í 18 nætur Frá kr. 599.995 eð fyr irv a ÖRFÁ SÆTI LAUS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Fjölmargar stelpur úr 9. bekk grunnskóla tóku þátt í verkefninu Stelpur og tækni í gær. Þær heimsóttu Háskólann í Reykjavík, fengu kynn- ingu á tækninámi og gátu svo kynnt sér ýmis tæknifyrirtæki. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga þeirra á ýmsum möguleikum í tækninámi og -störfum, brjóta niður staðal- myndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem ein- kennir tækniiðnaðinn. Stelpur í 9. bekk kynntu sér tækninám Morgunblaðið/Hari Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það vakti athygli þegar skúlptúrinn „Kanína“ eftir Jeff Koons seldist á 11,3 milljarða króna 15. maí. Það var met fyrir verk eftir listamann á lífi. Gunnar B. Kvaran, safn- stjóri Astrup Fe- arnley-listasafns- ins í Ósló, segir það skýra met- verð fyrir lista- verk að mark- aðurinn hafi stækkað. Áður hafi nær eingöngu hinn vestræni listmarkaður og listheimur ákveðið verðmæti vestrænnar listar. „Nú eru komnir nýir safnarar við Persaflóann og í Kína. Kaupin eru hluti af áformum ríkja við Persa- flóann um að byggja upp menning- artúrisma í framtíðinni. Listaverkin eru orðin mjög skýr fjárfesting- arkostur. Áhættan við kaupin er orð- in sáralítil þegar keypt eru verk eftir listamenn á borð við Pablo Picasso og aðra sem hafa verið viðurkenndir í 50-60 ár. Nú er að myndast sam- staða um nokkra listamenn sem fæddir eru 1930-50,“ segir Gunnar og nefnir David Hockney og Koons. Samstaða um framlagið „Listheimurinn er sammála um að Koons hafi komið með afburða frum- legar hugmyndir um listina og bætt við listahugtakið á skýran hátt,“ segir Gunnar og tekur „Kanínuna“ og styttu Koons af Michael Jakcson og apanum Bubbles sem dæmi. Gunnar keypti Bubbles fyrir safn sitt á sem svarar til 680 milljóna kr. og áætlar að verðið sé nú 8,8 millj- arðar. Bæði verkin séu tímamóta- verk. »32-34 Listaverk að seljast fyrir metverð List Styttan af Jackson og Bubbles var sýnd í Listasafni Íslands 2004.  Auðmenn við Persaflóann safna list Kanína Verkið fór á 11,3 milljarða. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Leynileg hljóðupptaka Báru Hall- dórsdóttur á samræðum þingmanna á veitingastaðnum Klaustri í nóvem- ber á síðasta ári fór í bága við lög um persónuvernd og vinnslu persónu- upplýsinga, samkvæmt úrskurði stjórnar Persónuverndar frá því í gær. Skal Bára eyða upptökunni. Ekki var þó orðið við kröfu lögmanns þingmannanna um að leggja stjórn- valdssekt á Báru vegna upptökunn- ar. Lögmaður fjögurra þingmanna Miðflokksins kvartaði undan hljóð- upptökunni en það voru þeir sem tóku þátt í samræðunum á Klaustri ásamt tveimur þingmönnum sem þá voru í Flokki fólksins. Stjórn Per- sónuverndar hafnaði frávísun- arkröfu lögmanns Báru sem byggð- ist á þeim rökum að hljóðupptök- urnar féllu utan gildissviðs per- sónuverndarlag- anna þar sem þær hefðu farið fram í tengslum við störf Alþingis. Einnig voru þau rök ekki talin eiga við að umrædd vinnsla persónuupplýsinga félli utan gildissviðs laganna þar sem þær hefðu einvörðungu verið unnar í þágu fréttamennsku. Taldi stjórn Persónuverndar að þegar litið væri til tímalengdar upptökunnar, sem stóð í fjórar klukkustundir, hefði hún falið í sér rafræna vöktun. Ekki sé hægt að líta á slíka vöktun með leynd í þetta langan tíma þannig að hún falli undir fréttamennsku. Lögmaður þingmanna Miðflokks- ins krafðist þess að lögð yrði stjórn- valdssekt á Báru vegna brota henn- ar. Stjórnin taldi ekki efni til þess. Þótt upptakan færi úr hófi fram var talið rétt að líta til skýringa Báru. Nefnt er að hún hafi tekið samræð- urnar upp þar sem hún hafi talið um- mæli í þeim hafa þýðingu í ljósi stöðu þátttakenda sem þingmanna og hún hefði verið stödd þar fyrir tilviljun. Þá hefðu samræðurnar orðið tilefni mikillar umræðu í samfélaginu um háttsemi þjóðkjörinna fulltrúa. Hljóðupptökur á Klaustri úrskurðaðar ólögmætar  Persónuvernd telur upptökurnar ólögmæta rafræna vöktun Bára Halldórsdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ríkinu ber að greiða fyrrverandi sameigendum sínum að hverasvæð- inu Geysi í Haukadal um 1,2 millj- arða króna, með vöxtum og verðbót- um, samkvæmt yfirmati sem gert var á verðmæti eignarinnar. Er það svipað mat og kom út úr upphaflegu mati en ríkið vísaði því til yfirmats. Ríkið gerði samning við meðeig- endur sína að hverasvæðinu Geysi í Haukadal síðla árs 2016 um kaup á þeirra hlut. Ríkið átti um þriðjung þeirra tæplega 20 hektara sem eru innan girðingar um hverasvæðið, þar á meðal Geysi sjálfan, og land- eigendur tvo þriðju. Þar sem ekki náðist samkomulag um verð var ákveðið að fela dómkvöddum mats- mönnum að ákvarða kaupverðið. Matsmennirnir, einn frá hvorum aðila og oddamaður, mátu verðið um 1,1 milljarð króna. Ríkið vísaði matinu til yfirmats þar sem tveir matsmenn voru frá hvorum aðila og oddamaður sem þeir sammæltust um. Niðurstaða yfirmatsins var nánast sú sama og undirmatsins en fer í 1,2 milljarða með vöxtum og verðbótum, samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins. Málinu lokið eftir langt þref Garðar Eiríksson, formaður Landeigendafélags Geysis, gat ekki staðfest tölurnar nákvæmlega, þeg- ar eftir var leitað. Hann segir að eftir sé að fara yfir niðurstöðurnar með lögmönnum og að leggja mats- gerðina fyrir fund í félaginu. Garðar segir að hlutverk mats- manna hafi verið að finna sann- gjarnt verð fyrir þennan eignarhlut. Það hafi þeir gert eftir bestu getu. „Ég tel að allir landeigendur séu sáttir við að komin er niðurstaða í málið. Hún gildir og við hana verð- ur unað. Þar með eru komin lok í þetta mál eftir áratuga þref og þjóðin á þetta svæði allt,“ segir Garðar. Fulltrúar landeigenda og odda- maður stóðu að niðurstöðunni gegn fulltrúum ríkisins. Verð Geysissvæðis ákvarðað  Ríkið skal greiða 1,2 milljarða fyrir kaup á tveimur þriðju hlutum hverasvæðisins við Geysi í Haukadal  Sáttir við að niðurstaða er fengin segir fulltrúi landeigenda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.