Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 51
MINNINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
✝ Lúlla MaríaÓlafsdóttir
fæddist í Keflavík
22. júní 1934. Hún
lést 24. apríl 2019.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Berg-
steinn Ólafsson skip-
stjóri, f. 29. október
1911, d. 14. mars
1976, og eiginkona
hans Guðlaug
Einarsdóttir hús-
móðir, f. 20. apríl 1905, d. 2. mars
1965.
Systkini Lúllu Maríu eru: 1)
Guðrún Ólafía Guðný, f. 20.
nóvember 1929, d. 28. júlí 2010, 2)
Bergþóra Hulda, f. 9. júlí 1932, d.
22. ágúst 1939, 3) Jóna Þuríður, f.
8. mars 1937, 4) Ólafur Berg-
dóttur, f. 1981, Írisi Óskarsdóttur,
f. 1987, Evu Óskarsdóttur, f. 1988,
3) Bára, f. 22. maí 1966, sambýlis-
maður hennar er Stefán Guð-
jónsson. Börn Báru eru, Bylgja Sif
Valsdóttir, f. 11. febrúar 1993,
Hafþór Valsson, f. 2. júní, Ægir
Freyr Valsson, 13. mars 2004, 4)
Linda, f. 4. september 1972, eigin-
maður hennar er Garðar Már
Garðarsson og eiga þau eitt barn
saman, Darra Má Garðarsson, f.
23. júlí 2002, auk þess á Linda
Ingólf Andra Ágústsson, f. 1. apríl
1996, og Garðar á Inga Þór Garð-
arsson, f. 10. júní 1992. Saman
eiga Lúlla María og Ingólfur 11
barnabarnabörn.
Lúlla María vann margvísleg
störf um ævina, meðal annars
vann hún í Tryggvaskála á Sel-
fossi þar sem hún kynntist eigin-
manni sínum. Hún var heimavinn-
andi húsmóðir, vann í bakaríi og
við heimilishjálp.
Útför Lúllu Maríu fór fram 7.
maí 2019 í kyrrþey að ósk hinar
látnu.
steinn, f. 21. septem-
ber 1940, d. 28.
september 2014, 5)
Bergþóra Hulda, f.
13. nóvember 1942,
6) Sólveig, f. 20. jan-
úar 1926, d. 15. júlí
2018.
Eftirlifandi eigin-
maður Lúllu Maríu
er Ingólfur Bárð-
arson og gengu þau
í hjónaband 31. des-
ember 1955. Börn þeirra eru: 1)
Guðlaug Erla, fædd 13. desember
1953, og á hún eitt barn, Guð-
mund Þorvaldsson, f. 10. maí
1973, 2) Hulda, fædd. 12. júlí 1960,
eiginmaður hennar er Óskar Lúð-
vík Högnason og eiga þau þrjú
börn, Guðbjörgu Ingunni Óskars-
Ömmu Lúllu, eins og við köll-
uðum hana alltaf, verður sárt
saknað. Það var alltaf gott að
koma á Sigtúnið til ömmu og afa
þar sem var tekið vel á móti okk-
ur með miklu knúsi.
Það var gaman að ræða við
ömmu um hin ýmsu mál og hún
sagði skemmtilegar ferðasögur
af þeim afa.
Amma og afi héldu ófá mat-
arboðin þar sem vel var veitt í
mat og drykk, mikið hlegið og
alltaf skemmtilegt að mæta.
Okkur eru minnisstæð öll þau
skipti þegar kominn var tími til
að kveðja þar sem amma stóð
lengi úti á tröppum og veifaði á
eftir okkur þar til við hurfum úr
augsýn.
Amma og afi ferðuðust mikið
saman bæði innanlands og er-
lendis. Seinni árin dvöldu þau yf-
ir veturinn í sólinni á Spáni þar
sem þau nutu lífsins saman. Þrátt
fyrir allar þeirra ferðir gleymdist
aldrei að koma með eitthvað fal-
legt heim fyrir barnabörnin og
síðan barnabarnabörnin.
Amma var stolt af sínu fólki og
óspör á hrósið við okkur systur.
Hún hafði áhuga á því sem við
tókum okkur fyrir hendur og
veitti okkur mikla athygli. Hún
bauð sig til að mynda óhrædd
fram sem hármódel þegar Inga
var að læra hárgreiðslu og var
alltaf uppörvandi og jákvæð þrátt
fyrir misjafnar útkomur.
Síðastliðin ár átti amma við
erfið veikindi að stríða. Alltaf
fannst okkur samt eins og hún
kannaðist við okkur og að henni
þætti gott að fá okkur í heimsókn
og áttum við góðar stundir undir
lokin þar sem hún naut þess að
halda í hendurnar á langömmu-
börnunum.
Hvíl í friði, elsku amma Lúlla,
og takk fyrir allar dýrmætu sam-
verustundirnar.
Þínar ömmustelpur,
Ingunn, Íris og Eva.
Tengdamóðir mín fyrrverandi
hún Lúlla kvaddi þetta líf í faðmi
fjölskyldunnar á Sjúkrahúsinu á
Selfossi 24. apríl eftir erfið veik-
indi síðustu ár.
Það má segja að margt hafi
breyst í lífi ungs sveitadrengs
þegar hann fór að athuga með
stelpurnar á Selfossi og kynntist
rauðhærðri tápmikilli stúlku sem
leiddi til kynna af fjölskyldunni í
Sigtúni 19. Þau kynni standa enn
þó að sambandið við rauðhærðu
stúlkuna hafi rofnað.
Á seinni árum hef ég hugsað
að sennilega hafi Lúlla tekið mér
meira sem syni en tengdasyni því
dæturnar voru fjórar heima og ég
fyrsti strákurinn inn á heimilið,
sem var ofdekraður af tengdó og
fékk meira að segja kokteilávexti
með jólaísnum í staðinn fyrir
jarðarber, sem mér líkaði ekki
vel við í þá daga.
Lúlla mín var ekki alltaf mjög
málgefin og ókunnugu fólki vildi
hún átta sig vel á áður en hún
sneri sér að því. Ég tel að ætíð
hafi ég átt stað í hjarta hennar
því á seinni árum þegar ég var
kominn með aðra fjölskyldu vildi
hún kynnast henni og spurði
ávallt frétta af högum mínum og
fjölskyldu minnar er við hittumst
yfir kaffibolla.
Ég á margar góðar minningar
frá Sigtúninu, frá Kanaríeyjum
og úr sveitinni. Lúlla var Kanar-
ístelpa og þar naut hún sín vel
með bónda sínum, fylgdi honum á
golfvellinum og tjúttaði við hann
fram á rauða nótt. Já, það þurfti
hörkuskvísu til að fylgja Ingólfi
Bárðarsyni eftir en það gerði
hún, þó kannski stundum með
svona smá tuði eins og gerist og
gengur í líflegu, löngu og farsælu
hjónabandi.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst Lúllu og fjölskyldu henn-
ar, sáttur við að bið hennar eftir
hvíldinni er nú lokið.
Lífið heldur áfram, Ingólfur,
og það er sumar fram undan. Það
er þinn tími.
Samúðarkveðja,
Holli og fjölskylda.
Þorvaldur Guðmundsson.
Lúlla María
Ólafsdóttir
✝ Margeir Ing-ólfsson fæddist
á Fáskrúðsfirði 16.
desember 1928.
Hann lést 10. maí
2019.
Margeir var son-
ur hjónanna Ing-
ólfs Þórarinssonar
og Klöru Sveins-
dóttur, Melbrún
Fáskrúðsfirði. Þar
ólst hann upp
ásamt þremur systrum, þeim
Þórunni Ingólfsdóttur sem er
látin, Stefaníu Ingólfsdóttur
sem einnig er látin og Gyðu
Ingólfsdóttur.
Margeir kvæntist 16. desem-
ber 1951 Elsu Birgitt Guð-
steinsdóttur leiðsögumanni, f.
16. desember 1932, d. 26. októ-
ber 2018. Börn þeirra eru: 1)
Ingólfur Steinar
Margeirsson, sam-
býliskona Linda
Húmdís Hafsteins-
dóttir. Börn hans
eru Margeir Stein-
ar, Gísli Steinar,
Harpa, Þorbjörg
Elsa og Ingólfur
Steinar. 2) Gyða
Hafdís Margeirs-
dóttir, BA í ensku,
gift Páli Árnasyni
viðskiptafræðingi. Börn hennar
eru Haraldur Kristinn, Arnar
Steinn og Alexandra Bergdís.
3) Erla Margrét Margeirsdóttir.
Dætur hennar eru Rut og Rakel
Ragnarsdætur. Alls eru afkom-
endur Margeirs orðnir 32.
Margeir flutti til Reykjavíkur
árið 1945 til þess að mennta
sig. Hann fór í Iðnskólann og
útskrifaðist þaðan sem húsa-
smiður árið 1949 og var meist-
ari hans Guðjón Vilhjálmsson.
Margeir fékk meistararéttindi
árið 1952. Hann kom að smíði
fjölmargra bygginga á höfuð-
borgarsvæðinu. Árið 1969
stofnaði Margeir byggingafyr-
irtækið Dagfara ásamt þeim
Þór Kristinssyni, Sigurgeiri
Gíslasyni, Sverri Gunnarssyni
og Gunnari Lárussyni. Dagfari
byggði meðal annars Kjarvals-
staði. Þau hjónin byggðu sér
þrisvar sinnum hús fyrir fjöl-
skylduna. Fyrsta húsið var Mel-
gerði 17 í Kópavogi, síðan
byggðu þau húsið Faxatún 11 í
Garðabæ og loks Engimýri 12 í
Garðabæ. Árið 1995 keyptu þau
sér hús á Spáni, þar dvöldu þau
í ellefu ár, vetrarlangt. Einnig
byggðu þau sér sumarbústað í
Munaðarnesi.
Útför Margeirs verður frá
Garðakirkju í dag, 23. maí
2019, klukkan 15.
Elsku pabbi okkar kvaddi eftir
mjög stutt veikindi. Hann er nú
kominn til mömmu sem hann
kvaddi með miklum trega fyrir
hálfu ári, eftir sjötíu ára sambúð.
Þótt árin hans hafi talið níutíu var
hann eins og unglamb, var vel inni
í allri þjóðfélagsumræðu. Þau áttu
sumarbústað í Munaðarnesi þar
sem við fjölskyldan áttum saman
margar gleðistundir. Síðastliðið
sumar var hann óstöðvandi við að
huga að öllu því viðhaldi sem bú-
staðurinn þarfnaðist og þetta vor-
ið var hann byrjaður að klippa og
snyrta gróðurinn. Í vetur pantaði
hann sér nýjan Citroën-jeppa og
beið spenntur eftir afhendingu
sem átti að verða í júní.
Við ólumst upp við að hlusta á
„fransarann“ í útvarpinu, en
pabbi hlustaði á franskar útvarps-
stöðvar á langbylgjunni þar sem
djassinn var í hávegum hafður.
Hann sótti mjög oft djasstónleika
og við systkinin lærðum að meta
þá tónlist. Núna síðast mætti
hann á alla viðburði á Djassdög-
um í Garðabæ. Honum auðnaðist
líka sú gæfa að fara á tónleika hjá
bæði Louis Armstrong og Ellu
Fitzgerald. Fáskrúðsfjörður átti
hug hans og hjarta. Öll sumur var
farið til Fáskrúðsfjarðar að hitta
ömmu Klöru í Melbrún og systur
hans sem þar bjuggu. Þetta var
alltaf tilhlökkunarefni og fundum
við borgarbörnin hversu gott
þetta frelsi var sem pabbi ólst upp
við og dásamaði. Fjaran, bryggj-
an og fjöllin, þetta heillaði allt.
Ferðalög voru þeirra líf og yndi
bæði innanlands og utan. Fyrst
var notast við tjald, seinna keyptu
þau sér tjaldvagn og síðan var
keyptur húsbíll. Á honum ferðuð-
ust þau bæði innanlands og utan.
Fyrir okkur börnin voru þessar
útilegur og ferðalög hreint ævin-
týri og erum við þeim ævarandi
þakklát fyrir að hafa kynnt okkur
töfra Íslands. Árið 1995 keyptu
þau hús á Spáni þar sem þau
dvöldu veturlangt í ellefu ár.
Þangað þótti okkur börnunum og
barnabörnunum gott að koma og
njóta með þeim alls þess sem
Spánn hefur upp á að bjóða.
Pabbi, smiðurinn, tók húsið allt í
gegn, smíðaði sólskála og bílskúr
fyrir Citroëninn. Árið 2000 eign-
uðust þau sumarbústað í Munað-
arnesi, sem leiddi til þess að vetr-
ardvölin á Spáni varð sífellt
styttri því að þau kusu frekar að
vera hér heima, sérstaklega
vegna þess að barnabarnabörnum
fjölgaði ört. Síðustu tíu árin
bjuggu þau að Maltakri 7 í Garða-
bæ. Ekkert dró úr ferðagleðinni
hjá þeim þrátt fyrir að árin færð-
ust yfir og fóru þau í ótal siglingar
með skemmtiferðaskipum.
Pabbi var mörgum kostum
gæddur og var mikill fjölskyldu-
maður. Hann hafði mikla ánægju
af því að elda og var listakokkur.
Hann gerði hverja máltíð að
veislumat.
Pabbi var maður fárra orða en
þegar hann lagði eitthvað til mál-
anna voru það gullkorn. Hann var
okkar klettur í lífinu og æðruleysi
hans er eiginleiki sem við varð-
veitum í hjörtum okkar.
Nú hefur okkar ástkæri pabbi
þegið hvíldina og eftir sitjum við
sem elskum hann og þökkum hon-
um fyrir allt sem hann hefur gefið
okkur.
Hvíl í friði, elsku pabbi, þín
elskandi börn,
Ingólfur, Gyða og Erla.
Meira: mbl.is/minnigar
Margeir Ingólfsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Emilía Jónsdóttir,
félagsráðgjafi
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÖF HARALDSDÓTTIR,
Klapparholti 12, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 13. maí á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 27. maí klukkan 13.
Sigurborg Skjaldberg Baldur Snæhólm Einarsson
Garðar Olgeirsson Anna Ipsen
Júlía Magnúsdóttir Ingibergur Gunnar Jónsson
Sæunn Magnúsdóttir Haraldur Sigurðsson
Bjarni Magnússon Ólína Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR S. MAGNÚSSON,
viðskiptafræðingur,
Æsufelli 2, Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 4. maí.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
María Sigríður Ágústsdóttir
Margrét Haraldsdóttir Conny Larsson
Ágúst Haraldsson Helga Sigurðardóttir
Anna María, Hannes Axel
María Sigríður, Margrét Lóa
Edda María
Okkar ástkæri
GUNNAR MAGNÚSSON,
áður til heimilis í Litlagerði 14,
Reykjavík,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 5. maí,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 29. maí klukkan 13.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Minningarsjóð Hrafnistu.
Didda Gíslína Þórarinsdóttir
Guðbjörg Gunnarsdóttir Ólafur Guðjónsson
Arnar Þór Gunnarsson Ester Guðbjörnsdóttir
Harpa Gunnarsdóttir Guðmundur Baldursson
Magnús Gunnarsson Margrét B. Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku hjartans vinurinn minn, pabbi okkar,
tengdapabbi og afi,
GUÐMUNDUR ÖRN NJÁLSSON,
vélstjóri,
Fossatúni 4, Akureyri,
er látinn. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 27. maí klukkan 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu
Akureyrar, Krabbameinsfélag Akureyrar og Ljósið.
Guðrún Birna Jóhannsdóttir
Dagný, Sigríður Ásta, Anný Rós
Sjöfn og Katrín Lind Guðmundsdætur
tengdasynir og afabörn
MAGNÚS HELGI ÓLAFSSON,
sjúkraþjálfari og vinnuvistfræðingur,
lést á líknardeild Landspítalans 20. maí.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 27. maí klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Hildur Bergþórsdóttir
Ólafur Magnússon Sæbjörg I. Richardsdóttir
Lára Magnúsdóttir Tim Miller
Rúnar Þór Magnússon Gerda Klotz
Kristinn Þeyr Magnússon