Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
Söngkonan Hera Björk fór fyrir
Íslands hönd í Eurovision-
keppnina árið 2010. Hún fór til
Ísraels og fylgdist með undan-
úrslitakvöldinu og lýsti stemning-
unni í kringum keppnina í morg-
unþættinum Ísland vaknar á
K100. Það kom henni talsvert á
óvart hversu margir muna eftir
henni úr keppninni 2010, en aðdá-
endur keppninnar gengu margir
að henni og hrósuðu henni fyrir
sönginn fyrir níu árum og lýsti
hún því skemmtilega í viðtalinu.
Hera hefur síðan árið 2009 verið
velgjörðarsendiherra SOS Barna-
þorpanna og heimsótti hún Barna-
þorp bæði í Ísrael og Palestínu
meðan á dvöl hennar ytra stóð.
Hún segir að á báðum stöðum sé
unnið mjög gott starf með börnum
sem hafi mörg hver átt mjög erfitt
og dramatískt líf. „Börnin sem
þarna búa koma mörg hver frá
sundruðum fjölskyldum, bæði
vegna stríðsástandsins og oft
vegna líkamlegs og kynferðislegs
ofbeldis.“ Að sögn Heru vinnur
SOS með stjórnvöldum, en sam-
tökin taka börnin að sér frá 6 ára
aldri og leiða þau í gegnum lífið til
tuttugu og þriggja ára aldurs.
Hún lýsir því að í Palestínu sé
sérstaklega haldið utan um ein-
staklingana eftir að þeir hafi náð
átján ára aldri. „Þá detta krakk-
arnir aftur út í samfélagið og þar
eru fyrir oft mjög reiðir og sárir
einstaklingar og því auðvelt fyrir
krakkana að detta í það sama
far,“ sagði Hera og bætti við að
þessi tími reyndist einstakling-
unum oft mjög erfiður og því mik-
ilvægt að fylgja þeim eftir.
SOS Barnaþorpin leggja ríka
áherslu á að ala upp einstaklinga
sem eru víðsýnir og hafa ríka
samkennd með mismunandi kyn-
þáttum og öðrum þjóðarbrotum,
að sögn Heru. Í viðtalinu nefndi
hún hið mikla kynjamisrétti sem
ríkir í Palestínu og er unnið mark-
visst gegn því í starfi SOS þar í
landi. „Þarna sló mitt íslenska
femíníska hjarta mjög ótt og títt,“
sagði Hera og greinilegt var að
henni eru málefni Barnaþorpanna
og framtíð barnanna mjög hug-
leikin.
Viðtalið við Heru Björk var
talsvert ítarlegra og má sjá það
og heyra á heimasíðunni
www.k100.is.
islandvaknar@k100.is
Díva Hera á sviði í Eurovision-keppninni árið 2010. Í heimsókn Hera Björk heimsótti fólk í SOS-þorpunum.
Skellti sér á
Eurovision
í leiðinni
Börnin sem búa í SOS Barnaþorpunum hafa átt
erfitt líf. Hera Björk söngkona segir að verkefni
Barnaþorpanna sé að leiða börnin í gegnum
æskuna og skila þeim heilsteyptum út í lífið.
Faðmlag Hera Björk hefur verið velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna
frá 2009. Hér fær hún faðmlag og mynd frá lítilli dömu úr einu þorpinu.
Ferðafélagar Hera Björk ferðaðist víða í heimsókninni og er hér með íslenskum og erlendum félögum.
FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG
FUNDARAÐSTAÐA UM ALLT LAND
– ÁRSHÁTÍÐIR, SÖLUFUNDIR,
NÁMSKEIÐ, VEISLUR OG VIÐBURÐIR –
Nánari upplýsingar: islandshotel.is/fundir
Bókanir: fundir@islandshotel.is