Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 NEXØ Sumarborð með steyptri borðplötu og svörtum álfótum. 200x90 cm. 79.900 kr. Nú 63.920 kr. POGLI Sumarstóll. Ýmsir litir. 11.900 kr. Nú 9.520 kr. Fimmtudag - sunnudags Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu ef verslað er fyrir 59.000 kr. eða meira og greitt samdægurs 20-30% af allri sumarvöru Raflistahátíðin Raflost hefst í kvöld í Mengi og stendur yfir í þrjá daga. Mun þar raf- og tölvutækni fá að njóta sín listrænt í víðu samhengi og heiðurgestur hátíðarinnar verð- ur bandaríski raflistamaðurinn Jeffrey Alan Scudder sem kennir sig við Radical Digital Painting. Há- tíðin er haldin í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Þriggja daga raf- listahátíð í Mengi FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Um 170 Íslendingar taka þátt í Smáþjóðaleikunum sem hefjast í Svartfjallalandi á mánudaginn. Þar verður keppt í tíu keppnisgreinum og þar af verða íslenskir íþrótta- menn þátttakendur í átta. „Smá- þjóðaleikarnir eru fjölmennasta íþróttamót sem Íþrótta- og ólymp- íusambandið sendir keppendur á,“ segir Örvar Ólafsson, aðalfar- arstjóri íslenska hópsins. Leikarnir eru haldnir annað hvert ár. »59 Fjölmenn íslensk sveit send á Smáþjóðaleika ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Franski píanistinn Jean-Yves Thi- baudet leikur einleik í píanókonsert nr. 3 eftir James MacMillan á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 undir stjórn Osmos Vänskäs. Á efnisskránni er einnig Ciel d’hiver eftir Kaiju Saar- iaho og sinfónía nr. 3 eftir Ludwig van Beethoven. Thi- baudet frumflutti pí- anókonsert MacMill- ans 2011 og er verkinu lýst sem lit- ríku og stórbrotnu. Sinfónía Beethovens þykir eitt af tíma- mótaverkum tón- listarsögunnar. Thibaudet leikur kons- ert James MacMillans Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þúsundþjalasmiðurinn Þórhallur Sigurðsson er engum líkur enda hefur listamaðurinn farið í fleiri hlutverk en gengur og gerist í listasögunni. Annað kvöld klukkan 20 opnar hann mynd- listarsýningu í Smiðjunni Listhúsi, Ár- múla 36 í Reykjavík, og í kjölfarið fer hann til Svíþjóðar til þess að taka þátt í Evrópumóti öldungalandsliða í golfi. Söngurinn er svo aldrei langt undan frekar en önnur hlutverk á sviði. „Það eru að verða tvö ár frá síðustu sýningu, ég hef verið duglegur að mála síðan og þegar Bjarni Sigurðsson í Smiðjunni Listhúsi vildi endurtaka leikinn sló ég til,“ segir listamaðurinn. Hann sýnir 20 verk eins og síðast, en á sýningunni 2017 seldust allar myndir á opnunarkvöldinu. „Það er engin ástæða til þess að hætta þegar vel gengur. Ég sá að myndirnar féllu í kramið og því hélt ég áfram á sömu braut.“ Laddi segir að myndirnar hafi breyst, séu þróaðri en áður og stærri. „Þetta eru áfram karakterar, fígúrur, sem eru ekki alveg mennsk- ar en mjög sérstakar.“ Hann leggur áherslu á að þær eigi ekkert skylt við persónurnar sem hann hafi skapað á sviði. „Þetta eru álfarnir í Hellisgerði í Hafnarfirði, eins og ég sá þá, þótt ég hafi ekki beint séð þá. Ég hef kynnst þeim betur og þeir gætu litið svona út.“ Alltaf að teikna Myndsköpun hefur fylgt Ladda frá barnsaldri. „Ég hef alltaf verið teiknandi og ætlaði mér að verða myndlistarmaður en myndlistin varð að víkja vegna þess að við Halli bróð- ir urðum allt í einu svo vinsælir skemmtikraftar að annað komst ekki að.“ Áréttar samt að nóg sé að gera á öllum vígstöðvum og ekkert lát á skemmtanahaldi. „Ég er eiginlega alltaf að bíða eftir því að allt verði bú- ið einn daginn, sem gerist á end- anum, en ómögulegt er að segja hve- nær.“ Upp úr 1970 fór Laddi á kvöld- námskeið í teikningu í Myndlista- og handíðaskólanum. „Ég ætlaði að halda áfram en mátti ekki vera að því.“ Þegar hann fór af stað með sýn- inguna Laddi sextugur segir hann að konan hafi byrjað að mála og þá hafi hann líka tekið fram penslana á ný. „Síðan hefur þetta þróast,“ segir hann. Myndlistin tekur æ meiri tíma hjá Ladda og hann telur að hún taki við af öðru í ellinni. „Ég hef áhuga á að læra meira,“ segir hann og bætir við að frá áramótum hafi hann verið á vinnustofu seinni part dags og málað. „Ég er ekki mikill morgunhani en nota þó morgnana á sumrin helst til þess að æfa mig í golfi,“ segir Laddi. Hann hefur stundað golf í yfir 30 ár og er að byrja fjórða árið í landsliði öldunga. „Næst er það Evrópu- keppnin í júní,“ segir hann en sýn- ingin stendur til 3. júní. Morgunblaðið/Árni Sæberg Listmálarinn Þórhallur Sigurðsson, Laddi, við nokkur verka sinna en hann opnar málverkasýningu á morgun. Fígúrur Ladda eru ekki alveg mennskar  Þórhallur Sigurðsson opnar myndlistarsýningu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.