Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
svipað og ég var að skrifa um í
Morgunblaðinu á sínum tíma þótt
auðvitað höfum við fjallað um
keppni þar líka. Mér hefur alltaf
þótt mest gaman að skrifa um al-
menna hestamennsku, þjálfun,
heilsu hesta, umhirðu og reið-
mennsku. Svo vill þjóðfræðingurinn
einnig komast að og ég lauma inn
molum með þjóðlegum fróðleik sem
tengist hestamennsku,“ segir Ásdís.
Ánægð með viðtökurnar
Hún segir auðvelt að finna efni til
að skrifa um. Segist vera með lang-
an lista til að leita í. Sumt taki
lengri tíma í vinnslu en annað. Tek-
ur hún fram að ágætt sé að hlaða
ekki of miklu efni inn í einu, þetta
séu almennt greinar sem vel geti
staðið um tíma. Þá segir hún það
kost við vef sem þennan að efnið
standi áfram og hægt að skoða það
aftur síðar ef áhugi vaknar.
Ásdís fékk styrk úr Uppbygging-
arsjóði Vesturlands til að greiða
stofnkostnað. Hugmyndin er að
bjóða auglýsingar til að reka vefinn.
Hún er ánægð með viðtökurnar.
Tugir þúsunda Íslendinga stunda
hestamennsku sér til ánægju. Hags-
munir þeirra vilja gleymast í um-
ræðu um keppni. „Ég hef fengið
mjög jákvæð viðbrögð. Vefurinn er
töluvert mikið lesinn og margir hafa
sagt að mikil þörf sé fyrir þetta
efni. Einstaka greinum hefur verið
deilt mikið. Ég vona að þessi vefur
vinni sér sess í flórunni, segir Ás-
dís.“
Skemmtilegt að skrifa um hesta
Ásdís Haraldsdóttir heldur úti fræðsluvef um hestamennsku Segir að vantað hafi upplýsingar
fyrir almenna hestamenn Hagsmunir þeirra vilji gleymast í umræðu um mót og keppni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Álftanes á Mýrum Ásdís Haraldsdóttir með gamla reiðhestinn, Gust, og
hundinn Magna sem hleypur í kringum þau. Álftaneskirkja sést í baksýn.
„Ég er aðallega
að gera þetta
fyrir sjálfa mig.
Það skemmtileg-
asta sem ég geri
er að skrifa um
hesta og hesta-
mennsku,“ segir
Ásdís Haralds-
dóttir um vinn-
una við að halda
úti vefnum hestamennska.is.
Þegar hún skrifaði sem mest
um hestamennsku í Morgunblaðið
var almennt mun meiri umfjöllun
um hesta og keppni. Morg-
unblaðið var á tímabili með tvær
síður um hesta vikulega og oft
meira. Gefin voru út sérhæfð
hestablöð og -bækur. Nú eru
hestafréttirnar aðallega á frétta-
vefjum.
Ásdís hefur verið í hesta-
mennsku frá unga aldri. Hún var
aðeins fimm ára þegar hún byrj-
aði að ríða út. „Ég fluttist í sveit-
ina til að geta haft hestana nær
mér. Hestar eru mínar ær og kýr.“
Á þeim 30 árum sem hún hefur
búið á Álftanesi hafa oft verið
margir hestar en þeim hefur farið
fækkandi á síðustu árum. Hún
byggði gott hesthús og er nú að-
eins með nokkur hross til eigin
brúks. „Ég þekki margt hestafólk
og vinahópurinn er duglegur að
koma hingað til að ríða út.“
Paradís fyrir menn og dýr
Ásdís þrífst vel í sveitinni, ekki
síst í vori eins og í ár. „Það er
ekki oft logn á Álftanesi en í vor
hafa komið margir logndagar.
Þegar veðrið er svona gott tekur
maður betur eftir fuglunum.
Þetta er paradís fyrir menn og
dýr.“
Henni finnst gott að búa í litlu
samfélagi þar sem allir þekkjast.
Svo sé alltaf eitthvað um að vera.
Vegirnir á Mýrunum eru það eina
sem hún kvartar undan.
Hestarnir eru mínar ær og kýr
ÁSDÍS HARALDSDÓTTIR NÝTUR SÍN Í SVEITINNI
Ásdís
Haraldsdóttir
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FYRIR BÍLINN
ENDURHEIMTIR
UPPRUNALEGT ÚTLIT OG LIT
VERNDAR
FYRIR UMHVERFISÁHRIFUM
AUÐVELT
AÐ BERA Á FLÖTINN ENDIST LENGI
GÚMÍ
NÆRING
FYRIR DEKK
Atvinna
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér fannst vanta fræðsluvef fyrir
almenna hestamenn og fólk sem
stundar útreiðar,“ segir Ásdís Har-
aldsdóttir, þjóðfræðingur og blaða-
maður á Álftanesi á Mýrum, sem
skrifar og heldur úti vefnum hesta-
mennska.is.
Stofnun hestamennskuvefjarins á
sér allnokkurn aðdraganda. Ásdís
vann áður fyrr við skrif um hesta-
mennsku fyrir Morgunblaðið og
Eiðfaxa. „Ég hef lengi séð að það
vantaði vef fyrir almenna hesta-
menn. Axel Jón Fjeldsted, graf-
ískur hönnuður, útbjó fyrir nokkr-
um árum vef á léninu Íslandshestar
sem aldrei hafði farið í loftið. Ég sá
tækifærið en þar sem ég var í miðju
meistaranámi í þjóðfræði hentaði
tímasetningin ekki,“ segir Ásdís.
Vantaði verkefni
„Eftir námið vantaði mig verkefni
og datt þá í hug að skoða vefinn.
Hann var þá enn óseldur svo ég
keypti hann eftir talsverða umhugs-
un. Raunar fannst mér nafnið ekki
passa mér og þegar fyrirtæki fal-
aðist eftir léninu seldi ég það í sam-
ráði við Axel. Það var þó ekki fyrr
en ég hafði leitað að lausu léni undir
hestum og hrossum og öllu sem því
tengist, en án árangurs. Þá datt
mér í hug að athuga með hesta-
mennska.is sem ég taldi að hlyti að
vera frátekið. Svo reyndist ekki
vera en þetta er einmitt heiti sem
nær yfir það sem ég vildi gera. Axel
tók að sér að hanna nýjan vef og
hefur verið mér ómetanleg hjálpar-
hella,“ segir Ásdís. Vefurinn fór í
loftið í janúar á þessu ári.
Ásdís setur sér það markmið að
vera með vandaðan vef þar sem öllu
efni er ritstýrt. Ætlunin er að fjalla
um hesta og hestamennsku í sem
víðustum skilningi. Hún sleppir um-
fjöllun um kynbótasýningar og
keppni enda er það gert á öðrum
vettvangi. „Þetta er í raun og veru