Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 ✝ Málfríður Sig-urðardóttir fæddist á Ísafirði 16. ágúst 1941. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 11. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðný Runólfsdóttir, f. 3. október 1913, d. 2. janúar 1980, og Sigurður Þórðarson endurskoð- andi, f. 19. ágúst 1912, d. 3. jan- úar 1979, Uppeldissystir henn- ar er Þórey Sævar Sigur- 25. ágúst 2000. Börn Málfríðar og Marísar eru Sigurður, f. 31. desember 1959, eiginkona hans er Kristín Auður Jónsdóttir, f. 17. janúar 1962. Ingibjörg Guðný, f. 30. apríl 1963, eigin- maður hennar er Örn Benedikt Sverrisson, f. 12. júlí 1957. Mar- grét Linda, f. 6. apríl 1969, eiginmaður hennar er Krist- berg Snjólfsson, f. 8. júní 1964. Viðar Þór, f. 16. júlí 1976, eig- inkona hans er Tonje Tellefsen, f. 6. desember 1978. Barnabörnin eru Kristófer Már, Ólafur, Petrún, Jóhann Helgi, Bjarni Freyr, Alma Glóð, Lilja Björt, Magnús Orri, María Rós, Ástrós og Mats. Barna- barnabörn eru Þórhallur Ingi, Lilja Rós og Ísold Emma. Útförin fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 23. maí 2019, klukkan 13. björnsdóttir, f. 30. júlí 1944, maki hennar var Örn Ás- geirsson, f. 4. júní 1942, d. 24. maí 2007. Málfríður kvæntist eftirlif- andi eiginmanni sínum Marís Hvannberg Gísla- syni 4. júní 1960. Foreldrar hans voru Gísli Björgvin Magnússon, f. 30. maí 1905, d. 27. janúar 1977, og Petrún Anna Dorothea Jónsdóttir, f. 30. ágúst 1909, d. Elsku mamma, það er undar- legt að hugsa til þess að þú hafir yfirgefið jarðlífið, það er þung- bært að geta ekki hringt í þig eða hitt þig lengur og knúsað þig. Við vissum svo sem í hvað stefndi síð- ustu mánuði og auðvitað reyndum við að loka augunum fyrir þeirri staðreynd. Í gegnum veikindi þín barðist þú eins og hetja en þú barðist við krabba í 10 ár, á tímabili héldum við að þú hefðir komist yfir það en sú varð ekki raunin því hann er stundum lúmskur. Eftir heila- blóðfallið í lok sumars 2018 barð- ist þú áfram eins og ljón því þú vildir geta farið heim á nýja heim- ilið ykkar pabba og þú komst miklu lengra en nokkur læknir sagði að þú myndir nokkurn tíma geta og það lýsir þér vel, þú varst kona sem gafst ekki upp en krabbinn hafði yfirhöndina að lokum. Þú varst uppgefin eftir átta mánaða dvöl á sjúkrahúsi svo lík- lega hefurðu verið hvíldinni fegin og líkami þinn fjötrar ekki lengur sálina sem ég ímynda mér að fljúgi friðsællega í kringum okkur hin sem eftir erum og vaki yfir okkur. Takk fyrir að kenna mér allt sem þú kenndir mér í lífinu, þar til við hittumst seinna mamma, elska þig. Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta barnið sitt; hún býr þar hlýtt um brjóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar (Þorsteinn Erlingsson) Þín Margrét. Eitt getum við vitað sem fæð- umst í þennan heim og það er að við munum yfirgefa hann á ein- hverjum tímapunkti, sá tíma- punktur er ávallt erfiður fyrir þá sem standa manni næst. Ég tel mig einstaklega heppinn með tengdaforeldra, mér var strax tekið sem einum af fjöl- skyldunni. Þegar við bjuggum á Spáni fengum við einstakan tíma með foreldrum okkar beggja, við vor- um það heppin að eyða nokkrum vikum með þeim og áttum við ómetanlegar stundir saman, þyk- ir mér því afar dýrmætt að hafa fengið tíma með þeim öllum. Millý var þá búin að gangast undir aðgerð út af krabbanum en hún lét það ekki stoppa sig, vor- um við Marís einka-ýtustjórarnir hennar þar sem hún var í hjóla- stól. Mér hefur aldrei þótt neitt leið- inlegt að segja frá hvað ég á yndislega konu sem er mér allt. Millý fékk reglulega að vita af því hvað þau hjónin hafi vandað til verka þegar hún var getin og sagðist hún hafa lagt allt sem í hennar valdi stóð til að svo yrði. Millý talaði oft um það við okk- ur hvað við værum yndisleg sam- an og þótti mér ekkert leiðinlegt að segja henni hversu vel giftur ég væri henni Möggu minni en hún var og er hetja okkar beggja. Magga er einstök kona sem stóð vaktina í veikindum mömmu sinn- ar og minnar á sama tíma, jafnvel þó svo að hún sé sjálf að glíma við veikindi. Þó Magga hafi átt erfitt með að komast í gegnum dagana þá lét hún sig alltaf hafa það og var með okkur bæði á herðum sér, þó að það hefði þær afleið- ingar að hún ætti erfiðan dag á eftir. Millý háði erfiða baráttu við krabbamein en það er ekki vinur sem maður vill hafa nærri sér. Hún barðist eins og hetja og ætl- aði sér alltaf að komast heim til Marísar síns en æðri máttarvöld voru á öðru máli. Henni gafst ein- ungis kostur að kíkja nokkrum sinnum í fáar klukkustundir í senn á nýja heimilið sem þau bjuggu sér rétt eftir að hún fékk heilablæðingu. Millý fékk heila- blæðinguna sama dag og ég var á leiðinni með sjúkraflugvél til Sví- þjóðar þar sem ég gekkst undir stóra aðgerð. Þegar áfallið var að koma yfir hana þá sagði hún við Marís að þeir væru komnir til að sækja hana, þar sem þeir ættu að ná í hana frekar en mig. Hún sagðist ekki vita hvernig Magga færi að ef ég myndi ekki lifa aðgerðina af svo hún bauðst til þess að fara í minn stað. Þetta lýsir vel hversu vel hún hugsaði alltaf til mín og hversu yndisleg kona hún var. Millý þurfti að liggja inni á spítala það sem eftir var, það að geta ekki notið þess að vera með vinum og vandamönnum heldur vera rúmföst og þurfa aðstoð við daglegar þarfir átti ekki við hana. Ég komst í gegnum aðgerðina og mætti eins oft og ég mögulega gat til hennar, þá var ekki að spyrja að því að hún hafði meiri áhyggjur af minni heilsu heldur en sinni eigin. En enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, á vel við í þessu tilfelli því að missa náinn aðstandanda sem manni þykir svo vænt um er ávallt erfitt. Við verð- um að læra að lifa við missinn þó hann verði ávallt sár. Ég kveð þig með söknuði, Millý mín, og ég veit að þú munt heilsa upp á mig þegar minn tími kemur. Þinn tengdasonur, Kristberg Snjólfsson. Elsku Millý, það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farin. Þrátt fyrir að við fæddumst ekki inn í fjölskylduna fundum við aldrei fyrir því, þar sem þú tókst okkur strax opnum örmum, við verðum ávallt þakklátar fyrir það. Takk fyrir allar frábæru stund- irnar, elsku amma okkar. Hvíldu í friði. Þínar Alma Glóð og Lilja Björt. Kær vinkona er fallin frá. Við kynntumst Millý í Húsmæðra- skólanum í Reykjavík árið 1957 en þá hófum við allar nám þar saman. Við vorum heila níu mán- uði í skólanum og myndaðist mik- ill og góður vinskapur okkar á milli. Ári síðar eða árið 1958 út- skrifuðumst við og hver hélt sína leið og stofnaði sitt heimili. Vin- skapurinn slitnaði aldrei og eftir útskrift stofnuðum við sauma- klúbb. Við skvísurnar, já við vor- um svo miklar skvísur, hittumst alltaf einu sinni í mánuði og hefur sú skemmtilega samvera staðið í meira en 60 ár. Það var alltaf gaman að vera í kringum hana Millý. Millý var alltaf svo jákvæð og hress og alltaf til í að gera eitt- hvað skemmtilegt. Veikindi hafa hrjáð hana Millý okkar undanfar- in ár en hún reyndi að mæta og hitta okkur þegar heilsan leyfði. Við munum sakna Millýjar okkar, megi minning hennar lifa. Við sendum Marís og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Fyrir hönd saumaklúbbsins, Sóley Sigurjónsdóttir. Málfríður Sigurðardóttir Mín leiðin löng er síðan ég lagði upp í ferð. Ég er ei efnismikið, ekki lengi verð. Vertu fljótur vinur, ég veitt get svör við því sem viltu fá að vita um veðurofsans gný. Mín bíður eitt það besta banamein á jörð, að leysast upp í læðing sem litar tímans svörð. Vertu‘ ei spar að spyrja en spjara vel þinn hug, flýt þér áður feykja mér farvindar á bug. Kannski má heimfæra þetta kvæði, Skýið, eftir Villa Vill, eins og hann var nú oftast kallaður, á þá sem guðirnir elska og deyja ungir og standa ekki veðurofsans gný af einhverju tagi en veðurofsi getur orsakast af mörgu og tekið á sig margar myndir, eins og við vitum öll komið líkt og handalaus maður hafi veifað, svo fljótt getur veður skipast í lofti. Það hefur gengið svolítið þannig á í litla samfélaginu sem ég bý í og hef alið minn aldur, síð- an um jól og það sem af er þessu ári eða jafnvel í allan vetur ef maður fer í víðara samhengi, að sorgin hefur komið hér um eins og veðurofsans gnýr og því miður Rögnvaldur Helgi Guðmundsson ✝ RögnvaldurHelgi Guð- mundsson fæddist 14. nóvember 1978. Hann lést 30. apríl 2019. Útför Rögnvald- ar Helga fór fram 10. maí 2019. dauðann með í för stundum og knúið all harkalega á hjá nágrönnum mínum, vinum og ættingjum og tekið með sér þá sem guðirnir elska svo að djúp skörð eru eftir í samfélag- inu. Í síðustu viku bönkuðu þau upp á hjá mér því þau áttu að taka „litla“ bróð- ur minn frá mér í blóma lífsins án nokkurra aðvarana eða skýringa. Enn er maður í hálfgerðum dofa á þessari viku sem liðin er. Elsku Röggi minn sem hafði allt til brunns að bera og litla stelpu, hana Sigurbjörgu, sem hann hefði vaðið eld og reyk fyrir, litla augasteininn hans. Þessi ljúfi drengur sem vildi allt fyrir alla gera og var á sama tíma lífsglað- ur og hraustur. Því miður hlotn- aðist mér ekki sá heiður að alast upp með honum eða bræðrum mínum þannig að ég kynntist þeim frekar eftir að við komum til vits og ára, en alla tíð verið svo stolt af honum og þeim að eiga, lengi vel í sparisjóði, fjóra bræð- ur og svo seinna meir eina systur að auki, þannig að þótt ég ælist upp ein með mínu fólki átti ég eins og áður sagði systkini og á enn í eins konar sparisjóði. Mér þótti svo vænt um það, elsku Röggi minn, hvað þú vildir rækta sambandið við stóru systur og hafa mig með og mér hefur aldrei dulist væntumþykja þín og ykkar systkina minna til mín þrátt fyrir að alast ekki upp saman og hafðu þökk fyrir það. Ég vildi svo sárt óska að tæki- færi okkar til samveru og fjöl- skyldustunda væri meira, en svona er þetta að maður heldur alltaf að maður hafi nægan tíma en er svo rækilega minntur á það annað slagið að það er ekki gefið. Ég trúi að það hafi komið ein- hverjir að sækja þig og fylgja inn í Draumalandið og gæta þín fyrir okkur, það kom alla vega einhver í fuglsmynd um morguninn inn um gluggann til Halla míns og vakti hann en hvarf svo á braut og sá var pottþétt að láta vita að þín yrði gætt. Elsku hjartans Sigurbjörg frænka mín, Halla, pabbi, systk- ini mín og fjölskyldan öll, megi allar góðar vættir vaka yfir ykk- ur og styðja. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigg. Jónsson frá Prestshólum) Þín stóra systir Guðmunda. Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. (Bragi Valdimar Skúlason) Takk fyrir öll löngu símtölin, ég vildi óska að þú hefðir fengið að upplifa alla þína drauma og þrár. Hvíldu í friði, fallega sál. Sigríður. ✝ Guðný Hösk-uldsdóttir fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík 16. nóvember 1953. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urlands 9. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Höskuldur Jónsson frá Tungu í Bolungarvík, f. 5. júlí 1925, d. 7. sept- ember 1995, og Elín Gísladóttir frá Melhól í Meðallandi, f. 1. september 1927, d. 2. febrúar 1993. Systkini hennar eru Gísli Jón, f. 13. janúar 1955, maki Sigrún Einarsdóttir; Ragn- ar, f. 10. maí 1957, d. 19. maí 2012, maki Guðrún Gunn- arsdóttir; Ármann, f. 30. júní 1960; og Elín, f. 8. mars 1964, maki Gunnar Ágústsson. Útförin fer fram frá Skál- holtsdómkirkju í dag, 23. maí 2019, klukkan 14. Ég kynntist Guðnýju í Bún- aðarbanka Íslands í Austur- stræti þar sem við bæði störf- uðum. Fljótt komumst við að sameiginlegum áhuga okkar á hestum og þá var ekki að sökum að spyrja – þá opnuðust allar flóðgáttir, við höfðum um margt að ræða! Í bankanum starfaði Pétur J. Jóhannsson sem bíl- stjóri og var kenndur við Skógarkot á Þingvöllum. Hann hafði frumkvæði að því að við Guðný fórum í tvær göngur með Pétri og Þingvallabændum inn á þeirra afrétt, smöluðum og rák- um féð í Gjábakkarétt sem nú er aflögð. Það var tilkomumikið að vera inni í sjálfum þjóðgarðinum, sjá safnið renna fram, heyra jarmið og finna ilminn af landinu. Nut- um við Guðný þessara tveggja ferða sem við fórum sameigin- lega ríkulega og minntumst oft á þessar ferðir. Guðný talaði oft um Melhól í Meðallandi og tengsl hennar þangað af mikilli virðingu. Þar voru hennar rætur og þar hófst hennar hesta- mennska. Ég fór þangað eitt sinn og fékk að kynnast þessari sveit sem hún var svo hreykin af, og skil vel, eftir kynni mín af þessu ágæta landsvæði. Gísli Tómasson afi hennar var þá á lífi og keypti ég af honum trús- stöskur sem ég á enn og hef notað. Hestaræktun var Guð- nýju mikið áhugamál og var hún afar fróð um hestasöguna, ættir og afkomendur. Hrossarækt hennar var ekki stór í sniðum en mikil gæði í þeim gripum sem frá henni hafa komið. Ég þurfti stundum að leita ráða hjá Guð- nýju sem voru lögfræðilegs eðlis og tók hún mér ætíð vel með slík erindi og gaf mér góð ráð. Guðný hafði mikla hlýju til að bera og velvilja og gaf sér alltaf tíma til að rækta vinskap okkar sem varði í 40 ár. Ég mun sakna minnar ágætu vinkonu sem var einstök. Aðstandendum votta ég samúð mína. Fákur í fjöru Glæsilegur fer hann Fákur sporið, fimur stígur yfir urð og grjót. Hestur þessi leikur létt við vorið lífsglaður hann tekur sumri mót. Ungur var hann lítið leiðitamur og lengi barðist hann við annan hest. Sá styggur var og gat verið gramur gaf Fáki spark og á honum sést. Löngufjörur gulli stráðar strendur, sitt stökk hann vildi ólmur taka þar. Svo glaðlegur, af æðri anda sendur minn elskulegi Fákur létt mig bar. Snæfellsjökull fullkominn og fagur með fönn svo hvítur toppurinn þar skín, í reiðtúr hefst þar lífsins dýrðardagur er dásemd heimsins skapar þessa sýn. Á Snorrastöðum býr einn merkur maður, mikill sagnagarpur Haukur telst. Við nafnbót fjörukóngs gengst hann glaður og gamansögur fólki flytur helst. Og þar sem Eldborg yfir gróðri gnæfir og gjall og hraun að sandsins faðmi ná, þar mönnum jafnt sem gæðings hrossum hæfir að hlaupa um og skynja lífsins þrá. (Kristján Hreinsson) Þormar Ingimarsson. Fallin er frá vinkona mín, Guðný Höskuldsdóttir, eftir bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Bar- áttan byrjaði um vorið á síðasta ári þegar hún fór í skurðaðgerð og allt virtist hafa tekist vel, hún laus við meinið og bjart fram undan. Við Guðný kynntumst í gegn- um hestamennskuna uppi í Fjárborg fyrir meira en 30 ár- um, hún þá með áberandi fal- legan stóran leirljósan hest, Leira. Guðný þessi smáa, fín- gerða og fima kona, hrífandi og mögnuð. Á þessum árum riðum við út saman öll kvöld og helgar, hjálpuðum hvor annarri með trippin sem við vorum að temja, hún alltaf með hesta frá Ragga frænda hennar úr Meðallandinu. Í lok vetrar var farið í sleppiferð með vinum og fjölskyldu hennar að Melhól, riðið var þá úr Mýr- dalnum, um Vík, yfir Mýrdals- sandinn í Álftaverið og yfir vatnsmikið Kúðafljótið, en Raggi á Melhól tók að sér að lóðsa okkur yfir hættulegt fljót- ið. Ferðirnar voru ævintýra- legar og skemmtilegar, lífið var bara frábært. Guðný flutti svo austur í Kjarnholt, þar sem hún stundaði hrossarækt. Hún hafði óbilandi áhuga á ræktun og náði flottum árangri þar með afkvæmi Fjaðr- ar, Gægju og Fjörgyn. Ófá voru símtölin okkar á milli þar sem hún fór yfir sína ræktun og hvert væri stefnt með hvern grip. Hún var líka dugleg að leiðbeina mér með mín hross. En eftir að hún flutti í Reykholt fór ferðabakterían að ýta við okkur aftur. Nú var það fyrst helgarferð til Berlínar veturinn 2018 að skoða söfn. Stoppað var sérstaklega lengi í Egypska safninu, Guðný var alveg heilluð. Það var eitthvað sem togaði svo fast í hana, engin spurning að til Egyptalands yrði hún að kom- ast, kemur þú ekki með? spurði hún með blik í sínum stóru bláu augum, ég ekki viss, en auðvitað langaði mig með. Um vorið greindist hún með illskeyttan sjúkdóm en hún lét veikindin ekki slá sig út. Hún var byrjuð á nýjum kafla í lífinu. Í ferðina fórum við í haust og skoðuðum menningu forn-Egypta, píra- mída, hof og grafir, og sigldum á Níl, meiriháttar ævintýri. Nú vorum við gömlu vinkonurnar komnar í ferðagírinn og ætluð- um að skoða heiminn saman. Í hvaða ævintýri skyldi halda næst? Indland, stakk ég upp á, nei það hefur nú aldrei heillað mig, Mexíkó? Ekki grunaði okk- ur þá að þetta væri okkar síð- asta ferðalag saman. Hvíldu í friði, elsku vinkona. Anna Lísa Guðmundsdóttir. Guðný Höskuldsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.