Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Einn mæli-kvarði áframmi-
stöðu samfélags er
hvernig hugsað er
um börn. Enginn
ágreiningur ríkir um það mark-
mið að búa eigi þannig að börn-
um að þau eigi þess kost að
blómstra og nýta sín tækifæri.
Mikilvægur þáttur í því er að
vernda börn fyrir áföllum og of-
beldi. Ný skýrsla frá Unicef á
Ísland sýnir að í þeim efnum er
þörf á rækilegu átaki.
Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær segir í skýrsl-
unni að 16,4% barna á Íslandi
verði fyrir líkamlegu og/eða
kynferðislegu ofbeldi áður en
þau ná 18 ára aldri, sum þeirra
daglega. Þetta eru um 13 þús-
und börn. Það ber alvarleika
málsins vitni að í þessari tölu er
ekki vanræksla á börnum, and-
legt ofbeldi, rafrænt ofbeldi eða
einelti.
Ljóst má vera að í mörgum
tilfellum á ofbeldið sér stað inni
á heimilum, sem ættu að vera
þeirra helsti griðastaður.
Ofbeldi getur markað barn
alla ævi, sérstaklega ef það fær
enga hjálp. Ofbeldi hefur mun
meiri áhrif á börn heldur en
fullorðna. Börn, sem hafa orðið
fyrir ofbeldi, eru tvöfalt líklegri
til að reyna að svipta sig lífi en
önnur börn og sömuleiðis lík-
legri til að ánetjast áfengi og
fíkniefnum.
Unicef ætlar að hleypa af
stað átaki undir yfirskriftinni
„Stöðvum feluleik-
inn“ og snýst það
meðal annars um
að dreifa upplýs-
ingum um hvernig
bregðast eigi við
leiki grunur á að barn verði fyr-
ir ofbeldi. Þá þarf að gera allt
til að auðvelda börnum að leita
sér hjálpar, meðal annars með
því að leggja áherslu á að
skömmin sé ekki þeirra, heldur
þess sem fremur ofbeldið.
Einnig á að þrýsta á um stofnun
ofbeldisvarnarráðs til að safna
upplýsingum og beita sér fyrir
forvörnum og fræðslu.
Ásmundur Einar Daðason,
félags- og barnamálaráðherra,
hefur lýst yfir því að hann ætli
að beita sér sérstaklega í mál-
efnum barna og unglinga í
vanda. Til þess að hnykkja á
þessu bætti hann börnum sér-
staklega við í starfstitilinn.
Hann brást í gær við skýrsl-
unni, boðaði til fundar með Uni-
cef samdægurs og sagði: „Í
framhaldinu munum við hreyfa
okkur hratt.“
Á undanförnum misserum
hafa komið upp mál úr fortíð-
inni þar sem fullkomlega óboð-
leg meðferð á börnum við-
gekkst árum saman. Það er
auðvelt að horfa aftur og hrylla
sig yfir framferði fyrri kyn-
slóða, en um leið verður að
spyrja hvað viðgangist á okkar
tímum, sem síðar meir verður
fjallað um með sambærilegum
hætti. Skýrsla Unicef er vís-
bending um það.
Ofbeldi gegn
börnum er allt
of algengt}
Velferð barna
Í dag og næstudaga verður
kosið til þings Evr-
ópusambandsins.
Kosningar til þess
draga sjaldan að
sér athygli enda
þátttaka í þeim dræm og íbúar
einstakra ESB landa vita lang-
fæstir hverjir sitja á þessu
þingi í þeirra nafni og haldi
veitingastöðum og golfvöllum
nágrennisins uppi. Sagt er að
Bretar kannist þó flestir við að
Nigel Farage sitji þar en aðrir
séu þar í nafni óþekkta þing-
mannsins.
En vegna upplausnarinnar í
ESB er áhuginn nú meiri en
endranær. Ef marka má kann-
anir þá mun flokkur sem Fa-
rage stofnaði fyrir svo sem
mánuði skjóta öllum öðrum
flokkum aftur fyrir sig. Á Ítalíu
er talið, með sama fyrirvara, að
flokkar hægra megin við miðju
stjórnmála fái um 80% at-
kvæða, en jafnaðarmenn og
flokkar vinstra megin við þá fái
saman um 20 %. Af þessum rétt
um 80% hægra
megin muni flokkar
sem fjandsamlegir
fréttamenn kalla
lýðskrumsflokka
eða vinsældasókn-
ara (eins og allir
flokkar séu það ekki fyrir kosn-
ingar) muni fá um 70% heildar
atkvæða, en flokkur Silvio Ber-
lusconi 9-10%. Gert er ráð fyrir
að þeir þingmenn sem komi í
hlut Berlusconi muni taka upp
samstarf við hefðbundna
hægriflokka á þingi, en hinir
muni halla sér að flokkum eins
og þeim sem Marine Le Pen og
Viktor Orbán forsætisráðherra
Ungverja leiða og verði sú fylk-
ing mun öflugri en hún var á
fráfarandi þingi. Ekki þarf það
þó að boða mikil tíðindi vegna
valdaleysis þessa þings.
Þá fullyrða spekingar þar að
verði úrslitin í Bretlandi þau
sem spáð er geti Theresa May
ekki forðast lengur að sitja
uppi með reisupassann sem er
búið að veifa framan í hana síð-
ustu mánuði.
Aldrei þessu vant
er dálítill áhugi
á kosningum til
Evrópuþingsins}
Óspennandi kosningar
loks spennandi
S
iðferði og siðgæði þingmanna eru of-
arlega á baugi. Alþingi, sem ætti að
vera stolt frjálsrar þjóðar, nýtur
bara trausts eins af hverjum sex
landsmanna samkvæmt skoðana-
könnunum. Aftur og aftur koma upp mál þar
sem þingmenn ganga fram af almenningi,
stundum með framgöngu sinni innan þingsala,
stundum annars staðar. Vissulega geta menn
verið siðlausir, en innan ramma laganna.
Sérkennileg myndlíking í biblíunni fjallar
um bjálka og flís: „Hví sér þú flísina í auga
bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í
auga þínu?“ Maður hugsar: Hver myndi ekki
taka eftir því ef hann hefði bjálka í auganu?
Höfundur er þó ekki á villigötum því að boð-
skapurinn er: Hvers vegna ástundar þú sjálfur
af miklum krafti það sem þú fyrirlítur aðra fyr-
ir að gera?
Sumir stjórnmálamenn og atvinnurekendur tala um að
engin mynt henti Íslendingum betur en krónan, sem auð-
vitað er sjónarmið. En þegar þeir sjálfir sjá aftur á móti
ekkert að því að eiga fúlgur fjár á erlendum reikningum
verður hljómurinn holur. Með sama hætti skýtur það
skökku við ef þjónar almennings geyma fjármuni í skatta-
skjólum.
Þegar hópur þingmanna kom saman á bar og lét dæluna
ganga um samþingmenn sína og fleiri var ekkert ólöglegt
á seyði, en samt brá flestum. Margir spurðu sig hvort
þetta væru þingmennirnir sem þjóðin ætti skilið. Virðingin
fyrir Alþingi hrapaði, þrátt fyrir að þarna sætu aðeins sex
þingmenn að sumbli og háværu og klúru
spjalli.
Stundum gleymist að þingmenn eru mann-
legir. Vissulega má og á að gera til þeirra
kröfur, en allir eru breyskir. Kröfurnar eru
líka mismunandi eftir því hver maðurinn er.
Þeir sem sífellt eru með keyrið á lofti til þess
að berja á öðrum eru dæmdir hart þegar þeir
sjálfir hrasa. Sumir hafa aftur á móti með orð-
færi sínu og athöfnum svo oft gengið fram af
almenningi að fólk kippir sér ekki upp við einn
skandalinn enn. Aðrir mega varla bora í nefið
á almannafæri án þess að allt verði vitlaust.
Nú kann einhverjum að finnast álitamál
hvar strikið er sem ekki má fara yfir. Sumir
segja að við ættum aldrei að gera það sem
ekki þyldi að birtast á forsíðum blaðanna.
Ekki er það góður mælikvarði. Til dæmis er
góður siður að fara í sturtu daglega, þó að fæstir vildu fá
myndir af sér í fjölmiðlum við þá athöfn.
Miklu betra próf er: Væri það í lagi að allir gerðu það
sem ég geri? Það einkennilega er að sumir svara spurn-
ingunni neitandi, en halda samt áfram sínu athæfi. Þeir
sjá flísarnar, en kippa sér ekki upp við bjálkann. Eins og
þér viljið að aðrir menn gjöri er góð regla.
Þeir sem finnst ekki í lagi að almenningur nýti sér
skattaskjól eiga ekki að fela sína peninga. Þeir sem telja
óviðeigandi að þingmenn klæmist slompaðir á almanna-
færi eiga að fara varlega með áfengi. Eða tala minna.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Væri það í lagi?
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ríkisstjórn Katrínar Jak-obsdóttur var mynduð 30.nóvember 2017 og verðurþví eins og hálfs árs í
næstu viku. Segja má að í megin-
dráttum hafi stjórnin átt nokkuð far-
sæla og átakalitla 18 mánuði, þótt
viss núnings gæti á milli flokka í
ákveðnum málum.
Stjórnarþingmenn sem blaða-
maður ræddi við voru sammála um
að stjórnarsamstarfið væri síður en
svo einfalt, sem lægi kannski í augum
uppi, þar sem andstæðir pólitískir
pólar væru í samstarfi. Á hinn bóginn
benda þeir á og segja það koma
ánægjulega á óvart hversu góður
samstarfsandi sé alla jafna í stjórn-
arflokkunum og að ákveðið traust
ríki þar, þrátt fyrir ólíkar pólitískar
skoðanir. Virðist sem þingmennirnir
þakki þann anda því góða samstarfi,
trausti og jafnvel vináttu sem tekist
hafi með oddvitum ríkisstjórn-
arinnar, ekki síst Katrínu og Bjarna.
Þingmaður Framsóknarflokks-
ins lýsir samstarfinu svo: „Ég held að
sömu sögu sé að segja í öllum stjórn-
arflokkunum. Við erum ánægð með
samstarfið og teljum að það sé mjög
jákvætt að svo ólíkir flokkar, sem
spanna allt litrófið, geti unnið með
þessum hætti saman. Ég held að
oddvitar stjórnarflokkanna eigi mik-
inn þátt í því að samstarfið gengur
svo vel og ég held að Katrín Jak-
obsdóttir njóti trausts í öllum stjórn-
arflokkunum.“
Engin eftirmál
Ólíklegt er talið að andstaða
Bjarna Benediktssonar og sjálfstæð-
isþingmanna við þungunarrofs-
frumvarp Svandísar Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra dragi dilk á eftir
sér eða hafi neikvæð áhrif á stjórnar-
samstarfið.
Almennt virðast menn telja að
málið hafi verið þess eðlis að hver og
einn þingmaður yrði að fá að hafa
sína eigin persónulegu afstöðu til
málsins, en ekki þurfa að fylgja
flokkslínu eða línu ríkisstjórnar-
innar.
Aðspurðir hver helstu ágrein-
ingsmálin séu á milli stjórnarflokk-
anna segja sjálfstæðisþingmenn að
ágreiningur þeirra við Svandísi Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra sé um-
talsverður og hennar áherslur fari
mjög illa í marga í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins. Þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins bera að öðru leyti
samstarfinu við VG vel söguna og
segja það ganga með ágætum. Sams-
konar tónn heyrist frá þingmönnum
VG og virðast þingmenn beggja
flokka jafnvel undrandi á því hversu
gott og traust samstarfið sé milli
flokkanna, ekki síst þegar horft er til
þess að himinn og haf er á milli
stefnu flokkanna í svo mörgum mál-
um, sem kalli vitanlega oft á mála-
miðlanir, sem kannski ekki allir séu
fullkomlega sáttir við.
„Í meginatriðum myndi ég lýsa
stjórnarsamstarfinu þannig að það er
gott á milli fólks, þótt skoðanir séu
oft skiptar,“ sagði stjórnarþingmað-
ur.
Samstarfið við Framsóknar-
flokkinn er einnig sagt vera með
ágætum, með einhverjum undan-
tekningum þó. Þar er sérstaklega
nefnt fjölmiðlafrumvarp Lilju Al-
freðsdóttur menntamálaráðherra og
því haldið fram að frumvarpið sé illa
unnið og ráðherrann hafi kynnt málið
opinberlega án þess að hafa verið bú-
in að fá fyrir því samþykki í ríkis-
stjórn. Lilja muni mæla fyrir frum-
varpinu á þessu þingi en það sé alveg
ljóst að það verði ekki afgreitt í vor.
„Það má segja að fyrsta próf-
raunin sem ríkisstjórn Katrínar Jak-
obsdóttur fór í gegnum og stóðst
raunar með ágætum hafi verið kjara-
samningarnir á almenna markaðnum
nú í vor. Nú reynir á að ríkisstjórnin
tryggi að samningar hins opinbera
fari ekki úr böndunum, því þá væri
þetta búið,“ segir stjórnarþingmað-
ur.
Næstu fjárlög önnur prófraun
Annar stjórnarþingmaður bend-
ir á að næsta prófraun ríkisstjórnar-
innar verði gerð fjárlagafrumvarps
fyrir næsta ár, því við blasi að taka
þurfi margar erfiðar ákvarðanir þeg-
ar kemur að útgjöldum.
Og sá þriðji segir: „Vitanlega er
ákveðinn núningur og pirringur fyrir
hendi, en alla jafna er góður andi og
samstarf gengur vel. Stundum verð-
ur ágreiningur opinber, eins og t.d.
það hvernig heilbrigðisráðherra beit-
ir sér gegn sjálfstætt starfandi að-
ilum í heilbrigðiskerfinu. Það er mjög
þungt í mörgum þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins af þessum sökum.“
Þá hafa þingmenn nefnt til önn-
ur ágreiningsmál sem hafi komið upp
á yfirborðið með reglulegu millibili.
Nefna þeir umhverfismálin sér-
staklega, þar sem langt sé á milli
skoðana umhverfisráðherra og
margra þingmanna Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks. Sömuleiðis
hafi verið tekist á í meirihluta at-
vinnuveganefndar um fiskeldismál,
en meirihlutinn hafi náð lendingu þar
í fyrradag.
Gengur vel þrátt
fyrir skiptar skoðanir
Morgunblaðið/Eggert
Ánægja Stjórnarþingmenn þakka góðu samstarfi oddvitanna, Bjarna,
Katrínar og Sigurðar Inga, þann góða anda sem ríki á stjórnarheimilinu.