Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@bl.is
Svigrúm Faxaflóahafna sf. er mikið
til aukinna arðgreiðslna til eig-
enda.
Þetta kemur fram í greinargerð
Reykjavíkurborgar með ársreikn-
ingi fyrirtækisins fyrir árið 2018.
Greinargerðin var kynnt á síðasta
stjórnarfundi þess.
Reykjavíkurborg er langstærsti
eigandi Faxaflóahafna sf. með
75,6% hlut og fær því stærstan
skerf af arðinum. Tillaga að arð-
greiðslu verður tekin fyrir á
stjórnarfundi í næsta mánuði. Að-
alfundur verður haldinn 21. júní
næstkomandi.
Fram kemur í greinargerðinni,
sem er unnin af fjármálaskrifstofu
borgarinnar, að rekstrarniðurstaða
Faxaflóahafna sf. árið 2018 var
betri en gert var ráð fyrir í fjár-
hagsáætlun.
Tekjur umfram áætlun
Reglulegar tekjur voru alls 134,4
milljónir króna umfram áætlun,
eða 3,5% en rekstrarútgjöld voru
215,5 m.kr. undir áætluðum út-
gjöldum. Auknar tekjur skiluðu sér
aðallega vegna aukins umfangs í
skipakomum og þá einkum stækk-
andi skipum sem komu til hafnar.
Rekstrarhagnaður fyrir fjármagns-
liði varð því 349,9 m.kr. hærri en
áætlað hafði verið eða 1.076,8 m.kr.
Óreglulegar tekjur af sölu eigna
námu 624,3 milljónum.
„Ársreikningurinn ber með sér
trausta fjáhagsstöðu félagsins,“
segir í greinargerðinni. Bent er á
að fjárbinding í félaginu sé hærri
en það geti ávaxtað með góðu móti.
Samkvæmt upplýsingum frá
Faxaflóahöfnum var arður fyrst
greiddur eigendum fyrirtækisins
árið 2010 vegna ársins 2009, eða
173 milljónir. Síðan hefur arður
verið greiddur árlega, alls rúmlega
2.000 milljónir. Hæstur var hann
2017, eða 371 milljón.
„Þess má geta að félagið er vel í
stakk búið til að fjármagna hluta
fjárfestinga sinna með lántöku í
stað handbærs fjár sem myndi
skapa aukið rými til útgreiðslu
töluverðrar fjárhæðar í arð-
greiðslu. Slík aðgerð myndi lækka
eiginfjárhlutfallið sem telst mjög
hátt og minnka fjárbindingu eig-
enda í félaginu og auka arðsemi
eigin fjár,“ segir í greinargerð fjár-
málaskrifstofunnar. Hún bendir
jafnframt á að fjárfestingar ársins
2019 séu áætlaðar 2.330 m.kr. Fé-
lagið gæti ráðist í þær án frekari
lántöku.
Sem fyrr segir er Reykjavík-
urborg langstærsti eigandi Faxa-
flóahafna sf. með 75,6% hlut, Akra-
neskaupstaður kemur næst með
10,8%, Hvalfjarðarsveit 9,3%,
Borgarbyggð 4,1% og Skorradals-
hreppur 0,2%.
Borgin vill hærri arðgreiðslur
Reykjavíkurborg er langstærsti eigandi Faxaflóahafna með 75,6% hlut Telur að fjárbinding
í félaginu sé hærri en það geti ávaxtað með góðu móti Skipum hefur fjölgað og þau eru stærri
Morgunblaðið/sisi
Sundahöfn Í sumar verður enn eitt metárið í komum skemmtiferðaskipa. Þetta færir höfnunum auknar tekjur.
Heildarrekstrartekjur Faxaflóa-
hafna sf. verða að stærstum
hluta til í Sundahöfn en tekjur
af því svæði hafnanna voru
60,5% árið 2018.
Þá hefur hlutur skemmti-
ferðaskipa í tekjum Faxaflóa-
hafna sf. vaxið hröðum skref-
um. Þær voru á árinu 2018
brúttó alls 447,4 m.kr. eða sem
nemur 11,3% heildartekna.
Kostnaður á móti þeim tekjum
er m.a. launakostnaður hafnar-
starfsmanna, kostnaður við
dráttarbáta og öryggisgæslu.
Komum skemmtiferðaskipa
fjölgar ár frá ári og tekjur
aukast samhliða. Á árinu 2018
voru skipakomur 152 en á þessu
ári verða þær 200 talsins.
Sundahöfn
mikilvæg
HAFNIRNAR
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800