Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 18
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Spjall Gulli og Marta móðir Kríu við fjárhúsið og bátur Gulla að baki.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hún Sleikja er uppáhalds-kindin okkar. Reyndarheitir hún Þemba, envið köllum hana alltaf
Sleikju af því hún sleikir okkur í
framan. Hún er alveg níutíu og
níu prósent spök og fyndin kind,“
segja vinkonurnar Jóhanna Engil-
ráð Hrafnsdóttir og Kristjana
Kría Lovísa Bjarnadóttir, en þær
voru á fullu í sauðburði í Steins-
túni í Norðurfirði í Árneshreppi
um nýliðna helgi.
„Við höfum verið að hjálpa
honum Gulla, bóndanum sem á
kindurnar. Við hjálpum til við að
gefa hey á garðana og við höfum
líka verið að hjálpa nýfæddum
lömbum við að komast á spena til
að sjúga.“ Þær Jóhanna og Kría
segjast alveg hafa lent í því að
þurfa að hjálpa til þegar lömbin
koma í heiminn og þeim finnst
ekkert mál þó þau séu slímug og
blóðug.
Vinkonurnar góðu eru báðar
tíu ára, Kría reyndar alveg að
verða ellefu en Jóhanna var að
fagna sínum tíunda afmælisdegi
þegar blaðamaður fékk að fara
með þeim stöllum í fjárhúsið. Jó-
hanna er heimavön í kringum féð í
Steinstúni, enda hefur hún búið í
Norðurfirði frá því hún var lítið
stelpuskott. Kría býr á Drangs-
nesi og var í heimsókna hjá vin-
konu sinni og skólasystur yfir
helgina.
Sumar kindur hættulegar
Jóhanna er orðin gildur fjár-
bóndi, hún á nokkrar kindur hjá
Gulla og eina kind segist hún eiga
á bænum Árnesi hjá Ingólfi Bene-
diktssyni og Jóhönnu Ósk.
„Sú kind heitir Bíbí eins og
kisan mín, en kindurnar mínar í
Steinstúni heita Sólveig, Bomba,
Tía og Fíkja, sem er einmitt ný-
borin og var þrílembd. Eitt lambið
hennar var sett til fósturmömmu,
því Fíkja á erfitt með að vera með
þrjú lömb. Gulli gaf mér svo eitt
fallegt lamb í afmælisgjöf í dag.“
Þegar þær eru spurðar að því
hvað þeim finnist svona frábært
við þessar skepnur, sauðkindur,
sem þær njóta að vera í kringum
allan daginn, stendur ekki á svari.
„Þær eru mjög fyndnar. Og
það er frábært hvað þær eru mis-
munandi persónur. Til dæmis er
Fíkja smá stríðin, hún þykist vera
spök en þegar maður kemur nær
henni þá hleypur hún í burtu,
kemur svo aftur og hleypur aftur
frá. En maður þarf að passa sig,
því sumar kindur geta verið svolít-
ið hættulegar, þessar sem eru
mannýgar þær geta stangað. Ég
hef séð eina kind hjá Gulla stanga
hann mjög fast, hún tók tillhlaup,“
segir Jóhanna sem reynir að vinna
í því að spekja sínar kindur og
gera þær gæfar.
Næturdýr kemur til hjálpar
Í fjárhúsinu í Steinstúni bera
um 275 ær þetta árið og hefur
gengið vel það sem af er sauð-
burði.
„Ég hleypi ekki snemma til,
djöflagangurinn í burðinum byrjar
ekki hjá mér fyrr en í næstu
viku,“ segir Guðlaugur Agnar
Ágústsson, bóndinn á bænum.
„Þetta hefur farið vel af stað
og frjósemi góð. Ein þrílemba er
borin en þær eiga að vera tíu slík-
ar á leiðinni samkvæmt talningu
hjá mér. Og ein fjórlemba,“ segir
Gulli sem býr svo vel að áhuga-
samar hjálparhellur koma árlega
til hans í sauðburðinum.
„Pabbi lætur sig aldrei vanta
í sauðburðinn, en hann er orðinn
85 ára og hefur ágæta heilsu til að
hjálpa til. Júlíana Lind dóttir mín
kemur líka alltaf til að aðstoða á
þessum árstíma, en hún er í há-
skólanámi og að vinna að vorverk-
efni þar, svo það er nóg á hennar
könnu. Elsa Rut fósturdóttir bróð-
ur míns kemur ævinlega og stend-
ur hér næturvaktir í sauðburði, ég
kalla hana næturdýr því hún vinn-
ur líka næturvaktir í vinnu sinni
fyrir sunnan. Hún er búfræðingur
og flink með sauðfé.“
Siglir á haf út eftir sauðburð
Kindurnar í Steinstúni eru
nánast allar kollóttar, aðeins fimm
þeirra eru hyrndar.
„Uppistaðan í mínu fé er úr
stofni föður míns sem hér bjó á
undan mér en hans fé var alfarið
kollótt. Ég hef mest átt um tutt-
ugu hyrndar ær, þegar ég fékk
hyrndan hrút frá Bæ á sínum
tíma, og eins þegar ég fékk hyrnt
fé frá Munaðarnesi og Krossnesi
þegar fólkið þar brá búi.“
Gulli segir að norðanátt, kuldi
og rigning hafi komið í veg fyrir
að hann geti sett lambféð strax út,
en hann segir þó hafa verið gott
gróðrarveður, aprílmánuður hafi
verið góður og tún séu orðin
græn. En úthaginn er enn grár.
Við fjárhús Gulla stendur bát-
ur hans, sem hann nýtir vel til
veiða enda gjöful mið við túnfót-
inn. En þó strandveiðar séu hafn-
ar þá hefur Gulli ekki komist
vegna anna í fjárhúsinu. En hann
ætlar sér að sjósetja bátinn
snemma í júní þegar hann hefur
komið fénu út úr húsi.
„Það gengur ekki að ætla sér
að gera allt í einu, þá verður mað-
ur fljótt útbrunninn. Ég hef áttað
mig á því að ef ég fer mér hægar
þá hrasa ég sjaldnar, og sný mig
síður á ökklanum,“ segir Gulli og
hlær en hann hefur einmitt lent í
því þegar hann var að flýta sér í
önnum að vori, en það kemur sér
augljóslega illa fyrir bónda að
vera stirður til gangs.
„Ég hef sett mér það mark-
mið núna að ganga hægar og láta
af öllum asa. Æðibunugangurinn
er aðallega í hausnum, hann þarf
ekki að framkallast í löppunum á
hlaupum.“
Kollur Kindur Gulla eru næstum all-
ar kollóttar og nokkuð forvitnar.
Flott Kindin Sólveig er ein þeirra
sem Jóhanna á í fjárhúsi Gulla.
Hún er 99 prósent spök og fyndin
„Þær eru mjög fyndnar.
Og það er frábært hvað
þær eru mismunandi
persónur,“ segja Jóhanna
og Kría um kindurnar í
Steinstúni. Bóndinn á
bænum segir djöflagang-
inn byrja í næstu viku
þegar burður fer á fullt.
Vinkonur Blíða og Blær, lömbin hennar Sleikju, í fangi Kríu og Jóhönnu.
18 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is