Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 Í S L E N S K U R GÓÐO S T U R TILBOÐ! – BAR A GÓÐ U R – Það var litrík skrúðganga sem gengin var frá Laugarnesskóla yfir í Grasagarðinn í gær þegar Dýradagurinn var haldinn í fyrsta skipti á Ís- landi. Dýradagurinn er alþjóðlegur dagur líf- fræðilegrar fjölbreytni og fá nemendur tækifæri til að læra um og vekja athygli á m.a. loftslags- breytingum, plastmengun og fjölbreytni lífrík- isins. Þema göngunnar var málefni hafsins og fengu börnin sem þátt tóku umhverfisfræðslu og tóku þátt í skapandi vinnu sem meðal annars fólst í búninga- og grímugerð úr efnivið sem annars væri fleygt. Alþjóðlegur dagur líffræðilegrar fjölbreytni haldinn í fyrsta sinn á Íslandi Morgunblaðið/Eggert Litrík skrúðganga í tilefni Dýradagsins Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nýgerðir kjarasamningar voru samþykktir í öllum aðildarfélögum Samiðnar nema Félagi járniðnað- armanna á Ísafirði. Tæplega 73% þeirra sem þátt tóku samþykktu samningana. Nú liggja fyrir nið- urstöður úr atkvæðagreiðslu hjá öllum aðildarfélögum ASÍ sem gerðu lífskjarasamninga við Sam- tök atvinnulífsins. Þeir voru sam- þykktir í öllum félögum nema einu og sögðu um 80% þeirra sem þátt tóku já. 98% vinnuveitenda sam- þykktu samningana. Samiðn var síðasta sambandið til að tilkynna niðurstöður atkvæða- greiðslu um samninga við Samtök atvinnulífsins, Bílgreinasambandið, Samband garðyrkjubænda og Fé- lag pípulagningameistara. Atkvæði greiddu 1.624 félagsmenn sem er liðlega 23% þeirra sem á kjörskrá voru. Já sögðu 1.183, eða tæplega 73%, nei sögðu 357 sem er 22% og 84 tóku ekki afstöðu. „Þetta sýnir meiri jákvæðni í garð samninganna en við áttum von á,“ segir Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar. Óánægðir með útfærsluna Félag járniðnaðarmanna á Ísa- firði er eina félagið sem felldi lífs- kjarasamningana. Þátttaka var góð miðað við það sem algengast er hjá stéttarfélögum og sögðu 56% þeirra sem greiddu atkvæði nei. Ásmundur Ragnar Sveinsson, for- maður félagsins, segir að breyt- ingar á yfirvinnu hafi aðallega staðið í fé- lagsmönnum. Menn hafi ekki verið nógu ánægðir með út- færsluna. Segir Ás- mundur að framhaldið verði ákveðið á fé- lagsfundi annað kvöld. Hann við- urkennir að staðan sé breytt þar sem félag hans sé það eina sem felldi. Félag járniðnaðarmanna á Ísa- firði var eina félagið sem felldi kjarasamninga iðnaðarmanna í síðustu kjarasamningalotu. Þá ákvað stjórn félagsins að leggja þá fyrir að nýju með lítilsháttar breytingum og voru þeir þá sam- þykkir. Hilmar Harðarson vill lítið tjá sig um afstöðu járniðnaðarmanna fyrir vestan. Hann reiknar með að forystumenn Samiðnar fari vestur til að funda með félagsmönnum og fara þá yfir það hvernig breytingar á yfirvinnu komi út fyrir fé- lagsmenn. „Það er yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í Samiðn sáttur við niðurstöðuna. Við lítum svo á að við séum komnir með nýj- an kjarasamning til að vinna með og sem gefur félagsmönnum okkar tækifæri til að stytta vinnutímann og gera hann sambærilegan við það sem þekkist annars staðar á Norðurlöndunum. Eftir því hefur lengi verið kallað,“ segir Hilmar. 80% félagsmanna ASÍ samþykktu  Félögin sem stóðu að lífskjarasamningum samþykktu samningana  Járniðnaðarmenn á Ísafirði voru þeir einu sem felldu  Framhaldið verður ákveðið á fundi félagsins á Ísafirði annað kvöld Hilmar Harðarson Minna er að gera hjá embætti ríkissáttasemjara eftir að stóru samningunum var landað. Þó eru allnokkur félög á almenna vinnumarkaðnum með lausa samninga. Þannig er boðað til samningafunda Samtaka at- vinnulífsins í máli Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra í dag sem og í kjaradeilu Mjólk- urfræðingafélags Íslands. Tveir fundir boðaðir í dag RÍKISSÁTTASEMJARI Bréfið, sem Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, þáverandi forsætisráð- herra, sendi Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins, í lok mars 2015 til þess að árétta stefnu ríkisstjórnar hans vegna umsóknar Íslands um inngöngu í sambandið frá 2009 fól ekki í sér að umsóknin væri dregin til baka. Haft var eftir Sigmundi Davíð í Morgunblaðinu sl. mánudag að bréf- inu hefði verið ætlað að árétta þá stefnu ríkisstjórnarinnar sem fram kom í bréfi sem Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráð- herra, sendi ESB 12. mars 2015 um að ekki bæri að líta á Ísland sem umsóknarríki að sambandinu. Ferli ESB, þegar ný ríki ganga í sam- bandið, felur í sér að umsóknarríkið (e. applicant country) sendi umsókn sína til ráðherraráðs sambandsins. Með hliðsjón af niðurstöðum frumathug- unar framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins ákveður ráðherraráðið hvort líta eigi á umsækjandann (e. applicant) sem umsóknarríki (e. candidate country). Líkt og fjallað var um á mbl.is um síðustu helgi kom fram í bréfi Gunn- ars Braga að stjórnvöld litu ekki svo á að Ísland væri „candidate country“ sem var þýtt sem umsóknarríki í þýðingu utanríkisráðuneytisins á bréfinu, en þetta sama enska hugtak er notað í umræddu bréfi Sigmundar Davíðs til Junckers. Miðað við umsóknarferlið er ljóst að hvorki bréf Sigmundar né Gunn- ars Braga fól í sér að umsóknin væri dregin til baka heldur einungis það að Ísland færðist aftur á fyrsta stig ferlisins. hjortur@mbl.is Hvorugt bréfið dró ESB-umsóknina til baka  Sigmundur Davíð notaði sama hugtak og Gunnar Bragi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson „Það er starfsmönnum skrifstofu Al- þingis þungbært að sitja undir ásök- unum um að greiða tilhæfulausa reikninga og gæta ekki að meðferð almannafjár,“ segir í yfirlýsingu frá skrifstofu Alþingis í tilefni af um- ræðu á þingfundi í fyrradag þar sem því hafi verið haldið fram að rök- studdur grunur væri um að Ásmund- ur Friðriksson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, hefði dregið sér almannafé og að ekkert hafi verið gert til að setja á fót rannsókn á því. Þá segir að skrifstofa þingsins hafi engin gögn sem styðji við þau um- mæli. Helgi Bernódusson, skrif- stofustjóri Alþingis, ritar undir yfirlýsinguna. Björn Leví Gunnarsson, þingmað- ur Pírata, lét umrædd orð falla en áður hafði Þórhildur Sunna Ævars- dóttir, þingmaður sama flokks, gert slíkt hið sama og komst siðanefnd Alþingis að þeirri niðurstöðu í síð- ustu viku að þar með hefði hún brotið gegn siðareglum alþingismanna. Í yfirlýsingunni segir að 5. mars á síð- asta ári hafi skrifstofa Alþingis skil- að greinargerð um þróun og fram- kvæmd laga um þingfararkostnað sem birt hafi verið á vef þingsins. „Skrifstofan hefur engin gögn sem benda til þess að rangt hafi verið haft við og röngum eða tilhæfulaus- um reikningum verið skilað inn til endurgreiðslu.“ Þungbært að sitja und- ir ásökunum  Yfirlýsing frá skrifstofu Alþingis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.