Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Frábært úrval af sundfatnaði Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Víða við strendur landsins liggur hvítagullið í hrönnum og er þar átt við rekaviðinn sem jafnan hefur ver- ið talinn til mikilla hlunninda. Feg- urð er líka falin í þessum hvítþvegnu trjábolum sem brimið kastar upp á land eins og listamenn hafa glöggt auga fyrir. Leið rekaviðar frá Langanesi liggur nú til Berlínar þar sem hann mun umbreytast í listform af einhverju tagi á vegum lista- mannsins Ólafs Elíassonar sem ósk- að hafði eftir ósöguðum rekaviði frá Sauðanesi á Langanesi. Gámabíll var kominn í Sauðanes til að taka timbrið, rúm níu tonn, frá bóndanum Ágústi Marinó Ágústs- syni sem gaf sér tíma frá sauðburð- inum til að sinna þessum við- skiptum: „Við erum langt komnir með að fylla þennan 20 feta gám af rekaviði í ýmsum stærðum eftir þessari pönt- un frá Berlín og verður honum skip- að út frá Húsavík í næstu viku,“ sagði Ágúst Marinó sem búinn var að safna saman rekaviði í ýmsum stærðum, allt frá stærstu trjábolum sem voru 6 metra langir og niður í meters langa boli, allt samkvæmt pöntun. „Þetta eru um 200 bolir í heildina af ýmsum stærðum sem fara í gám- inn og smá baks að koma þeim efstu fyrir, upp í fjögurra metra hæð,“ sagði Ágúst. Rekaviður notaður í sænskt hús Tildrög þess að Ágúst sendir rekavið út til Berlínar eru þau að Guðjón Stefán Kristinsson frá Dröngum í Árneshreppi hafði bent á hann sem ákjósanlegan seljanda rekaviðar af því tagi sem óskað var eftir og kom hann einnig í Sauðanes til að líta á timbrið og brást Ágúst vel við erindinu. Rekaviðurinn mun því aftur halda í ferðalag á sjó en í þetta sinn innanborðs í flutn- ingaskipi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fal- ast er eftir rekaviði frá Ágústi til út- flutnings en hann hefur selt fjár- sterkum aðila í Svíþjóð nokkurt magn af rekatimbri sem sagað var í borðvið og flutt út með Norrænu þar sem það endaði í íbúðarhúsi í Svíþjóð. Ágúst segir að alltaf sé nokkur ásókn í rekaviðinn, niðursagaðan í borðvið og neitar hann því ekki að töluverð vinna fylgi því að safna viðnum saman af rekanum. „Við erum ekki endilega að tala hér um ódýrasta borðviðinn og sagaður rauðviður er góð vara,“ sagði hann. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Stund milli stríða Ágúst Marinó Ágústsson, bóndi, og Óli Ásgeir Stueland, flutningabílstjóri, hlóðu viðnum í gám. Reki frá Langa- nesi til Berlínar  Ólafur Elíasson ætlar að búa til lista- verk úr ósöguðum íslenskum rekaviði Hvítagullið Nóg er af rekaviði á Sauðanesi á Langanesi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.