Morgunblaðið - 23.05.2019, Side 8

Morgunblaðið - 23.05.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Þórhildur Sunna Ævarsdóttir pír-ataþingmaður veittist sem kunnugt er að Ásmundi Friðrikssyni og hafði uppi alvarlegar ásakanir um að hann hefði dregið sér fé. Málið fór fyrir siðanefnd þings- ins, sem píratar höfðu fram að því verið afar ánægðir með, og taldi nefndin að Þórhildur hefði gerst brotleg við siðareglur með um- mælum sínum.    Þórhildur varð hinversta við þessa niðurstöðu og hið sama má segja um aðra pírataþingmenn. Einn þeirra, Björn Leví Gunnarsson, sýndi þá smekkvísi að endurtaka orð Þórhildar í ræðustóli þingsins í fyrra- dag.    Svo gerðist það í gær að HelgiBernódusson, skrifstofustjóri Al- þingis, sá sig knúinn til að senda frá sér yfirlýsingu um málið þar sem hann sagði starfsmönnum skrifstofu Alþingis þungbært að sitja undir ásökunum um að greiða tilhæfulausa reikninga og gæta ekki að meðferð almannafjár.    Sagði Helgi að skrifstofa þingsinshefði „engin gögn sem benda til þess að rangt hafi verið haft við og röngum eða tilhæfulausum reikn- ingum verið skilað inn til endur- greiðslu. Skrifstofan gerir at- hugasemdir ef skil á gögnum eru ekki í samræmi við gildandi reglur hverju sinni. Þegar þetta tiltekna mál kom til forsætisnefndar í annað sinn gerði skrifstofan á ný athugun á akst- ursbók Ásmundar en þar var ekkert að finna sem vakti grun um misferli.“    Ætli þingmenn pírata biðjist af-sökunar á framgöngu sinni? Það er því miður ekki líklegt. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Sallafínir siðapostular STAKSTEINAR Helgi Bernódusson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Útlit er fyrir norðanátt og slyddu, jafnvel snjókomu um norðaustan- vert landið eftir helgi, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur heldur úti síðunni blika.is og vekur þar athygli á því að það geti gerst að hánorrænt heimskautaloft berist hingað snemma sumars. Sú staða blasi nú við og frá því fyrir helgi hafi Evrópska reiknimiðstöðin gert ráð fyrir því með um 60-70% líkum að mjög kaldur kjarni berist hingað á sunnudag eða mánudag frá ströndum Austur-Síberíu. Gangi þetta eftir verði sólarhringshitinn á Akureyri um frostmark á laugardag og eins til þriggja stiga frost á mánudag og þriðjudag. Enn óvissa „Ennþá ríkir svolítil óvissa með þetta,“ segir Einar í samtali við Morgunblaðið. Spurning sé hvert kuldapollurinn fari. Í fyrstu spám hafi verið gert ráð fyrir að hann hitti beint á landið með snjókomu og kulda en nú geri spár frekar ráð fyr- ir því að kjarninn fari fyrir austan land en strjúkist við það. Því muni kólna, sérstaklega á Norður- og Norðausturlandi. „Það kólnar um allt land og jafn- vel verða frostnætur syðra,“ segir Einar. Bætir við að líklegt sé að það snjói í fjöll og hugsanlega í byggð- um. „Þetta er dæmigert vorhret.“ Í pistli sínum á blika.is í gær segir Einar að hiti frá 4. apríl til 21. maí suðvestanlands hafi verið rúmlega 2,5 stigum yfir meðallagi sömu daga og meira en 1,5 stigum hærri miðað við undanfarin tíu ár. Vorkoma og gróðurframvinda hafi verið eindreg- in, rignt hafi annað slagið og rekja því næg. Þrjár frostnætur hafi verið það sem af er maí og ekki haft sýni- leg áhrif á gróður. steinthor@mbl.is Snjókoma í kortun- um um helgina  Hánorrænt heim- skautaloft frá Aust- ur-Síberíu á leiðinni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Spáð er frosti og jafnvel snjókomu fyrir norðan og austan. Lítil skjálftahrina hófst í Öskju norðan Dyngju- fjalla síðastliðinn mánudag. Allir eru skjálftarnir undir þremur stigum og ekkert sem bendir til auk- innar gosvirkni. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir virkni þessa „ekki óvenjulega“ og að svæðið sé þekkt fyrir hrinur ár hvert, enda virkt eld- fjallasvæði. „Við fylgjumst auðvitað með þessari virkni og staðsetjum skjálftana. Ef upp koma einhverjir stór- ir skjálftar sendum við strax frá okkur tilkynningu en eins og staðan er núna virðist svæðið hafa róast ansi mikið, það var mun meiri virkni á mánudag og þriðjudag,“ sagði sérfræðingur Veðurstofunnar í samtali við Morgunblaðið. Lítil skjálftahrina mældist í Öskju Eldstöð Ekki er búist við gosi í Öskju norðan Dyngjufjalla. Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi í héraðsdómi fyrir að hafa á um 20 mánaða tímabili villt á sér heimildir í samskiptum við konu á samfélagsmiðlinum Snapchat, fengið hana til að senda sér nektarmyndir og notað þær til að kúga hana til kynmaka með öðrum mönnum. Maðurinn var einnig fundinn sekur um að hafa nauðgað konunni í tvígang þegar hún var með bundið fyrir augun og hélt að hann væri ann- ar maður. Fjögurra ára dómur fyrir brot gegn konu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.