Morgunblaðið - 23.05.2019, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Valin besta nýja
vara ársins,
Nordbygg 2016
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og
framleidd í Svíþjóð.
Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18
20% afsláttur af þvotti á svefnpokum í maí
sem bílakjallara og stoðrými. Á
svæðinu eru nú nokkrar byggingar,
alls 4.133 femetrar, sem verða rifnar
eða fá nýtt hlutverk. Björgun reisti
sum mannvirkjanna en önnur eru
frá þeim tíma sem Sementsverk-
smiðja ríkisins var með starfsemi á
Ártúnshöfða á seinni hluta síðustu
aldar. Tveir háir sementsturnar
setja svip sinn á hverfið og þeir
munu standa áfram en fá nýtt hlut-
verk.
Hin nýja byggð mun rísa frá suð-
vestri til norðausturs. Lögð verður
áhersla á 3-5 hæða randabyggð.
Jafnframt verður lögð áhersla á
skjólmyndun og heppilega afstöðu til
þess að njóta sólar. Það verður gert
með því að staðsetja lægstu byggð-
ina í suðvesturhorni hvers reits.
Björgun flytur í Álfsnes
Í desember 2017 gerði Reykjavík-
urborg samning við Faxaflóahafnir
um kaup á 76 þúsund fermetra lóð í
Sævarhöfða við Elliðaárvog fyrir
1.098 milljónir króna. Björgun hefur
verið með starfsemi á lóðinni í ára-
tugi en fyrirtækið mun víkja þaðan
og flytja starfsemi sína á Álfsnes.
Samkvæmt samningi Björgunar og
Reykjavíkurborgar þarf Björgun að
rýma lóðina í lok þessa mánaðar.
Hins vegar hafa orðið tafir á því að
lóðin í Álfsnesi yrði tilbúin. Því hefur
fyrirtækið óskað eftir því að fá að
starfa á hluta lóðarinnar enn um
sinn. Telur Björgun það mikilvægt
fyrir byggingariðnaðinn að það geti
áfram séð honum fyrir byggingar-
efni, t.d. sandi og möl af hafsbotni.
Þegar lóð Björgunar og landfyll-
ingarnar verða tilbúnar mun gatna-
gerð hefjast og annar undirbúningur
fyrir uppbyggingu. Áætlanir
Reykjavíkurborgar gera ráð fyrir að
tekjur af lóðasölu komi á móti út-
lögðum kostnaði vegna kaupa á lóð-
inni.
Nú þegar hefur þremur lóðum
verið úthlutað. Bjarg íbúðafélag
hses. hefur fengið úthlutaðar tvær
lóðir við götu sem heitir Tangar-
bryggja (123 íbúðir) og Búseti hús-
næðissamvinnufélag hefur fengið út-
hlutaða lóð undir 30 íbúðir við sömu
götu.
Þá hefur borgin veitt Abakus ehf.
vilyrði fyrir lóð undir það sem kallað
er hagkvæmt húsnæði fyrir ungt
fólk og fyrstu kaupendur (18-40 ára).
Einnig hefur Dumli ehf. fengið vil-
yrði fyrir lóð og byggingarrétt fyrir
uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði
fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur
(18-40 ára).
Að frumkvæði Björgunar
Þess má að lokum geta að það var
að frumkvæði Björgunar að
Bryggjuhverfi austur var þróað og
byggt við Elliðaárvog. Þessi fram-
kvæmd var að erlendri fyrirmynd og
var hún þróuð í samvinnu við Björn
Ólafs arkitekt í París.
Upphaflegt deiliskipulag fyrir
Bryggjuhverfið er frá árinu 1997 og
fyrstu húsin risu árið 1998. Hverfið
byggðist upp hægt og rólega. Upp-
byggingin tók mikinn kipp á allra
síðustu árum og hverfið telst nú vera
fullbyggt. Íbúar Bryggjuhverfisins
hafa oftar en ekki kvartað yfir nábýli
við Björgun, meðal annars á þeim
forsendum að sandur hafi fokið það-
an og yfir hverfið.
Drónamynd/Hnit
Bryggjuhverfi vestur Hið nýja hverfi mun rísa á landi sem Björgun hefur mótað með stórvirkum tækjum. Jaðar landfyllingar er styrktur með grjóti til að vernda byggðina fyrir ágangi sjávar.
Íbúðabyggð á landfyllingum
Bryggjuhverfi vestur verður nýtt hverfi við Elliðaárvog Bryggjuhverfi austur er fullbyggt
Reiknað með húsnæði sem þekur allt að 150 þúsund fermetra Íbúðabyggð og nærþjónusta
Morgunblaðið/Eggert
Bryggjuhverfi austur Þarna eru nú 600 íbúðir og hverfið telst fullbyggt.
Mikil litagleði, bæði á húsum og þökum, setur svip sinn á umhverfið.
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nú styttist í að uppbygging hefjist í
nýju hverfi í Reykjavík, Bryggju-
hverfi vestur. Þarna er gert ráð fyrir
allt að 850 íbúðum, að hluta til á
landfyllingum og að hluta til á núver-
andi athafnasvæði Björgunar ehf. í
Ártúnshöfða.
Björgun hefur frá árinu 2017 unn-
ið að framkvæmdum á svæðinu, m.a.
með landfyllingum í sjó fram. Þessu
verki verður fram haldið í sumar.
Bryggjuhverfi austur, við Elliða-
árvog/Grafarvog, er fullbyggt. Upp-
byggingin hófst fyrir rúmlega 20 ár-
um. Þarna eru nú 600 íbúðir og
skráðir íbúar um 1.100 talsins. Í
hverfið hefur vantað ýmsa þjónustu,
svo sem verslanir og skóla, en úr því
verður bætt í Bryggjuhverfi vestur.
Deiliskipulagssvæði Bryggju-
hverfis vestur er 14 hektarar og ger-
ir ráð fyrir íbúðabyggð ásamt til-
heyrandi nærþjónustu. Gert er ráð
fyrir 102 þúsund fermetrum ný-
bygginga ofanjarðar. Auk þess er
gert ráð fyrir allt að 45 þúsund fer-
metra niðurgröfnum eða hálf-niður-
gröfnum kjöllurum sem nýta má
Forrest Gump ehf., Eyrargötu í
Siglufirði, stofnað 2006, hefur verið
úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi
Norðurlands eystra.
Í Lögbirtingablaðinu kemur fram
að skiptafundur verði haldinn 19.
ágúst nk. og þarf að lýsa kröfum í bú-
ið til skiptastjórans, Júlíar Óskar
Antonsdóttur, fyrir þann tíma.
Fólk sýnir oft hugmyndaauðgi
þegar það stofnar félög. Sem dæmi
um nöfn félaga sem farið hafa í þrot
má nefna Reddý ehf., Frískari lengur
ehf., Lumbra ehf., Fílakastalinn slf.,
Púl ehf., Amma ehf., Kaos þjónusta
ehf., Sykurstaukur ehf., Mokarinn
ehf., How Do You Like Iceland ehf.,
Fish4you ehf. og I AM Iceland ehf.
Á vef Lögbirtingablaðsins sést að
það sem af er árinu hefur skiptum
verið lokið í þrotabúum 559 félaga.
Forrest
Gump er
gjaldþrota