Morgunblaðið - 23.05.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 23.05.2019, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Imperia pastavél Verð 16.900 kr. Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Allar almennar bílaviðgerðir TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ Fasteignir VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Það er nokkurra mínútna gangur frá Ráðhúsinu í Ósló að Astrup Fearn- ley-nútímalistasafninu á Aker- bryggju. Safnið er á svonefndum Þjófshólma, yst á Akerbryggju, en við það er lítil brú og baðströnd. Gunnar B. Kvaran hefur stýrt safninu frá árinu 2000. Hann lauk doktorsprófi í listfræði og fornleifafræði frá háskólanum í Aix-en-Provence árið 1986. Að loknu námi bjó Gunnar á Ís- landi í nokkur ár. Hann var for- stöðumaður Ásmundarsafns og svo forstöðumaður Kjarvalsstaða, sem í hans tíð var breytt í Listasafn Reykjavíkur. Hafnarhúsið varð að einu húsa Listasafns Reykjavíkur. Árið 1997 var Gunnari boðið að gerast forstöðumaður Bergen Kunstmuseum í Björgvin. Safninu var síðar gefið nýtt nafn, KODE. Uppgangurinn spurðist út Norski auðmaðurinn Hans Ras- muss Astrup hafði spurnir af upp- gangi í safnamálum í Björgvin. Úr varð að hann bauð Gunnari að taka við Astrup Fearnely-safninu, sem þá var við Drottningargötu í miðborg Óslóar. Hlutverk Gunnars var meðal annars að bæta alþjóðlega safnaeign safnsins, sérstaklega hvað varðar bandaríska samtímalist. Hans Rasmus Astrup átti hug- myndina að safninu og ánafnaði því listaverkasafn sitt. Safnið ber ættar- nafn hans og Fearnley-fjölskyld- unnar en sjóður í nafni Thomas Fearnley, Heddy og Nils Astrup er helsti bakhjarl safnsins. Hans Ras- mus varð áttræður í mars á þessu ári en hann lét af stjórn fjölskyldufyrir- tækisins fyrir nokkrum árum. Hans Rasmus á búgarð fyrir utan Óslo, höll í Skotlandi og íbúðir í mið- borg Óslóar og Rómar. Hann er mikill áhugamaður um veiði og eru sýningar ekki opnaðar meðan á rjúpna- og elgstímabilinu stendur. Á búgarði hans fyrir utan Ósló er safn norskrar myndlistar frá 19. öld. Astrup Fearnley-safnið hefur um 50 milljónir norskra króna í tekjur á ári, eða um 700 milljónir íslenskra króna, og borgar styrktarsjóðurinn um helminginn, eða um milljón ís- lenskra króna á dag. Hinn helming- urinn er m.a. fenginn með sölu að- göngumiða, leigu sýningarsala undir viðburði, sölu í listaverkabúð og út- leigu sýninga til annarra listasafna. Árið 2007 var tekin ákvörðun um að byggja hús undir Astrup Fearn- ley-safnið en það hafði frá stofnun árið 1993 verið í gamalli skrif- stofubyggingu. Olíuævintýrið var þá í algleymingi í Noregi og er Aker- bryggjan minnisvarði þess. Fyrir vikið er safnið byggt í nýlegu hverfi með heildstætt yfirbragð. Teiknað af Renzo Piano Safnið var opnað haustið 2012. Kostnaðurinn við bygginguna var um 700 milljónir norskra króna en það samsvaraði um 15 milljörðum ís- lenskra króna á miðju ári 2012. Safnið var teiknað af Renzo Piano, einum þekktasta arkitekt heims. Gunnar segir Piano hafa orðið fyrir miklum áhrifum af umhverfinu; firðinum, vatninu, fuglum og bátum. „Renzo Piano er mjög sérstakur á þann hátt að hann tekur alltaf tillit til umhverfisins. Hvítt þakið er eins og vængur, eða segl, og öll bygg- ingin skírskotar til báta. Súlurnar sem halda uppi húsinu minna á möstur og grafinn var skurður sem gengur í gegnum bygginguna. Við sáum það strax þegar við fengum teikningarnar að þetta væri mjög frumlegur arkitektúr og ábyggilega eitt mest spennandi verkefnið sem Renzo Piano hefði skilað frá sér,“ segir Gunnar og setur safnið í sam- hengi. Orðin táknræn fyrir Ósló „Byggingin hefur með tímanum orðið táknræn fyrir Ósló, rétt eins og nýja óperuhúsið, Snøhetta. Þessi bygging hjá Renzo Piano er hins vegar mun frumlegri og í mun meira meira samtali við umhverfið og menninguna. Þess vegna segir maður oft að Renzo Piano hafi ekki neinn fastan stíl, heldur sé hann Ljósmynd/Astrup Fearnley-safnið/Birt með leyfi Bjart Góð birta kemur frá firðinum. Stóra verkið til vinstri, Apparizione, er eftir Sigmar Polke en það er frá 1992. Ljósmynd/Astrup Fearnley-safnið/Birt með leyfi Á sumardegi Astrup Fearnley-safnið er teiknað af Renzo Piano. Fylgir eldlínu samtímalistarinnar  Astrup Fearnley-nútímalistasafnið í Ósló hefur styrkt stöðu sína í stjórnartíð Gunnars B. Kvaran  Er nú eitt helsta safn nútímalistar í Evrópu  Listheimurinn er nú margpóla sem skýrir metverð Morgunblaðið/Baldur Safnstjóri Gunnar B. Kvaran við formalínverk Damien Hirst, Móðir og barn (Aðskilin), frá árinu 1993.  SJÁ SÍÐU 34 Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.