Morgunblaðið - 23.05.2019, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
í fyrsta sæti hvað varðar spákaup-
mennsku í myndlist en New York og
London í næstu sætum. Markaður-
inn er einnig stór í París og Sao
Paolo. Milljónamæringar frá Kína,
Indlandi, Suður-Ameríku og ríkj-
unum við Persaflóann hafa keypt
mikið af list. Þá hefur Kísildalurinn í
Kaliforníu alið af sér nýja tegund
safnara,“ segir Gunnar sem hefur
auðvitað auga fyrir góðri list.
Hann kveðst aðspurður ekki fjár-
festa í list. Slíkt væri óviðeigandi.
Útheimtir mikil ferðalög
„Fyrir 20 árum voru Jeff Koons
og Damien Hirst ekki stórveldin sem
þeir eru í dag. Listamennirnir sem
við keyptum verk af á sínum tíma
voru viðurkenndir listfræðilega en
höfðu ekki öðlast þessa frægð.
Hans Rasmus er atvinnusafnari.
Við hittumst í hverri viku og förum
yfir möguleika á innkaupum og
skoðum tillögur frá galleríum og ein-
staklingum. Við erum líka með verk-
efni sem ég vinn sérstaklega að, til
dæmis að skoða ýmsa listamenn og
fá upplýsingar um verk þeirra.“
Ásamt góðu úrvali bandarískrar
samtímalistar á Astrup Fearnley-
safnið m.a. fjölda verka eftir kín-
verska myndlistarmenn, ekki síst þá
sem tilheyra svonefndri þriðju kyn-
slóð kínverskra myndlistarmanna.
Vegna þeirra innkaupa var Gunn-
ar með annan fótinn í Kína í nokkur
ár og byggði þar upp mikil sambönd.
Meginuppistaðan í safneigninni er
frá þessari öld. Með því á safnið að
endurspegla vel þróun samtíma-
listar á síðustu 30 árum.
Til að fylgjast með eldlínunni í
myndlistinni ferðast Gunnar heims-
horna á milli. Hann áætlar að vera 6
af hverjum 10 dögum á ferðalagi.
„Það eru mikil tengsl milli sýninga
og innkaupa. Þegar ég var ráðinn til
safnsins setti ég af stað sýninguna
Uncertain States of America. Ég
hafði þá góða yfirsýn yfir bandaríska
samtímalist en þurfti að öðlast enn
meiri dýpt í eigin samtíma. Það varð
úr að ég ferðaðist ásamt tveimur
kollegum mínum um öll Bandaríkin
á tveimur árum.“
Skírskotaði til óvissunnar
„Titill sýningarinnar, Uncertain
States of America, er tvíræður. Ann-
ars vegar vísar hann til óvissunnar í
alþjóðastjórnmálum [eftir árásirnar
á Tvíburaturnana] og hins vegar til
þess að við völdum óþekkta lista-
menn. Það var mikil óvissa í því,“
segir Gunnar en samstarfsmenn
hans við undirbúning sýningarinnar
voru Daniel Birnbaum, síðar
sýningarstjóri Moderna Museet í
Stokkhólmi, og Hans-Ulrich Obrist,
nú stjórnandi Serpentine-gallerísins
í Lundúnum. Báðir eru þeir vel
þekktir í heimi samtímalistar.
Gunnar bendir aðspurður á að
margir ungu listamannanna sem
verk eftir listamann sem er á lífi.
„Áður fyrr var abstraktlistin eða
popplistin í París eða New York.
Hitt var jaðarmenning. Nú er sú
skipting horfin. Myndlist sem er
framleidd í Kína, Skandinavíu,
Norður-Ameríku og víðar er nú
einnig í eldlínunni. Hong Kong er nú
tals yfir 20 milljarða íslenskra króna.
Það sé margfalt kaupverðið.
Hann segir myndlistarmarkaðinn
hafa breyst mikið á þessari öld, sem
endurspeglist í metverði fyrir list.
Til dæmis þegar kanínuverk Jeff
Koons seldist á rúma 11 milljarða í
síðustu viku. Það var metverð fyrir
meira eins og kamelljón sem aðlagar
sig aðstæðum hverju sinni,“ segir
Gunnar en byggingin sem slík er því
sjálfstætt tilefni til að skoða safnið.
Gunnar segir það vera sérstöðu
safnsins á Norðurlöndum að vera
einkasafn með alþjóðlega sam-
tímalist. Flest listasöfn í Skandi-
navíu séu þjóðarsöfn með list frá við-
komandi löndum, sem sé í samtali
við alþjóðlega list. Astrup Fearnley-
safnið sé hins vegar fyrst og fremst
með alþjóðlega list í samtali við
norska samtímalist.
Safnið á m.a. verk frá 8. og 9. ára-
tug síðustu aldar eftir málara á borð
við Francis Bacon, David Hockney,
Anselm Kiefer og Sigmar Polke.
Verðbólga í listheiminum
Mörg listaverkin hafa margfaldast
í verði og þannig á vissan hátt borg-
að upp tilkostnaðinn við safnið, þótt
það sé auðvitað ekki markmiðið.
Má þar nefna málverkin Triptych,
eftir Francis Bacon, og styttu Jeff
Koons af Michael Jackson og ap-
anum Bubbles. Áætlar Gunnar að
verkin tvö séu nú verðmetin á sam- þeir komu auga á hafi öðlast frægð.
Meðal þeirra Rodney McMillian,
Devandra Banhart, Frank Benson,
Miranda July og Paul Chan.
Verkin hafi verið ódýr á sínum
tíma, kannski kostað nokkur þúsund
dali. Nú geti einstök verk til dæmis
kostað milljón dali.
Frægðin er fallvölt og stefnur
koma og fara. Flestir listamenn
gleymast með tímanum.
Njóta jafnan hæfileikanna
Gunnar telur aðspurður að góðir
myndlistarmenn njóti almennt
viðurkenningar í lifanda lífi.
„Sagan sýnir að einn og einn
framúrskarandi listamaður verður
viðskila við viðurkennda list. Van
Gogh er ein af fáum undantekn-
ingum sem sanna regluna.
Hafa þarf góða blöndu af næmni
og gáfum og náttúrlega að finna upp
nýja frásagnaraðferð. Mjög fáir
myndlistarmenn af hverri kynslóð
hafa þessa séníeiginleika. Við erum
enda að ræða um listamenn sem hafa
breytt listhugtakinu. Þetta er mjög
elítísk sýn hjá okkar safni. Síðan eru
önnur söfn, eins og ríkislistasafnið í
Ósló, sem líta á myndlist sem hluta
af menningarframleiðslu. Hún sé
samtal margra listamanna. Það er
athyglisvert að menningarpólitíkin
hér í Noregi gerir ráð fyrir styrkjum
til menningarframleiðslu. Hún er
hluti af sjálfsmynd okkar og nauð-
synleg eins og skólar og sjúkrahús.
Menningarframleiðslan er okkar
sameiginlegi sjóður og líkt og vís-
indamennirnir færa listamenn okkur
inn í framtíðina. Öll heimsveldin,
hvort sem það voru Egyptar, Grikk-
ir eða Rómverjar, höfðu mikla
menningarframleiðslu sem var hluti
af sjálfsvitund þeirra,“ segir Gunn-
ar.
Ljósmynd/Astrup Fearnley-safnið/Birt með leyfi
Frá 2002 Verkið Höfrungur, eftir Jeff Koons, er í eigu Astrup Fearnley-safnsins.
Morgunblaðið/Baldur
Ungur Eitt rýmið er með verk Henrik Olai Kaarstein.
Morgunblaðið/Baldur
Frá 2007 Listaverkið God Alone Knows er eftir Damien Hirst. Sjá má önnur
verk Hirst endurspeglast í verkinu, sem skírskotar til krossfestingarinnar.
Morgunblaðið/Baldur
Frá 1975 Eitt verkið, Out of the Way, er eftir Erró.
Morgunblaðið/Baldur
2011 Jessie eftir Frank Benson.
Frístunda- og atvinnufatnaður
frá REGATTA
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna