Morgunblaðið - 23.05.2019, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 23.05.2019, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-15 Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi Fallegar vörur fyrir falleg heimili Sæll Valdimar. Ég kynntist manni en hann sagði mér ekki að hann væri í sambandi fyrr en við vorum búin að sofa saman. Hann talaði um börnin sín tvö eins og ekkert væri en minntist ekki einu orði á barns- móður sína og kærustu. Ég hélt að það væri í virðingarskyni við mig og hugsaði með mér að ég myndi spyrja hann kannski á þriðja stefnumóti. Hélt að hún væri kannski dáin og hann væri svona duglegur, einn með börnin. Mér gekk illa að hrista hann af mér jafnvel eftir að hann sagði mér frá því að hann ætti kærustu. Ég varð svo ótrúlega hrifin svo fljótt. Var eiginlega alveg í skýjunum. Svo hlustaði ég á hann segja mér alla sína sorgarsögu. Samband hans var erfitt. Búið að vera erfitt lengi. Mér fannst það ekki koma mér við og bað hann um að hætta að tala um sambandið sitt við mig. Okkar samskipti drógust á lang- inn. Við höfum þekkst í tæpa 8 mánuði. Hann sagðist elska mig. Allan þann tíma var hann ennþá með kærustunni sinni í bilaða sam- bandinu. Að hans sögn sofa þau ekki saman lengur og eru bara sambýlingar. Hann gat ekki bara hoppað burt frá skyldum sínum. Það á ég að skilja. Hversu lengi á ég að skilja? Hversu miklar líkur eru á því að hann muni halda framhjá mér líka? Og hversu mikl- ar líkur eru á því að hann muni nokkurn tíma fara úr sínu sam- bandi? Ég er ekki búin að vera í sam- skiptum við hann í nokkrar vikur og er að reyna að slíta mig í burtu. Allir sem ég hef talað við hafa sagt mér að hætta þessu en það er fáránlega erfitt. Ég legg það alls ekki í vana minn að vera með lof- uðum mönnum en hann náði bara einhverju taki á mér. Er þetta merki um slæma sjálfsvirðingu? Hvernig greinir maður ást frá þráhyggju? Ég er búin að greina hann með persónuleikaröskun (ansi narsissískur og mögulega só- síópati). Fyrir utan allt þetta þá er hann kynlífsfíkill. Frábær tilvon- andi maki! Ég gæti ekki treyst honum en mér líður bara eins og ég gæti samt horft framhjá öllu þessu. Eða breytt honum. Sjitt, hvað þetta er mikil klisja eitthvað. Er ást, alvöru ást, bara algjör blinda? Ég tel mig vera frekar klára konu. Eru það bara konur með lága sjálfsvirðingu sem falla fyrir svona svikulum gaurum? Kveðja, K Góðan daginn og takk fyrir þess- ar áhugaverðu spurningar. Þú nefnir litla sjálfsvirðingu og vissulega má færa rök fyrir því að hún valdi því að við upplifum okkur háð öðru fólki, sem er hluti af ást- arþrá (e. Love addiction). Auk þess mætti ræða það hvort það er góð sjálfsvirðing að tengjast fólki á mjög náinn máta, áður en við kynn- umst þeim nægilega vel, til dæmis til að vita hvort þau eru í öðru sam- bandi. Hafandi sagt þetta þá vil ég hrósa þér fyrir að setja mörk. Það er mikilvægt að vera raunsær í líf- inu og það á líka við um sambönd. Þú virðist tilbúin að líta á merkin sem þú nefnir sem ættu að blikka öllum viðvörunarljósum. Óheið- arleiki, vantraust, kynlífsfíkn, nars- isismi og möguleg persónuleik- aröskun eru allt atriði sem við myndum virkilega skoða áður en við færum að fjárfesta meira í sam- bandi við slíkan einstakling. Þá er ég alls ekki að leggja dóm á við- komandi og veit auðvitað ekkert um það hvort eitthvað af þessu er rétt. Þetta er engu að síður þín upplifun og þá er mikilvægt að þú hlustir á það og berir virðingu fyrir sjálfri þér til þess að setja heilbrigð mörk. Spennan sem myndast gjarnan í upphafi sambanda getur orðið mjög mikil og það á ekki síst við um sam- bönd við einstaklinga sem eru í ein- hverskonar ójafnvægi. Spennan í kringum óheiðarleikann getur magnað upp tilfinningar sem við ruglum stundum saman við ást. Það virðist líka vera að þessi aðili viti hvernig á að viðhalda spenn- unni og áhuganum miðað við það sem þú segir. Fyrst er verið að leyna þig hlutum og áður en þú veist ertu orðin þátttakandi í óheið- arleika (framhjáhaldi). Hann við- heldur óheiðarleikanum og leynd- armálinu með því að halda sambandinu áfram og segja þér trúnaðarmál úr sínu eigin sam- bandi, til dæmis að þau sofi ekki saman (þetta er orðið ykkar leynd- armál = sameiginlegt traust). Síð- an segir hann þér sorgarsögu sína (búa til meðaumkun og ýta undir þörf þína til að „bjarga“ eða breyta viðkomandi) og til að rugla þig enn meira í ríminu segist hann elska þig, þó hann sé í raun ekki tilbúinn að vera með þér. Ekkert af þessu skiptir þó í raun máli, það er að segja, hvað hann segir eða gerir. Það eina sem skiptir máli er hvað þú ætlar að gera í þessu. Þú nefnir sjálf að þú óttist að þú gætir litið fram hjá öllum viðvörunarljós- unum. Til þess að forðast algeng mistök þá er okkur öllum hollt að fá lánaða dómgreind, tala við ein- hvern sem sér málin án persónu- legra tenginga og getur sagt okkur hvað viðkomandi sér. Ég mæli því með því að þú haldir áfram að fá lánaða dómgreind gagnvart þessu máli og vertu góð við þig. Það er ekkert óalgengt né óeðlilegt að finna svona sterkar tilfinningar í svona málum og skiljanlega erfitt að losa sig frá þeim. Það gerist þó með tímanum og byggist á því að setja skýr mörk og vera ekki að bjóða sér upp á að „smakka“ öðru hverju á því sem kveikir á stjórn- lausri löngun. Gangi þér allt í haginn! Með bestu kveðju, Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Valdimar Þór Svavarsson Thinkstock Er ég með ástarþrá? Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá konu sem veltir því fyrir sér hvort hún sé með ástarþrá. Er þetta eðlilegt? Íslensk kona sendir spurningu til Valdimars og veltir fyrir sér hvort hún sé með ástarþrá.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.