Morgunblaðið - 23.05.2019, Síða 56

Morgunblaðið - 23.05.2019, Síða 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019 Framleiðum allar gerðir límmiða af mismunandi stærðum og gerðum Thermal Hvítir miðar Litamiðar Forprentaðir Athyglismiðar Tilboðsmiðar Vogamiðar Lyfsölumiðar Varúðarmiðar Endurskinsmiðar Flöskumiðar Verðmer Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is kimiðar Límmiðar 60 ára Birgir fæddist á Akureyri en ólst upp á Litluströnd í Mývatns- sveit og hefur ávallt búið þar. Birgir er bað- vörður hjá Jarðböð- unum og skógarbóndi. Hann hefur verið í Kiw- anisklúbbnum Herðubreið í rúm 30 ár. Systkini: Finnur Steingrímsson, f. 1960, Kristján Steingrímsson, f. 1962, og Egill Steingrímsson, f. 1963, d. 2015. Foreldrar: Steingrímur Kristjánsson, f. 1917, d. 1993, bóndi á Litluströnd, og Þóra Ásgeirsdóttir, f. 1925, d. 2017, hús- móðir á Litluströnd. Birgir Steingrímsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert fróðleiksþyrstur og skalt gefa þér tíma til að kynnast menningu ólíkra heima. Reyndu að skipuleggja dag- inn þannig að þér vinnist vel. 20. apríl - 20. maí  Naut Möguleikar til tekjuöflunar eru góðir í dag og aðstæður fyrir verslun og við- skipti hagstæðar. Láttu hrokann ekki ná yfirhöndinni í samskiptum þínum við aðra. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að taka meira tillit til annarra og þarft að varast að ganga yfir fólk, þótt boðskapur þinn sé góður. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það getur verið afskaplega pirr- andi, þegar samstarfsmenn halda ekki í við mann. En þér er hætt við að gera of miklar kröfur til vissrar persónu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú þarft að hafa gætur á óþolin- mæðinni og finna þér eitthvað smálegt til dundurs. Dagurinn hentar líka sérlega vel til að gera ferðaáætlanir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur háleit markmið varðandi framtíðina sem geta annaðhvort ýtt undir metnað þinn eða dregið úr þér kjark. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt það sé freistandi að leggjast í leti skaltu ekki láta það eftir þér. Líttu til þess sem vel hefur gengið og er þér og þínum til skemmtunar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt allt virðist vera á rúi og stúi í kringum þig skaltu ekki láta það glepja þig heldur halda þínu striki eins og ekkert sé. Sýndu öðrum samstarfsvilja, ef þú vilt ná árangri. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Til þess að koma þeim verk- efnum áleiðis, sem þú berð fyrir brjósti, verður þú að leita þér aðstoðar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að finna athafnaþrá þinni jákvæðan farveg. Lykilatriði er að þú gæðir samskipti við fólk húmor og sjarma. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú skalt ekki vera vonsvikinn þótt eitthvað renni þér úr greipum. Gefðu þér tíma til að vinna úr hlutunum og var- astu að særa aðra á meðan. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft ekkert að óttast að leggja starf þitt undir dóm annarra. Ef þú vilt eiga samskipti við einhvern aftur skaltu stíga fyrsta skrefið í kvöld. m.a. með góðum vinum til Liverpool í desember sl. til þess að hlýða á og sjá snillinginn Paul McCartney á tónleikum. Sú ferð er ógleymanleg í alla staði. Ég spila bridge með ágætum bridgefélögum yfir vetrartímann og svo hefur minn gamli vinahópur myndað með sér bókmenntaklúbb og við hittumst nokkrum sinnum að fjölmargar ferðir til útlanda með kórnum, sem hafa í alla staði verið mjög ánægjulegar.“ Að öðru leyti er Stefán mikill tón- listarunnandi og fer reglulega á sin- fóníutónleika. Auk þess er hann mikill Bítlaaðdáandi. „Bítlarnir voru mín hljómsveit á unglingsárunum og þeir eru að sjálfsögðu besta hljómsveit í heimi. Við hjónin fórum S tefán Már Halldórsson fæddist í Reykjavík hinn 23. maí 1949. Fyrstu tvö árin bjó hann á Hömrum við Suðurlandsbraut, en það hús er horfið fyrir löngu. Stað- setning hússins var ekki ýkja langt frá Valhöll, húsi Sjálfstæðisflokks- ins. „Tveggja ára gamall flutti ég í glænýtt hús við Drápuhlíð þar sem ég bjó fram yfir tvítugt. Í Hlíðunum var gott að alast upp og mikið um að vera. Hlíðarnar sunnan Miklubraut- ar voru að sjálfsögðu nánast 100% Valshverfi og ég hef alla tíð verið mikill stuðningsmaður Vals.“ Stefán var fjögur sumur í sveit hjá móður- systur sinni á Sólvöllum í landi Eyr- ar við Reyðarfjörð. Stefán gekk fyrstu tvö skólaárin í Eskihlíðarskóla en þaðan lá svo leið- in í Austurbæjarskóla þar sem hann var nemandi næstu fjögur árin. „Þá tók við Gagnfræðaskóli Austur- bæjar, eða Gaggó Aust eins og við kölluðum hann. Ég tók landspróf svokallað í þriðja bekk þar, sem veitti sjálfkrafa aðgang að Mennta- skólanum í Reykjavík. Þar var ég í stærðfræðideild og tók stúdentspróf vorið 1969. Ég lagði stund á nám í almennum þjóðfélagsfræðum við Háskóla Íslands, en vann jafnframt því hjá Landsvirkjun í hálfu starfi yfir veturinn og í fullu starfi yfir sumarið. Svo fór að ég lauk ekki náminu við HÍ, því ég réð mig í fullt starf hjá Landsvirkjun í júní 1974.“ Þar starfaði Stefán lengi vel í launa- og starfsmannamálum, varð síðar starfsmannastjóri fyrirtækisins og síðast deildarstjóri starfskjaradeild- ar. „Ég hætti störfum hjá Lands- virkjun 2013 eftir rúmlega 40 ára starf, og hef síðan gert það sem mér sýnist; farið til útlanda, sungið í kór og spilað bridge auk þess að passa barnabörnin af og til.“ Stefán varð félagi í karlakórnum Fóstbræðrum síðla árs 1981 og hef- ur verið virkur félagi þar æ síðan og var formaður kórsins 1995-1998. „Eins og allir vita er það mjög hollt fyrir sálina að syngja í kór, og þessi félagsskapur hefur gefið mér mikla lífsfyllingu. Við hjónin höfum farið í vetri og ræðum hvert bókmennta- verkið á fætur öðru af víðsýni, þekk- ingu og fjöri.“ Fjölskylda Stefán kvæntist 20. ágúst 1976 Þórunni Traustadóttur kennara. Hún er dóttir hjónanna Trausta Eyjólfssonar, rakara og ökukenn- ara, og Grétu Finnbogadóttur, hús- móður með meiru frá Vestmanna- eyjum. Börn Stefáns og Þórunnar eru: 1) Lilja Björk, f. 28.7. 1977, aðstoðar- maður sendiherra í París. Hún er búsett í Houilles í nágrenni Parísar og gift Francois Thierry-Mieg. Börn þeirra eru Andrea, f. 2002, Arthur Már, f. 2008, og Lína Rós, f. 2013; 2) Árni Freyr, f. 3.8. 1980, verkfræðingur. Hann er búsettur í Reykjavík og er kvæntur Julie Coadou. Börn þeirra eru Agata, f. 2011, og Felix, f. 2014; 3) Trausti, fæddur 20.1. 1985, verkfræðingur. Hann er búsettur í Reykjavík og er kvæntur Evu Maríu Árnadóttur. Dætur þeirra eru Saga Ísold, f. 2016, og Hrafntinna, f. 2018. Auk þess á Stefán son með Guðnýju Stefán Már Halldórsson, fyrrverandi deildarstjóri hjá Landsvirkjun – 70 ára Fjölskyldan Stefán og Þórunn ásamt börnum, mökum og barnabörnum heima í Fossvoginum árið 2012. Fóstbróðir og Bítlaaðdáandi Hjónin Stefán og Þórunn sáu Paul McCartney á tónleikum í Liverpool í fyrra. 40 ára Bryndís er úr Árbænum í Reykjavík en býr á Selfossi. Hún er grunnskólakennari í Sunnulækjarskóla. Maki: Sigurður Ágúst Pétursson, f. 1977, rafmagnsiðnfræð- ingur hjá RARIK. Börn: Pétur Már, f. 2000, Brynhildur Ruth, f. 2008, og Elísabet Bjarney, f. 2013. Foreldrar: Sævar Sigurðsson, f. 1941, d. 1984, sendibílstjóri, og Júlíana Ruth Woodward, f. 1942, d. 2017, kennari í Reykjavík. Bryndís Ósk Sævarsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.