Morgunblaðið - 23.05.2019, Blaðsíða 58
Brooks Koepka
» Árangur á risamótunum frá
því hann braut ísinn með sigri
á Opna bandaríska 2017.
» Opna bandaríska 2017: 1.
sæti.
» Opna breska 2017: 6. sæti,
PGA-meistaramótið 2017: 13.
sæti.
» Masters 2018: Meiddur,
Opna bandaríska 2018: 1. sæti,
Opna breska 2018: 39. sæti,
PGA-meistaramótið 2018: 1.
sæti.
» Masters 2019: 2. sæti, PGA-
meistaramótið 1. sæti.
GOLF
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Á tímum þegar spekingar telja að
samkeppnin hafi aldrei verið jafn
mikil í golfíþróttinni hefur Banda-
ríkjamaðurinn Brooks Koepka tek-
ið sig til og unnið fjögur af síðustu
átta risamótum í golfi sem hann
hefur tekið þátt í. Koepka hefur nú
unnið tvö risamót tvö ár í röð,
Opna bandaríska meistaramótið og
PGA-meistaramótið sem hann
vann á sunnudaginn. Þar setti
hann met en enginn annar hefur
varið tvo risatitla á sama tíma.
Brooks Koepka er 29 ára gamall
og ólst upp í West Palm Beach á
Flórída. Á þeim slóðum skortir
ekki golfvelli og hélt hann sig í
sínu heimaríki á háskólaárunum.
Keppti þá fyrir Florida State en
enginn íslenskur kylfingur hefur
keppt fyrir þann skóla í golfi þótt
íslensku kylfingarnir hafi verið
nokkuð víða í háskólagolfinu.
Koepka vann þrjú háskólamót og
fékk þann heiður að vera til-
nefndur sem All American. Hann
sást fyrst á stóra sviðinu á Opna
bandaríska meistaramótinu árið
2012. Komst þá inn sem áhuga-
maður en vakti ekki sérstaklega
mikla athygli þar sem hann komst
ekki í gegnum niðurskurð kepp-
enda.
Var á Áskorendamótaröðinni
Þrátt fyrir að vel hafi gengið í
háskólagolfinu er langt frá því
sjálfsagt að komast inn á stóru
mótaraðirnar eins og íslenskir
kylfingar þekkja. Koepka var víð-
sýnni en margir bandarískir kylf-
ingar og reyndi þá fyrir sér á
Áskorendamótaröð Evrópu árið
2012. Þar hefur Birgir Leifur Haf-
þórsson átt keppnisrétt árum sam-
an og Axel Bóasson átti þar
keppnisrétt í fyrra. Morgunblaðið
sendi Birgi fyrirspurn um hvort
hann hefði einhvern tíma verið
með Koepka í ráshópi eða haft af
honum einhver kynni árið 2012.
Svo var ekki og Birgir sagðist ekki
hafa rætt við hann að ráði en lýsti
honum sem mjög vingjarnlegum.
Lét Birgir þess jafnframt getið að
kollegarnir hefðu einnig borið Ko-
epka vel söguna, til dæmis Bret-
arnir.
Svo virðist sem Koepka hafi
lengi haft það í sér að landa sigr-
um á golfmótum þegar færi gefst.
Hann sigraði þrívegis á Áskor-
endamótaröðinni og fékk þá
keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.
Alls hefur hann unnið fjögur mót á
Áskorendamótaröðinni, tvö á jap-
önsku mótaröðinni, fimm á Evr-
ópumótaröðinni og sex á PGA-
mótaröðinni en þangað færði hann
sig árið 2014. Hinn 1. febrúar 2015
vann hann sitt fyrsta mót á PGA.
Hraður uppgangur Koepka á þess-
um tíma sýnir hversu hratt hlut-
irnir geta gerst í golfinu þegar
hæfileikaríkir og vinnusamir kylf-
ingar komast á bragðið.
Eyddi nánast spennunni
Koepka er sterkur á taugum
þegar spennan er mikil eins og
sást þegar hann vann fyrstu þrjú
risamótin. Honum hefur stundum
verið líkt við vél og þá ekki síst á
fyrri 36 holunum á PGA-meist-
aramótinu á fimmtudag og föstu-
dag. Bethpage Black-völlurinn
þótti svo erfiður viðureignar að
þeir sem náðu að komast undir
parið voru ánægðir með það. Ko-
epka hafði þá spilað á 63 og 65
höggum og fór langt með að eyða
allri spennu í mótinu. Búist var við
að Koepka og fleiri högglangir
kylfingar myndu vera í baráttunni
um sigurinn en enginn bjóst við
slíku skori.
Á lokadeginum sýndi „vélin“
hins vegar á sér mannlega hlið.
Taugaveiklun greip um sig á síðari
hluta lokahringsins. Fékk Koepka
fjóra skolla í röð frá 11.-14. holu.
Var hann þá á 9 undir pari samtals
en á sama tíma hafði Dustin John-
son fengið fugl á 15. holu. Var
Johnson þá á 8 undir pari. Á 14.
flötinni byrjuðu áhorfendur að
kalla „D.J., D.J. D.J.“ í þeim til-
gangi að láta Koepka vita hvern
þeir styddu í toppbaráttunni. Af
svipbrigðum Koepka að dæma virt-
ist honum bregða örlítið við þessa
kveðju. Johnson lenti hins vegar
fljótt í vandræðum sjálfur og því
hélst þessi spenna ekki og Koepka
fékk andrými til að landa sigrinum.
Er þetta líklega í fyrsta skipti sem
taugaveiklun sést hjá Koepka þeg-
ar hann berst um sigur.
„Vélin“ sýndi mannlega hlið
Brooks Koepka hefur sigrað á fjórum af síðustu átta risamótum sem hann
hefur tekið þátt í Áhorfendur í New York tóku afgerandi afstöðu með Johnson
AFP
Tilfinningar Brooks Koepka fagnar sigrinum á sunnudaginn.
Eitt
ogannað
58 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Arnar Freyr Arnarsson er í liði árs-
ins í sænsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik en þjálfarar og fyrirliðar í
deildinni ásamt fjölmiðlum tóku þátt í
valinu.
Arnar Freyr var valinn besti línumað-
urinn og er hann eini leikmaður Kristi-
anstad sem er í liði ársins en Kristi-
anstad, meistarar síðustu fjögurra
ára, voru óvænt slegnir út af liði Al-
ingsås 3:0 í undanúrslitunum.
Arnar Freyr hefur spilað sinn síðasta
leik með Kristianstad en hann gengur í
sumar í raðir danska úrvalsdeildarliðs-
ins GOG og verður þar samherji horna-
mannsins Óðins Þórs Ríkharðssonar.
Þrír íslenskir kylfingar hefja leik í
dag á mótum á sterkustu mótaröðum
heims í golfíþróttinni. Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir úr GR á Pure Silk
mótinu í Virginíu á LPGA-mótaröðinni
þeirri sterkustu í heimi. Valdís Þóra
Jónsdóttir úr Leyni og Guðmundur
Ágúst Kristjánsson úr GR verða
bæði á mótum á Evrópumótaröð-
inni, þeirri sterkustu í Evrópu.
Jabra Open heitir
mótið hjá Valdísi og
er leikið í Evi-
an-les-Bains í
Frakklandi
Guðmundur Ágúst
mun spila á
Made in Den-
mark sem
fer fram í
Danmörku
eins og
nafnið
gefur til
kynna,
nánar til-
tekið í Silke-
borg.
Ólympíufarinn Freydís Halla Ein-
arsdóttir hefur ákveðið að „leggja
keppnisskíðin á hilluna í bili,“ eins
og hún orðar það sjálf. Þessi 24
ára landsliðskona í alpagreinum
hefur sinnt sinni íþrótt samhliða
háskólanámi í Bandaríkjunum, og
stefnir nú á frekara nám og störf
erlendis.
Freydís keppti meðal annars á
Vetrarólympíuleikunum 2018 og á
fjórum heimsmeistaramótum. Hún
vann meðal annars sjö Íslands-
meistaratitla í flokki fullorðinna; í
svigi, stórsvigi og samhliðasvigi.
Freydís Halla
lætur gott heita
Ljósmynd/SKÍ
S-Kórea Freydís Halla Einarsdóttir
á Vetrarólympíuleikunum 2018.
Craig Pedersen hefur valið tólf
manna landsliðshóp Íslands sem
leikur í körfubolta karla á Smá-
þjóðaleikunum í Svartfjallalandi
þegar þeir hefjast í næstu viku.
Mikil forföll eru en alls gátu 13
leikmenn ekki gefið kost á sér
vegna anna með sínum félagsliðum,
meiðsla eða af öðrum ástæðum.
Meðalaldur íslenska hópsins er
lágur eða aðeins 24,2 ár. Tveir í
hópnum hafa ekki leikið landsleik,
þeir Hilmar Smári Henningsson úr
Haukum og Halldór Garðar Her-
mannsson úr Þór Þorlákshöfn.
Ungt landslið til
Svartfjallalands
Ljósmynd/SKÍ
Nýliði Halldór G. Hermannsson
spilar brátt sína fyrstu landsleiki.