Morgunblaðið - 23.05.2019, Síða 59
SMÁÞJÓÐALEIKAR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Ísland sendir 120 keppendur auk
um 50 starfsmanna til þátttöku á
Smáþjóðaleikunum sem settir
verða í Svartfjallalandi á mánu-
dagskvöld. Um er að ræða stærsta
fjölliðamót sem haldið hefur verið í
Svartfjallalandi sem nú tekur þátt í
leikunum í fjórða sinn. Kepp-
endafjöldi Íslendinga er svipaður
og á undanförnum leikum en að
sögn Örvars Ólafssonar, aðalfar-
arstjóra íslenska hópsins, helst
fjöldi þátttakenda nokkuð í hendur
við framboð íþróttagreina á hverj-
um leikum fyrir sig. Alls verða
þátttakendur um 1.000 frá átta
þjóðum á leikunum sem slitið verð-
ur laugardagskvöldið 1. júní.
Auk Íslands og Svartfjallalands
taka íþróttamenn frá Mónakó,
Kýpur, Liechtenstein, Lúxemborg,
Möltu og San Marínó þátt.
Keppnisgreinar leikanna verða
tíu og taka Íslendingar þátt í átta,
blaki, borðtennis, frjálsíþróttum,
körfuknattleik, júdó, skotfimi,
sundi og tennis. Íslendingar taka
ekki þátt í strandblaki og úti-boccia
sem er vinsæl íþróttagrein víða við
Miðjarðarhafið en hefur ekki skotið
rótum hér á landi.
Að þessu sinni verður bryddað
upp á þeirri nýjung í sundkeppn-
inni að keppt verður í 50 metra
sundi. Fram til þessa hefur 100
metra sund verið stysta vegalendin
í sundkeppninni. Reikna má með að
viðbótin verði vatn á myllu íslenska
sundfólksins sem alla tíð hefur ver-
ið sigursælt á Smáþjóðaleikunum.
„Smáþjóðaleikarnir eru fjöl-
mennasta íþróttamót sem Íþrótta-
og Ólympíusambandið sendir kepp-
endur á. Þátttaka í leikunum skipt-
ir verulegu máli fyrir íþróttalífið
hér á landi,“ sagði Örvar í samtali
við Morgunblaðið. „Leikarnir hafa
ekki aðeins verið kærkominn við-
burður fyrir margt okkar fremsta
íþróttafólk heldur hefur einnig
skapast vettvangur fyrir fagteymi
íþróttahreyfingarinnar til þess að
öðlast reynslu til að takast á við
enn stærri viðburði eins og til
dæmis Ólympíuleika,“ sagði Örvar.
Allir vilja taka þátt
Nokkrir af allra fremstu íþrótta-
mönnum Íslendinga um þessar
mundir taka þátt í leikunum. Má
þar nefnda frjálsíþróttafólkið Anítu
Hinriksdóttur, Ásdísi Hjálmsdóttur
og Guðna Val Guðnason og sund-
mennina Anton Svein McKee og
Eygló Ósk Gústafsdóttur. „Það er
afar jákvætt að okkar fremsta
íþróttafólk taki þátt í leikunum
jafnvel þótt þau geti á sama tíma
valið úr fleiri mótum og hugsanlega
sterkari. Öll þekkja þau hvað leik-
arnir standa fyrir og vilja með þátt-
töku sinni vera hluti af leikunum og
taka þátt og mynda þá skemmti-
legu stemningu sem fylgir leik-
unum, meðal annars vegna þess að
þar blandast saman margar
íþróttagreinar sem ekki er endilega
mikill samgangur á milli dags-
daglega. Auk þess þá getur þátt-
taka í leikunum skipt máli þegar
kemur að undirbúningi og þátttöku
í enn stærri mótum eins og Ólymp-
íuleikum,“ sagði Örvar ennfremur.
Íslendingar sigursælir
Smáþjóðaleikarnir voru fyrst
haldnir 1985 og hafa síðan farið
fram annað hvert ár í einhverju
þeirra landa sem eiga aðild að og
getið er um hér að framan. Íslensk-
ir íþróttamenn hafa ævinlega verið
í fremstu röð á leikunum og tekið
þátt í flestum greinum sem end-
urspeglast vel í að Íslendingar eru í
þriðja sæti í röðinni yfir sigursæl-
ustu keppnisþjóðir leikanna,
skammt á eftir Lúxemborg og Kýp-
ur.
Svartfellingar, sem nú senda
keppendur í fjórða sinn, verða
gestgjafar leikanna í fyrsta skipti.
Mikil íþróttahefð ríkir í Svartfjalla-
landi og eins í hinum grannríkj-
unum sem áður mynduðu sósíalíska
sambandslýðveldið Júgóslavíu.
Örvar segir að Svartfellingar sendi
sterkara keppnislið til leiks en
nokkru sinni áður enda á heima-
velli. Heimamennn ætla að vera
sigursælir á heimavelli, ekki aðeins
í blaki og í körfuknattleik þar sem
þeir standa vafalítið fremstir meðal
jafningja heldur einnig í öðrum
greinum. Eins er víst að Lúx-
emborg sendi harðsnúnari keppn-
issveit til leiks en oft áður. Ástæð-
an er sú m.a. að mikill uppgangur
hefur verið í íþróttalífi Lúx-
emborgar á undanförnum árum
sem hefur m.a. skilað sér í fleiri
keppendum á Ólympíuleikum.
Góð aðstaða
Örvar segir að öll aðstaða til
keppni sé fyrsta flokks í Svart-
fjallalandi. Eins verði aðbúnaður til
fyrirmyndar þar sem allir þátttak-
endur munu búa á sama svæði. Þá
sé ekki ýkja langt frá gististað að
keppnisstöðum. Helst að það sé
nokkur vegalengd frá Budva, þar
sem gist er, og til höfuðborgarinnar
Podgorica þar sem sundkeppnin
fer fram. Fyrir vikið hefur sund-
keppnin verið stytt um einn dag en
hver keppnisdagur stendur lengur
yfir en áður til viðbótar við að und-
ankeppnin verður felld niður. Auk
Podgorica fer keppnin fram í Bar,
Tivat og Cetinje, allt við Adríahafs-
strönd Svartfjallalands.
„Það verður gaman að bera okk-
ar íþróttafólk saman við þá sveit
sem heimamenn senda til leiks
vegna þess að vitum að Svartfell-
ingar senda sitt femsta íþróttafólk í
allar greinar. Samkeppnin verður
meiri nú en nokkru sinni áður. Til-
koma Svartfellinga á Smáþjóðaleik-
um hefur styrkt leikana. Sem dæmi
má nefna að Svartfellingar eru
mjög framarlega meðal Evr-
ópuþjóða í körfuknattleik og blaki,“
segir Örvar.
Íslenski hópurinn fer í beinu
leiguflugi með Icelandair til Podgo-
rica, höfuðborgar Svartfjallalands,
á sunnudag. Ákveðið var að fara
með leiguvél til að auðvelda ferða-
lagið eftir slæma reynslu sem
menn búa að frá leikunum í San
Marínó fyrir tveimur árum þegar
keppendur lentu í töfum og urðu
jafnvel strandaglópar vegna verk-
falla í flugi í Evrópu og misstu þar
af leiðandi af tengiflugi áfram til
San Marínó. Dæmi voru jafnvel um
að keppendur færu beint af flug-
velli á Ítalíu og í keppni lítt eða
ósofnir og jafnvel hafði farangur
þeirra orðið einhvers staðar eftir á
leiðinni. Örvar segir beint leiguflug
með hópinn koma ekki síður fjár-
hagslega út fyrir ÍSÍ, auk þess sem
það auðveldar mjög skipulagningu
ferðarinnar og auðveldar flutning á
öllum þeim varningi sem fylgir
þátttökunni.
Sérsambönd ÍSÍ höfðu tækifæri
allt þar til í fyrradag til þess að til-
kynna hverja þau senda á leikana
fyrir Íslands hönd. „Spennan er
jafnt og þétt að aukast eftir sem
nær dregur brottför okkar. Ég
verð ekki var við annað en eft-
irvænting ríki meðal allra sem fyrir
að taka þátt í Smáþjóðaleikunum í
Svartfjallalandi í byrjun næstu
viku,“ sagði Örvar Ólafsson, að-
alfararstjóri íslenska íþróttahóps-
ins. Með honum í fararstjórn verða
Halla Kjartansdóttir og Ragna
Ingólfsdóttir, starfsmenn ÍSÍ, en
sú síðarnefnda er þrautreynd
keppniskona og ólympíufari.
Mæta snarpari mótspyrnu
heimamanna að þessu sinni
Svartfellingar gestgjafar Smáþjóðaleika Á annað hundrað Íslendinga með
Morgunblaðið/Golli
Hátíð Smáþjóðaleikarnir fóru síðast fram hér á landi fyrir fjórum árum. Setningarhátið leikanna var litrík.
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
GLÁMUR
Dvergarnir R
Dvergurinn Glámur
er 35 cm á hæð,
vegur 65 kg og er með
innsteypta festingu fyrir 2“ rör
Öflugur skiltasteinn
fyrir umferðarskilti
Kristófer Acox, landsliðs-
maður í körfuknattleik, var í for-
vitnilegu viðtali í Sunnudags-
Mogganum hinn 11. maí. Var
viðtalið lipurlega skrifað af Orra
Páli Ormarssyni, sem Róbert
Örn Hjálmtýsson, tónlist-
armaður, kallar „Maradona lykla-
borðsins.“
Kristófer ræddi þar meðal
annars um föður sinn Terry Acox
sem lék hér á landi um tíma með
ÍA. Mikill háloftafugl eins og Ein-
ar Bollason myndi orða það og
troðslukóngur á sínum tíma.
Ég sá Terry leika með ÍA gegn
Bolvíkingum í 1. deildinni þegar
ég var í grunnskóla. Er það eft-
irminnilegt vegna þess að kapp-
inn braut aðra körfuna í musteri
vatns og vellíðunar í Bolungarvík
í einni troðslunni.
Orðatiltækið að góð ráð séu
dýr átti þar einstaklega vel við.
Á sunnudegi um hávetur í einni
nyrstu byggð í heimi er ekki
hlaupið að því að finna aðra
körfu til að síga niður úr loftinu í
íþróttahúsinu. Varla er heldur
boðlegt að fresta leiknum með
tilheyrandi vinnutapi fyrir
áhugamenn sem komnir eru um
langan veg frá Akranesi.
Leifur Garðarsson dómari fór
ekki á taugum. Vopnaður máln-
ingarteipi úr verslun JFE teipaði
hann línur sem þurfti til þess að
spila á körfur sem voru þversum
í íþróttahúsinu. ÍA og UMFB luku
því leiknum með því að spila
þversum. Lið Skagamanna átti
eftir að koma verulega á óvart í
efstu deild á árunum eftir þetta.
Fór í bikarúrslit og undanúrslit
Íslandsmótsins.
Terry er löngu hættur og son-
urinn tekinn við háloftasýn-
ingum en Leifur er enn að dæma
og stendur sig vel. Sjálfur hef ég
lokið grunnskólanum og náði
samræmdu prófunum.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is