Morgunblaðið - 23.05.2019, Side 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2019
Utanborðsmótorar
Frá 1940
www.velasalan.is
Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar
Fyrirliggjandi á lager,
margar stærðir
utanborðsmótora
Verkstæði Vélasölunnar
hefur á að skipa sérhæfum
starfsmönnum til viðgerða
og viðhalds á Mercruiser
bátavélum og Mercury
utanborðsmótorum.
Bátar á
sjó og vötn
Ný sending af TERHI bátum
TERHI 475 BR TERHI 450
Skáldkonan Jokha Alharthi frá
Óman hlaut í vikubyrjun alþjóðlegu
Man Booker-verðlaunin fyrir skáld-
söguna Celestial Bodies. Á vef New
York Times kemur fram að verkið er
það fyrsta sem upprunalega er skrif-
að á arabísku sem hlýtur þessi virtu
verðlaun. Man Booker-verðlaunin
eru veitt fyrir bækur sem þýddar
hafa verið á enska tungu og gefnar
út í Bretlandi. Margir telja verð-
launin vera þau merkilegustu sem
úthlutað er fyrir bækur þýddar á
ensku. Höfundurinn mun deila verð-
launafénu, 50 þúsund pundum, með
þýðanda verksins, Marilyn Booth.
Bókin, sem gerist í Óman á
Arabíuskaga, er fjölskyldusaga um
þrjá ættliði sem nær frá 1880 til
dagsins í dag. Í bakgrunni eru þær
umbreytingar sem urðu þegar ríkið
sneri frá því að vera miðstöð þræla-
sölu og hóf olíuframleiðslu. Á vef
Man Booker-verðlaunanna er haft
eftir höfundinum, Alharthi, að rit-
höfundar frá Óman vilji að erlendir
lesendur líti á landið með opnum
hug og hjarta.
Vakið hefur athygli að fimm af
þeim sex höfundum auk allra þýð-
endanna sem komust á stutta lista
tilnefndra eru konur. Verk Alharthi
var valið fram yfir verk þekktari
höfunda á borð við hina pólsku Olga
Tokarczuk sem vann til verð-
launanna í fyrra fyrir skáldsöguna
Flights og hina frægu frönsku skáld-
konu Annie Ernaux.
Vert er að geta þess að hinn
palestínsk-íslenski Mazen Maarouf
var einn þrettán höfunda sem til-
nefndir voru til verðlaunanna; fyrir
bók sína Brandarar handa byssu-
mönnum. Hún kom út á íslensku í
fyrra í þýðingu Ugga Jónssonar.
AFP
Gleði Skáldkonan Jokha Alharthi
að vonum ánægð með verðlaunin.
Alharthi hlýtur Man
Booker-verðlaunin
Söngkonan Kristín Stefánsdóttir
heldur tónleika í kvöld í Bæj-
arbíói í Hafnarfirði og flytur lög
Norah Jones ásamt hljómsveit og
bakröddum. „Við héldum tvenna
Burt Bacharach-tónleika í fyrra
sem voru mjög glæsilegir og vel
heppnaðir. Það hvatti okkur til
að halda áfram og fyrir valinu
varð Norah Jones. Við erum með
frábært tónlistarfólk með okkur
nú sem áður og óhætt að lofa að
þessir tónleikar verði ekki síður
glæsilegir,“ segir Kristín í til-
kynningu.
Hún segir gaman og krefjandi
að syngja lög Jones, þau þurfi
ákveðna dýpt og tengingu svo
þau skili sér.
Hlynur Þór Agnarsson útsetur
lögin og alls verða flytjendur 12
á tónleikunum. Meðal laga sem
flutt verða eru „Don’t know
why“, „Sunrise“ og „Come away
with me“. Tónleikarnir hefjast
23. maí og miðasala er á midi.is.
Söngkona Kristín Stefánsdóttir er
bæði tannlæknir og söngkona.
Kristín syngur
lög Norah Jones
Skoffín er nýjasta viðbótin ínokkuð skemmtilega ís-lenska dægurlagahefð semsegja má að eigi að ein-
hverju leyti uppruna sinn í meistara
Megasi. Sprengjuhöllin var ein af
fyrstu sveitunum sem fetuðu þessi
fótspor frumlegra útsetninga og
gáfulegra laga- og textasmíða með
góðri slettu af húmor. Í kjölfarið er-
um við búin að heyra í Jakobín-
urínu og Grísalappalísu með við-
komu í Moses Hightower og
mörgum til viðbótar að sjálfsögðu.
Þótt þessar sveitir séu
ólíkar innbyrðis eiga þær
það þó sameiginlegt að
vera eins konar spegill á
samtímann og ekki síst á
ungt fólk og það sem það
er að finna fyrir og upplifa,
og nú er sumsé komið að
Skoffíni að spegla samtímann fyrir
okkur.
Platan hefst með frábæru lagi,
„Skoffín flytur í borgina“, sem gef-
ur tóninn um hvers lags plata er
þarna á ferð. Hljómurinn er góður
en inniheldur samt hrátt yfirborð
og heilbrigðan skammt af unglinga-
mótþróa. Maður fær strax á tilfinn-
inguna að þetta sé þroskasaga ungs
manns sem er nýfluttur í borgina
og lögin tíu sem birtast manni hvert
af öðru eru eins og svipmyndir úr
lífi hans. Hann sefur hjá og fer í
veislur og reynir að komast af í
ringluðum heimi borgarinnar sem
gefur og tekur orku. Lagið
„Sígarettur og vín“ er virki-
lega skemmtileg innsýn í
gott partí og „Bína Bína“
hljómar eins og fullkomið brúðkaup
Megasar og Grísalappalísu.
En svo eru lög sem eru alveg
ótrúlega skrýtin í samhenginu.
Lagið „Risar“ hljómar til dæmis
eins og eitthvert lag með 200.000
naglbítum en svo tekur rosaleg ef-
fektasúpa lagið yfir og þá er það
orðið að Skoffíns-lagi aftur. Titillag
plötunnar, „Skoffín bjargar heim-
inum“, er píanóballaða með
strengjaútsetningu en það er eitt-
hvað undarlegt á seyði í því og text-
inn dulur og dapur. „(Ekki) Leon-
ard C“ er með ótrúlega óvæntri
þögn aftarlega í laginu, og í lokalagi
plötunnar, „Stökur“, er Jóhannes
Bjarki einn með gítar að syngja
daprar ástarvísur og svo brestur
röddin og allir hlæja og platan er
búin.
Ég verð að viðurkenna að ég er
svolítið týnd í þessum heimi Skoff-
íns, en ef til vill er það nákvæmlega
það sem Skoffín vill að hlustendur
hans séu. Platan er alls ekki heil-
steypt, en það kemur samt ekkert
endilega að sök. Góðu lögin eru
svakalega góð og skrýtnu lögin á
móti alveg verulega skrýtin. Text-
arnir eru á íslensku og skipta máli
og fyrir fróðleiksfúsa menningar-
grúskara er Skoffín vel þess virði
að rannsaka betur. Skoffín bjargar
heiminum er samt líklega ekki að
fara að bjarga heiminum en gæti
hrist upp í hlustendum og haft góð
áhrif á sköpunargáfuna.
Ljósmynd/Hugi Ólafsson
Spegill Skoffíns
Geisladiskur
Skoffín – Skoffín bjargar
heiminumbbbmn
Skoffín er Jóhannes Bjarki Bjarkason
Thelion sem semur lög og texta, syngur
og leikur á píanó. Gítarar: Bjarni Daníel
og Sigurpáll Viggó Snorrason; bassi:
Auðunn Orri Sigurvinsson; trommur og
píanó: Andrés Þór Þorvarðarson; fiðla:
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir; selló: Freyja
Jónsdóttir; trompet: Kári Hrafn Guð-
mundsson; saxófónn: Kári Ísleifsson.
Tekið upp í Stúdíó Sýrlandi haust og
vetur 2018 af Örlygi Steinari Arnalds.
Post-dreifing gefur út, 2019.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST Skoffín Jóhannes
Bjarki Bjarkason
Thelion kallar sig
Skoffín.
Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmason-
ar, Hvítur, hvítur dagur, sem var
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Cannes 16. maí, hefur hlotið prýði-
legar viðtökur gagnrýnenda sem
lofa sérstaklega frammistöðu Ingv-
ars E. Sigurðssonar sem fer með
aðalhlutverkið í myndinni. Ingvar
hlaut í gær verðlaun sem besti leik-
arinn á Critic’s Week, einum hluta
hátíðarinnar í Cannes. Gagnrýn-
endur The Hollywood Reporter og
Screen International eru báðir já-
kvæðir í umsögnum sínum.
Framleiðandi myndarinnar, Ant-
on Máni Svansson, segir að frum-
sýningin hafi gengið vonum framar
og að spenna hafi verið í loftinu og
mikið hlegið en einnig hafi fallið tár.
Anton segir blaðamann Screen Int-
ernational, Wendy Mitchell, hafa
skrifað á samfélagsmiðlum að
myndin væri meðal þeirra mest um-
töluðu á hátíðinni og að gagnrýn-
andi MUBI hafi lýst myndinni svo
að hún væri sú sem mest hefði
reynt á taugar hennar og tilfinn-
ingar af þeim sem hún hefði séð á
hátíðinni.
Myndin fjallar um lögreglustjóra
sem hefur verið í starfsleyfi frá því
að eiginkona hans lést af slysförum.
Hann einbeitir sér að því að byggja
hús fyrir dóttur sína og afastelpu,
þar til athygli hans beinist að manni
sem hann grunar að hafi átt í ástar-
sambandi við eiginkonu hans. Sýn-
ingar á Íslandi hefjast 6. september.
Samstarfsmenn Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir sem fer
með hlutverk dóttur hans í kvikmyndinni Hvítur, hvítur dagur.
Ingvar E. Sigurðsson
verðlaunaður í Cannes
Ljósmynd/Pierre Claudevelle