Morgunblaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Próf sem þungaðar konur geta valið að und-
irgangast hér á landi til þess að athuga hvort
fóstur þeirra beri litningagalla eru misáreið-
anleg. NIPT próf, sem einungis er hægt að
fara í á einkarekinni læknastofu hérlendis, er
talsvert áreiðanlegra en samþætt líkindamat
sem er í boði á Landspítalanum. Konur sækja
núorðið í NIPT próf í auknum mæli.
„Samþætt líkindamat gefur allt að 90%
næmi til að greina þessar þrjár þrístæður, 13,
18 og 21 en NIPT prófið hefur 99% næmi fyr-
ir þrístæðu 21 og örlítið lægri fyrir hinar þrí-
stæðurnar,“ segir Hildur Harðardóttir, fæð-
ingar- og kvensjúkdómalæknir hjá Livio, einu
læknastofunni sem býður upp á NIPT-próf.
Livio er einkarekin stofa sem einnig býður
upp á ófrjósemismeðferðir. NIPT próf hefur
verið í boði hjá Livio síðan í fyrra en 5-7 kon-
ur hafa komið í prófið í hverjum mánuði síðan
í febrúar á þessu ári.
Kristín Rut Haraldsdóttir, sérfræðiljós-
móðir á Landspítalanum, segir að Landspít-
alinn hafi ekki átt kost á að bjóða upp á NIPT
prófið vegna þess hve dýrt það sé.
„Við vonumst til þess að geta boðið konum
sem fá auknar líkur upp á NIPT innan
skamms.“
Með því að senda konur í NIPT próf þegar
í ljós kemur að auknar líkur séu á litninga-
galla er hægt að fækka legvatnsástungum
töluvert en legvatnsástungur fela í sér inngrip
og geta verið hættulegar fóstrinu, að sögn
Kristínar.
Hún segir aðsókn í NIPT prófin vera að
aukast. „Einhverjar konur kaupa sér það í Li-
vio og síðan fara konur sem hafa kynnst því
erlendis jafnvel út í próf. Á mörgum stöðum
erlendis geturðu keypt það á einkastofum.“
64 þúsund króna munur
Hildur segir eðli prófanna mismunandi. „Í
NIPT er erfðaefni fóstursins skoðað, lítil brot
af erfðaefni sem eru í blóði mömmunnar svo
það er mun áreiðanlegra en líkindamatið.
Samkvæmt orðanna hljóðan er í líkindamat-
inu verið að reikna út líkur. Þær eru byggðar
á ómskoðun, meðgöngulengd, hnakkaþykkt
og blóðprufum með lífefnavísunum.“
Sýni sem tekin eru fyrir NIPT prófið eru
send á Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi
og niðurstöður berast eftir 10 til 14 daga. Að
fara í NIPT próf hjá Livio kostar 80 þúsund
en að fara í samþætt líkindamat kostar að há-
marki 16 þúsund hérlendis. Kostnaðurinn fyr-
ir NIPT fer þó lækkandi. „Ný próf eru dýrust
fyrst og lækka svo smám saman,“ segir Hild-
ur.
Hildur segir að vissulega hafi einstaklingar
fæðst með litningagalla þó ekkert hafi bent til
þess í samþættu líkindamati. „Frá því að
þetta samþætta líkindamat var tekið upp 2003
var vitað að þetta hefði næmi upp á 90% og þá
eru náttúrulega aldrei alveg öll tilvik sem
greinast. Það verður alltaf þannig en svo eru
náttúrulega aldrei allir sem hafa áhuga á að
mæta í svona próf.“
Áreiðanlegri próf á einkastofu
Próf vegna litningagalla eru misáreiðanleg Áreiðanlegra prófið er of dýrt fyrir Landspítalann
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Spítali Landspítalinn hefur til þessa ekki haft tök á að bjóða upp á NIPT-prófið sem er 99% nákvæmt en býður í þess stað upp á samþætt lík-
indamat sem er 90% nákvæmt. Kristín vonar að brátt verði hægt að bjóða konum sem fá jákvæðar niðurstöður úr líkindamatinu að fara í NIPT.
Um 12.000m² af fasteignum er að ræða sem að stórum hluta hýsir starfsemi Heklu hf.
Eignamiðlun kynnir til sölu fasteignir Heklu við Laugaveg 168-174.
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Sími 864 5464
gudlaugur@eignamidlun.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR
Óskað er eftir tilboðum.