Morgunblaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2019 Það gerist ekki á hverjum degi að leið- togar Þýskalands sæki Ísland heim. Í júní sl. heimsótti okkur forseti Þýskalands, Frank- Walter Steinmeier, ásamt eiginkonu sinni og nú í ágúst er von á kanslara Þýskalands, Angelu Merkel. Þessar heimsóknir leiðtoga Þýskalands leiða hugann að margþættu sam- bandi ríkjanna tveggja, Íslands og Þýskalands, sem á sér aldalanga sögu. Þýska öldin á Íslandi Þýska öldin er það tímabil nefnt í Íslandssögunni þegar þýskir kaup- menn voru ráðandi í utanríkis- verslun Íslendinga. Þjóðverjar stunduðu á þessum tíma einnig veið- ar við Íslandsstrendur og gerðu út frá íslenskum verstöðvum. Elsta heimild um siglingu þýskra kaupmanna til Íslands er frá 1432. Um 1470 urðu komur kaupmann- anna árvissar og er þýska öldin talin hefjast um það leyti. Hún stóð svo alla 16. öldina, eða þar til einokunar- verslun danskra kaupmanna var komið á í upphafi 17. aldar. Þýsku kaupmennirnir tilheyrðu miklu verslunarsambandi sem kallaðist Hansasambandið og réð nær allri verslun í Norður-Evrópu og við Eystrasalt. Þeir Hansakaupmenn sem hingað sigldu voru flestir frá Lübeck, Hamborg og Bremen. Tengsl Íslendinga við Þýskaland voru töluverð á þessum tíma og ung- ir Íslendingar byrjuðu þá strax að leggja leið sína til Þýskalands til náms. Íslenskir námsmenn í Þýskalandi Þýskaland hefur fóstrað margan Íslendinginn um lengri eða skemmri tíma, þar á meðal undirritaða. Menntaskólaþýskan opnaði mér, eins og mörgum öðrum Íslend- ingum, leið í þýska háskóla og þýskt samfélag. Hér ber að hafa í huga að þýskt málsvæði er mun stærra en Þýskaland eitt, það nær m.a. einnig til Austurríkis og Sviss og 130 milljónir manna í Evrópu tala þýsku sem móðurmál eða sitt annað tungumál. Þýska er útbreiddasta tungan innan Evrópusam- bandsins. Hér á landi eru nú færri sem velja þýsku í menntaskóla en áður – og því e.t.v. færri sem ná að kynn- ast þýskri menningu í allri sinni dýpt og fjöl- breytileika. Í Þýskalandi hafa ís- lenskir námsmenn lagt stund á ólík- ar greinar, s.s. arkitektúr, guðfræði, íþróttafræði, hves kyns raun-, fé- lags- og hugvísindi, kvikmyndagerð og -leik, tónlist og verkfræði. Með aðild Íslands að Evrópska efnahags- svæðinu (EES) var Íslendingum gert enn auðveldara en áður að dvelja í Þýskalandi við nám og störf. Siðbótin Saga Þýskalands er samtvinnuð sögu Evrópu. Saga siðbótarinnar á 16. öld hefst í Þýskalandi og miðað er við það þegar Marteinn Lúther festi skjal með 95 greinum á kirkju- hurðina í Wittenberg árið 1517. Lúther vildi siðbót innan kirkjunnar og barðist m.a. gegn sölu aflátsbréfa sem notuð voru til að fjármagna framkvæmdir í Róm. Aðrir siðbótar- menn eins og Zwingli og Kalvín fylgdu fordæmi Lúthers. Einn sam- verkamanna hans, Jóhannes Bugen- hagen, lagði grunn að kirkjuskipan Íslands, sem samþykkt var á alþingi 1541. Siðbótarmenn réðust gegn mörgum af grundvallarkenningum kaþólsku kirkjunnar eins og trúnni á hreinsunareldinn, tilbeiðslu Maríu og trúnni á milligöngu dýrlinga, flestum sakramentunum, kröfunni um skírlífi presta og valdi páfa. Af siðbótinni leiddi aukin mannréttindi og meira jafnrétti. Hugmyndafræði norræna velferðarkerfisins er byggð á siðbótarkenningum Lúthers og hefur skapað þau eftirsóknarverðu samfélög sem byggð hafa verið á öll- um Norðurlöndunum og víðar í Evr- ópu. Menningarleg tengsl Við munum flest þegar Þjóðverjar buðu Íslendingum að vera heiðurs- gestir á bókamessunni í Frankfurt árið 2011. Þá sýndu Þjóðverjar okk- ur Íslendingum mikinn sóma og vel- vild. Íslenskum rithöfundum var boðið til Þýskalands, íslenskar bæk- ur voru þýddar á þýsku og Ísland kynnt með margvíslegum og afar já- kvæðum hætti í þýskum fjölmiðlum. Áhugi Þjóðverja á íslenskum bók- menntum er ekki nýr af nálinni og sagnaheimur okkar hefur heillað þýska lesendur um aldir. Bækur Jóns Sveinssonar, Nonnabækurnar, eru t.d. enn lesnar í Þýskalandi. Ekki má heldur gleyma íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsefni, en sjaldan líður á löngu áður en þýskir áhorfendur fá að sjá nýtt íslenskt efni. Þjóðverjar er meðal mestu menn- ingarþjóða í heimi með mikinn menningararf. Í tónlistinni gnæfa yfir risarnir Bach, Brahms, Beet- hoven og Wagner svo aðeins nokkrir séu nefndir. Í ritlistinni má nefna Goethe, Schiller, Heine, Brecht, Hesse, Böll og Grass. Á undanförnum árum hafa Íslend- ingar átt þess kost að sjá margar frábærar þýskar kvikmyndir á þýskri kvikmyndahátíð sem árlega er haldin í Reykjavík. Sumar þeirra má finna á Netflix. Ekki má heldur gleyma íþrótta- tengslum þjóðanna, einkum á sviði handbolta og fótbolta þar sem marg- ir Íslendingar hafa leikið með og þjálfað þýsk lið. Iðnaður og atvinnulíf Athyglisvert er hvernig þýskur iðnaður hefur byggst upp, vítt og breitt um stóran hluta landsins. Hafa ber í huga að Þýskaland er ekki gamalt ríki. Það varð til við sameiningu margra furstadæma á árunum 1870-1890. Fyrir þá sem láta sig varða uppbyggingu atvinnu- lífs er áhugavert að skoða hversu dreifð og sterk þýsk iðnfyrirtæki eru um allt landið. Rekstur farsælla fjöl- skyldufyrirtækja þar sem hver kyn- slóðin á fætur annarri miðlar fag- þekkingu sinni til afkomenda er eftirtektarverður. Þýskur iðnaður er mjög útflutningsmiðaður. Vörugæði og áreiðanleiki eru aðalsmerki hans, sem leiðir vafalítið af aga og virðingu fyrir vinnu. Frá tímum Hansakaup- mannanna höfum við Íslendingar notið þýskrar vöru og þjónustu – og njótum enn. Höfundur hefur nokkrum sinnum átt þess kost að sitja iðnþing þýska iðnaðarins og þar er skýrt hve mikla áherslu Þjóðverjar leggja á traust og gott samstarf forystumanna iðn- aðar og stjórnvalda. Ræðu kansl- arans er jafnan beðið með mikilli eft- irvæntingu og þykir hún vera einn af mikilvægustu dagskrárliðum iðn- þings Þjóðverja. Þjóðarleiðtoginn Angela Merkel Angela Merkel hefur á erfiðum tímum í stjórnmálum heimsins sýnt að hún er einn fremsti þjóðarleiðtogi okkar tíma. Hún var fyrst kjörin kanslari Þýskalands árið 2005 og hefur því nú verið kanslari í 14 ár. Merkel hefur tekið margar umdeild- ar ákvarðanir, s.s. að loka kjarn- orkuverum og hvetja í stað þess til nýsköpunar á sviði orku- og um- hverfismála. Loftslagsmálin hafa verið henni hugleikin og hún hefur sýnt öðrum ríkjum fordæmi í því að setja hagsmuni alls heimsins ofar þrengri hagsmunum eigin lands. Margir dá hana fyrir þetta en aðrir gagnrýna. Merkel er eftirtektarverður leið- togi og bakgrunnur hennar er sér- stakur. Faðir hennar var lúterskur prestur sem flutti frá Vestur- Þýskalandi til Austur-Þýskalands stuttu eftir að Merkel fæddist. Þar bjó fjölskyldan í litlum bæ og það reyndi á að vera kristin í Austur- Þýskalandi á þessum tíma. Merkel er raunvísindakona og doktor í eðl- isfræði. Hún vandar mál sitt mjög, er íhugul og hugsar áður en hún tal- ar. Hún talar ekki illa um andstæð- inga sína og svarar ekki í sömu mynt þegar að henni er veist. Þótt Merkel tali lítið um einkamál sín hefur það margoft komið fram í orðum hennar og athöfnum hversu mikilvægt það er henni að lifa sem kristin manneskja. Boðorð Krists um að elska náungann eins og sjálf- an sig og gefa náunganum annan kyrtil sinn, eigi maður tvo, eru Merkel meira en orðin tóm. Í hennar gjörðum má sjá vilja til að koma bágstöddum til hjálpar, þótt ákvarð- anir hennar í þeim efnum hafi verið umdeildar meðal flokkssystkina hennar í CDU og CSU. Margir telja að þær hafi jafnvel orsakað fylgis- aukningu við þjóðernissinna í Þýska- landi og hatur á minnihlutahópum. Ástæður þess eru verðugt rannsókn- arefni, nú þegar lífskjör jarðarbúa hafa aldrei verið betri og ævi fólks lengist stöðugt í flestum löndum jarðar. Tækifæri til áframhaldandi samstarfs Umhverfis- og loftslagsmál krefj- ast úrlausna og breyttra lifnaðar- hátta fólks um allan heim. Eigi jarð- líf komandi kynslóða ekki að enda í hamförum þarf ýmislegt að breyt- ast. Það er okkar, sem nú lifum, að hafa frumkvæði að þeim breyt- ingum. Ríkisstjórnir Íslands og Þýskalands hafa sett umhverfis- og loftslagsmál á oddinn og hvetja til nýsköpunar og breytinga á öllum sviðum sem leitt geta til kolefnis- hlutlauss lífs og sjálfbærra lifnaðar- hátta. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Parísarsamkomulagið sem gert var í desember 2015 varða leiðina. Upplýsinga- og fjarskiptatækni er nú orðin hluti af flestum fræðasvið- um, ekki síst verkfræði og tækni- fræði. Tæknin leikur lykilhlutverk í því að okkur takist að þróa snjall- lausnir sem hafa þann tilgang að auka lífsgæði fólks og öryggi þess, jafnframt því að vernda jörðina og allt líf hennar. Hér geta Íslendingar haft mikilvægt framlag þótt smáir séu. Nú, þegar undirbúningur heim- sóknar Merkel stendur sem hæst, langar mig að hvetja Íslendinga til að leita tækifæranna í samstarfi við Þjóðverja. Eftir Svönu Helen Björnsdóttur » Þessar heimsóknir leiðtoga Þýskalands leiða hugann að marg- þættu sambandi ríkjanna tveggja, Ís- lands og Þýskalands, sem á sér aldalanga sögu. Svana Helen Björnsdóttir Höfundur nam verkfræði í Þýska- landi og er nú framkvæmdastjóri hjá Klöppum grænum lausnum hf. og for- maður Verkfræðingafélags Íslands. Samband Íslands og Þýskalands Við Gullfoss Regnboginn sem litaði fossinn skemmdi síður en svo fyrir upplifun ferðamannanna sem þangað lögðu leið sína í vikunni. Fossinn virðist enn vera í tísku af gestafjöldanum að dæma. Ómar Óskarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.