Morgunblaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2019
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Sýningin Mother and Child, þ.e. Móðir og
barn, eftir hinn þekkta, danska listhóp A Kas-
sen, var opnuð í Kling & Bang galleríinu í
Marshallhúsinu í gær. Verk hópsins spanna
allt frá gjörningum yfir í skúlptúra og ljós-
myndir, gjarnan með hlutum sem hópurinn
hefur orðið sér úti um og sýnir frá nýstárlegu
sjónarhorni. Á sýningunni verður mununum
stillt upp á þann hátt að áhorfendur velta
vöngum yfir upprunalegu notagildi þeirra.
Koma úr ólíkum áttum
A Kassen leggur sig fram um að skapa að-
stæður sem eru í senn undarlegar og hvers-
dagslegar en það er gert með háðsádeilu á
hversdagslegum háttum og afbyggingu línu-
legrar frásagnar, svo eitthvað sé nefnt. Við
þetta allt saman blandast fáranleiki, vonleysi
og húmor. Listhópurinn samanstendur af fjór-
um listamönnum, þeim Christian Bretton-
Meyer, Morten Steen Hebsgaard, Sören Pet-
ersen og Tommy Petersen. Þeir eiga ólíka
ferla að baki og kynntust í Listaháskóla
Kaupmannahafnar.
„Christian var ljósmyndari, Morten vann
skúlptúra og ég var aðallega að mála þegar
við kynntumst í akademíunni. En síðan tókum
við saman og hófum að vinna að nýjum verk-
efnum. Það var áhugavert hvernig við skor-
uðum á hvort annað og mér finnst það alltaf
vera þannig að þegar við fáum boð um að
halda sýningu vitum við aldrei hverju við
megum eiga von á. Vegna þess að það er ekki
undir einum listamanni komið heldur fjórum,“
segir Tommy Petersen í samtali við Morgun-
blaðið.
Keyptu skúlptúra á uppboði
Skúlptúrana þrjá, sem eru til sýnis á sýn-
ingunni, keypti hópurinn á uppboði erlendis.
Einn þeirra er skúlptúr af móður og barni og
vísar titill sýningarinnar í þann skúlptúr.
Tommy segir að skúlptúrinn Móðir og barn
hafi verið gamaldags, klassískur og heillandi
og því hafi verið ákveðið að nefna sýninguna í
höfuðið á honum. „Mér finnst titillinn fallegur,
gamaldags og kannski ekki svo algengur í nú-
tímalist,“ segir Tommy.
Sænski sýningarstjórinn og rithöfundurinn
Jonatan Habib Enqvist hefur stýrt fjölda sýn-
inga A Kassen og segir í umfjöllun sinni um
Mother and Child að rithöfundurinn Éric
Chevillard komi oftast upp í huga hans þegar
hann hugsar um „hina snjöllu, slungnu og
stundum gamansömu listsköpun A Kassen.“
Söguhetjan í bók Chevillards, Au Plafond,
frá árinu 1997 gengur aðeins í gráum fötum til
að láta sem minnst á sér bera, því hann þarf
stöðugt að bera stól á hvolfi á höfðinu. Þegar
hann flytur inn á kærustu sína kemur í ljós að
svefnherbergið er of lítið til að allir komist
fyrir svo að heimili er búið til í loftinu þar sem
meira pláss er.
Á sýningu A Kassen í Kling & Bang er loft-
ið einmitt orðið að gólfi, á sýningunni blasir
við bronsstytta í raunstærð sem heitir „View
from Below (Standing Woman)“ eða „Horft að
neðan frá (Standandi kona)“. Styttan stendur
á hvolfi svo að stallurinn á henni flúttar við
gólfið svo áhorfendur geta aðeins séð hana of-
an og innan frá. Styttan er stór í sniðum og
þess vegna hangir hún neðan úr loftinu á
hæðinni fyrir neðan, þar sem hún stendur út
úr loftinu. Í umfjöllun sinni segir Jonatan að
hún komi fyrir sjónum eins og „dropasteinn
eða undarleg ljósakróna“.
Skúlptúrunum „Móðir og barn“ og „Horft
neðan frá“ hefur verið stillt upp á svipaðan
hátt og bronsstyttunni í fremsta sýningarrými
gallerísins, en þó geta áhorfendur aðeins séð
þá innan frá. Í nálægð við þessa skúlptúra á
röngunni má sjá seríu af ljósmyndum, „Undir
höfum“, sem sýna brot af brotnu hnattlíkani.
Brotin á myndunum eru þau sem sýna haf-
svæði hnattarins og þau snúa þannig að innri
hlið þeirra snýr út og ljósmyndirnar eru tekn-
ar við bláan bakgrunn.
„Hugmyndin er að taka myndir af til-
teknum hlut og útkoman veltur á hugmynd-
inni sem við fáum. Við hengjum myndirnar
upp og erum nú að leika okkur með það
hversu margar við viljum hafa þær,“ segir
Tommy og minnist á brotna hnattlíkanið,
verkið „Undir hafinu“, sem verður til sýnis:
„Hnötturinn er mölbrotinn og við heilluðumst
af litlu brotunum sem er hægt að sjá innan
frá. Síðan mynduðum við hvert og eitt brot,“
segir hann.
Þegar gengið er inn í galleríið blasa við
tveir bronsfiskar og í skúlptúrnum „Central
Heating Fountain Sculpture“ er gosbrunn-
urinn í raun tengdur inn í leiðslur bygging-
arinnar, við sjálft pípulagnakerfi Marshall-
hússins.
Sýningin var opnuð í gær, sem fyrr segir,
og stendur yfir til 29. september.
Ljómsynd/A Kassen
Listhópur A Kassen hefur tekið að sér ýmis verkefni. Hér er hópurinn við nýlegt listaverk sitt,
„Pour“, við sjávarsíðuna í Árósum í Danmörku. Frá vinstri þeir Tommy Petersen, Christian
Bretton-Meyer, Søren Petersen og Morten Hebsgård.
Á hvolfi Skúlptúrverkið „View from Below
(Standing Woman)“, standandi kona er í raun-
stærð á „gólfinu“ í galleríinu Kling & Bang.
Gólf verður að lofti í Marshallhúsinu
Danski listahópurinn A Kassen sýnir í galleríinu Kling & Bang Hlutirnir sýndir í nýju ljósi og
gólfið verður að lofti Móðir og barn, ásamt tveimur öðrum skúlptúrum, keypt á uppboði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tríó saxófónleikarans Sigurðar
Flosasonar og danska Hammond-
orgelleikarans Kjeld Lauritsen
leikur á tólftu tónleikum sumar-
djasstónleikaraðar veitingahússins
Jómfrúarinnar við Lækjargötu í
dag kl. 15. Einar Scheving leikur á
trommur og sérstakur gestur í
hluta efnisskrárinnar verður söng-
konan Ragnheiður Gröndal. Þau
munu flytja valin sígræn djasslög.
Sigurður Flosason og Kjeld
Lauritsen hafa starfað mikið saman
í Danmörku á undanförnum árum
og meðal annars gefið út tvo vin-
sæla geisladiska hjá Storyville-
útgáfunni.Tónleikarnir fara fram
utandyra á Jómfrúartorginu og
standa til kl. 17.
Tríó Sigurðar Flosasonar á Jómfrúnni
Sveifla Sigurður Flosason saxófónleikari.
Sýningin Auga fyrir auga verður
opnuð í dag í Gallerí Vest að Haga-
mel 67 og verður opin kl. 14-17
laugardaga og sunnudaga til 25.
ágúst.
Listakonurnar Jonna og Karól-
ína, þ.e. Karólína Baldvinsdóttir og
Jónborg Sigurðardóttir, sýna á
henni verk sem þær unnu út frá eig-
in sjónskerðingum og annarra, til
heiðurs blindum og sjónskertum á
80 ára afmæli Blindrafélagsins.
„Augað er viðfangsefni sýningar-
innar og verða bæði málverk og
þrívíð verk til sýnis. Gestum gefst
einnig kostur á að skyggnast inn í
heim blindra og sjónskertra með
gleraugum sérútbúnum til að túlka
ýmsar sjónskerðingar og fá þannig
tækifæri til að skoða sýninguna
með öðrum augum. Listakonurnar
Karólína Baldvinsdóttir og Jonna/
Jónborg Sigurðardóttir eru báðar
blindar á öðru auga og er það inn-
blástur sýningarinnar,“ segir í til-
kynningu.
Báðar blindar á öðru auga
Augu Verk á sýningunni Auga fyrir auga.