Morgunblaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.08.2019, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2019 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 / l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 The Reader Wing Chair kr. 199.800 / My Spot Borð kr. 36.200 / A Conversation Piece Lounge Chair kr. 159.800 „HÆTTU AÐ FARA Í KRINGUM HLUTINA.” „ER TEPPALAGT HEIMA HJÁ ÞÉR?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... á matseðlinum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVAÐ VARÐ EIGINLEGA UM GRANNA PILTINN SEM ÉG GIFTIST ÞARNA UM ÁRIÐ? EF ÞÚ VILT GET ÉG GET KOMIÐ ÞÉR Í SAMBAND VIÐ VIN MINN SEM ER EINKASPÆJARI! HVAÐ SKYLDIR ÞÚ VEGA KÝR ER 450 KÍLÓGRÖMM … ÞEGIÐU EÐA ÉG SEST Á ÞIG GÖLTUR ER 250 KÍLÓGRÖMM … 23.7. 2007, þingskrifari og síðar bygg- ingaverkamaður í Reykjavík, og Ingi- björg Veturliðadóttir, f. 14.10. 1912, d. 24.5. 1997, húsfreyja. Synir Péturs og Rögnu: Pétur Ari, f. 8.1. 1967, d. 15.11. 1967, og Kjartan Ari, f. 11.6. 1972, myndlistarmaður. Dóttir Kjartans og Maríu Rúnars- dóttur, en þau eru skilin, er Ísabella Róbjörg, f. 22.2. 2006. Bræður Péturs eru Eysteinn Fjölnir Arason, f. 23.4. 1938, fyrrver- andi kaupmaður, búsettur á Hvols- velli, og Jón Arason, f. 15.7. 1947, fyrrverandi verslunarmaður, búsett- ur í Reykjavík. Foreldrar Péturs voru hjónin Ari Jónsson, f. 15.10. 1911, d. 6.3. 1969, kaupmaður, og Heiðbjört Péturs- dóttir, f. 12.3. 1910, d. 24.3. 1998, hús- freyja. Þau voru búsett í Reykjavík og Kópavogi. Pétur Arason Heiðbjört Pétursdóttir húsfreyja í Kópavogi Pétur Benediktsson bóndi á Hring í Stífl u, Fljótum, síðar verslunarmaður í Kópavogi Ingibjörg Pétursdóttir húsfreyja í Fljótum Benedikt Stefánsson bóndi í Fljótum, Skagafi rðiJón Arason fv. verslunarmaður í Reykjavík Eysteinn Fjölnir Arason fv. kaupmaður í Faco, stjúpdóttir Fjölnis er Lísa Yoder lögfræðingur Kristín Eysteinsdóttir tölvunar- fræðingur Eiður Snorri Eysteinsson ljósmyndari í Kaliforníu Jóhann Jónsson kennari í Neskaupstað Halldór Jóhannsson fv. skurðlæknir í Garðabæ Valbjörg Jónsdóttir sálfræðinemi Ari Heiðar Jónsson nuddari í Svíþjóð Högna Heiðbjört Jónsdóttir myndlistarnemi Höskuldur Jónsson viðskiptafræðinemi Guðríður Hjaltadóttir húsfreyja á Karlsstöðum, síðar að Álfabrekku við Suðurlandsbraut, Rvík Björn Ólafur Jónsson bóndi og skipstjóri á Karlsstöðum í Fljótum Kristín Björnsdóttir húsfreyja og saumakona í Kópavogi Guðlaug Björnsdóttir kaupkona í Reykjavík Unnur Andrea Jónsdóttir húsfreyja í Garðabæ Einar Guðmundsson geðlæknir í Garðabæ Sigurlína Björnsdóttir húsfreyja í Garðabæ Guðríður Jónsdóttir húsfreyja í Garðabæ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisfl okksins Hjalti Björnsson kaupmaður í Reykjavík Snæbjörn Hjaltason fv. lyfl æknir í Norrköping í Svíþjóð Guðmundur Karl Snæbjörnsson sérfræðingur í heimilislækningum í Kópavogi Guðbjörg Björnsdóttir húsfreyja á Nolli Jóhannes Guðmundsson bóndi á Nolli í Grýtubakkahr., S-Þing. Lilja Jóhannesdóttir húsfreyja í Tröllanesi Jón Sveinsson útvegsbóndi í Tröllanesi Norðfi rði Þorbjörg Pálsdóttir húsfreyja í Seldal og Tröllanesi Sveinn Stefánsson bóndi í Seldal í Norðfi rði og Tröllanesi Úr frændgarði Péturs Arasonar Ari Jónsson klæðskeri og forstjóri fataverslunarinnar Faco Gátan er sem endranær eftir Guð-mund Arnfinnsson: Fellur snjór úr fjallsins hlíð. Fallaskipti eru tíð. Djúpi hestur dvelur í. Dóu syndugir í því. Helgi Seljan svarar: Snjóflóð grandað fjölda fá, flóð að ströndum berast má. Flóðhest má af myndum sjá, mun ei syndaflóðið ná. Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn: Snjóflóð féll í fjallsins hlíð. Á flóði þarabreiðan hvarf. Flóðhestsvömbin sveiflast síð. Syndaflóð gaf Nóa starf. Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Tengist fjöru og fjalli, fákur Afríku í, freistingin varð að falli. Flóðið lausnin er því. Síðan bætir Helgi við: „Syndaflóðið kemur hér við sögu, því fær þessi að fylgja með, – Mikil synd“: Ég þekki’ eina lífsins lind við lífbeinið neðan við þind. Mig furðar það æ og aldrei því næ hví eðli vort spyrt er við synd. Eysteinn Pétursson svarar: Í snjóflóðum margir bana bíða, breyta sjávarföll ásýnd landa. Flóðhestum vilja fáir ríða. Flóðið synda réð mörgum granda. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Mörg af snjónum falla flóð. Flóðin sjávar eru tíð. Flóðhestar á fiskaslóð. Flóðið Synda drekkti lýð. Og síðan kemur ný gáta eftir Guðmund: Gátu hef ég saman sett, sem er kannski ívið létt hyggin fyrir hal og sprund. Heilann brjótið nú um stund: Nauðstöddum hún lífið lér. Líka nafn er svanni ber. Fyrir stungu fingur ver. Fæða góð er handa þér. Ólafur Briem á Grund orti: Nauts á hrygginn maður mátt meira pískinn spara. Jafningja þinn aldrei átt illa með að fara. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það er margt flóðið og mörg flóðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.