Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 201720 Sala og ráðgjöf Sími 540 1100 Reykjavík Lyngháls Akureyri Óseyri Borgarnes Borgarbraut Blönduós Efstubraut Hvolsvöllur Ormsvöllur www.lifland.is Í fermingarblöðum undan- farinna ára hefur Skessuhorn birt nokkurs konar gátlista fyrir fermingarundirbúning- inn. Það skal þó tekið skýrt fram að hann er til gamans settur saman og einungis hugsaður til hliðsjónar fyrir þá sem eru að undirbúa fermingarveislur. Útilokað væri að gera tæmandi lista fyrir slíkar athafnir, enda eru aðstæður og áherslur fólks æði misjafnar. Vonandi nýtist þessi listi þó þeim sem eru óvanir að undirbúa stórveislur. Leigja sal - ef veislan á ekki að vera í heimahúsi. Oft eru margir um hituna en lítið framboð. At- huga að skoða þarf hvað fylgir með í leiguverði salarins. Glös, diskar, bollar, hnífapör, kaffi- könnur, kaffivélar og svo fram- vegis. Einnig er misjafnt hvort þjónusta fylgir með þegar salur er leigður. Boðskort. Ef á að nota boðs- kort þarf að gefa sér tíma til að búa þau til eða panta. Margir velja að hringja í þá sem bjóða skal til veislunnar. Muna að gera það tímanlega. Þá eru einhverj- ir farnir að nota boðskortakerfi Facebook til að bjóða í ferming- arveislur. En þá þarf að athuga að ekki eru allir skráðir á þeim samskiptamiðli. Sálmabók. Ef á að gylla, þarf lengri fyrirvara. Myndataka. Athuga hvort ljósmyndari er á heimaslóð- um og svo þarf að panta tíma. Hárgreiðsla. Muna að panta tímanlega. Finna skraut í hár, ef á að nota það. Sumar stof- ur bjóða upp á hárskraut. Ekki gleyma að panta tíma í klipp- ingu (líka fyrir aðra fjölskyldu- meðlimi) tímanlega fyrir ferm- inguna. Fermingarfötin. Það hef- ur gerst að jakkaföt í minni stærðum hafa selst upp. Sama gildir í verslunum sem selja stúlknaföt. Vert er að skoða þetta í tíma. Dúkar á borðin. Á að nota bréf- eða taudúka? Kannaðu verð, þau geta verið mjög mismundandi. Oft er hægt að leigja taudúka í efnalaugum. Fermingarkerti. Ekki er nauð- synlegt að láta áletra. Ódýrar lausnir eru til, eins og krossar sem hægt er að festa á falleg kerti. Sama á við um merking- ar á kertin, drátthagur er oft til í fjölskyldunni. Þá er hægt að láta prenta út mynd af ferm- ingarbarninu á kertið og líma á með þar til gerðu kertalími sem þolir hita. Servíettur. Margir taka mis- litar og láta þá ekki prenta á þær. Ef á að prenta þarf að huga að því í tíma. Oft er löng bið ef margar fermingar eru í gangi. Skreytingar. Víða er hægt að fá hugmyndir að skemmti- legu skrauti eða kaupa tilbúið. Um að gera að skoða og at- huga síðan hvað til er heima. Ef fermt er að vori eða sumri, má vel líta í kringum sig í nátt- úrunni. Skemmtilegar hug- myndir má finna á vefsíðum eins og Pinterest. Gestabók. Sumir föndra gestabók, aðrir kaupa hana til- búna og enn aðrir láta gestina skrifa á striga sem hengja má upp til skrauts. Um að gera að láta ímyndunaraflið njóta sín. Veisluföng. Gott er að reyna að áætla hversu mikið þarf eftir fjölda gesta. Í mörgum matreiðslubókum er hægt að sjá hvað reikna eigi með miklu á mann, hvort sem um er að ræða kaffibrauð eða mat. Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá Leiðbeining- arstöð heimilanna. Best er þó að spyrja reynsluboltana ráða, fólkið í fjölskyldunni eða aðra vini. Kökur. Hægt er að baka í kistuna og spara stress og stór- an útgjaldapakka í einum bita. Það sama gildir um matinn. Um að gera að kaupa inn smám saman og frysta. Það er ágætt að hafa það bak við eyrað að flestir kaupa eða baka of mikið. Fermingartertan. Á að panta eða baka sjálfur? Gott er að ákveða sig tímanlega. Ýmis- legt kemur til greina, svo sem kransakaka, rjómaterta, sykur- massa- eða ísterta. Drykkir. Ekki gleyma gosinu eða drykkjunum; kaffinu, mjólk- inni og sykri í kaffið. Aðstoðarfólk fyrir stóra daginn. Mikilvægt er að biðja um aðstoð í undirbúningnum. Ekki er gaman að vera úrvinda úr þreytu og stressi þegar stóri dagurinn rennur upp. Einnig er gott að vera búin að finna ein- hvern til að aðstoða í ferming- arveislunni. Nauðsynlegt svo allir geti notið sín í veislunni sjálfri. Myndir í veislunni. Ekki gleyma að taka myndir í ferm- ingarveislunni. Af fermingar- barninu sjálfu með ættingjum, af gestunum og veisluborðinu. Foreldrar ættu að fá einhvern til að smella af mynd af sér með barninu, það vill gleymast. Gátlisti vegna fermingarundirbúnings Njótið dagsins! Maður fermist bara einu sinni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.