Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 11
Skólastjórar Leik- og
grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
Við leitum að framfarasinnuðum, skapandi og farsælum leiðtogum til að
stýra öflugum skóla.
Til umsóknar eru eftirfarandi stjórnunarstöður í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar:
Staða skólastjóra grunnskólasviðs – Heiðarskóli
Staða skólastjóra leikskólasviðs – Skýjaborg
Skólastjórar grunnskóla- og leikskólasviðs, ásamt aðstoðarskólastjórum á hvoru sviði, mynda skóla-
stjórn í sameinuðum leik- og grunnskóla. Skólastjórar bera ábyrgð hvor á sínu sviði ásamt því að
viðhalda og þróa áfram öflugt samstarf á milli skólasviða í sameiginlegri skólastjórn.
Stöðurnar eru lausar frá og með 1. ágúst 2017.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
Fagleg forysta í skólastarfi.
Virk þátttaka í þróun, eflingu og skipulagi skólastarfs.
Samstarf við sveitarstjórn og aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Leyfisbréf leikskólakennara/grunnskólakennara og starfsreynsla er skilyrði umsóknar á því
skólastigi sem sótt er um.
Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum í skólastarfi er skilyrði.
Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er æskileg.
Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, uppeldis- og kennslufræða er æskileg.
Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi, sveiganleika og hæfni í
mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi SNS og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 27. mars 2017. Umsóknir skal senda til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að
Innrimel 3, 301 Akranes, eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veita Skúli Þórðarson sveitarstjóri skuli@hvalfjardarsveit.is,
Daníel Ottesen formaður fræðslu- og skólanefndar daniel.ottesen@hvalfjardarsveit.is og
Gunnar Gíslason ráðgjafi gg@akmennt.is. Umsóknum fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð
þar sem m.a. komi fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins.
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er 130 barna skóli sem starfræktur er á tveimur stöðum í sveitarfélaginu. Leik-
skólinn Skýjaborg er í Melahverfi með 40 börn og grunnskólinn Heiðarskóli er við Leirá með um 90 nemendur. Við
skólann starfa um 40 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreytta starfshætti og teymisvinnu. Í leikskólastarfi er
byggt á hugmyndum um nám í gegnum leik og kenningum Deweys um reynslunám. Unnið er eftir uppbyggingarstefnu
í grunnskóla, áhersla er á byrjendalæsi og bæði skólasvið taka þátt í grænfánaverkefni. Sérstakt verkefni hefur verið í
gangi með notkun spjaldtölva í skólastarfi í leik- og grunnskóla. Með því vill skólinn vera leiðandi í að nýta nýjustu
upplýsingatækni í námi og kennslu. Skólinn vel búinn tækjum og aðstaða hin besta.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
„Við erum búin að fá 22 gild-
ar umsóknir, en yfir 50 hafa bor-
ist í heildina,“ segir Karl Eiríks-
son alþjóðafulltrúi Háskólans á
Bifröst um aðsókn að sumarskóla
háskólans. Sumarskólinn felst í
námskeiðinu „Sustainable Future:
Creative Leadership in the 21st
Century,“ sem útleggst á íslensku
sem Sjálfbær framtíð: Skapandi
forysta á 21. öldinni. Skólinn fer
fram 8. – 29. júlí í sumar en þetta
er í annað skipti sem Háskólinn á
Bifröst stendur fyrir honum.
Að sögn Karls stefnir í að nem-
endum fjölgi í ár. „Við vorum með
20 nemendur í fyrra og því er allt
útlit fyrir fjölgun. Þeir sem hafa
sótt um koma frá öllum heimsálf-
um en við tökum á móti allt að 36
nemendum. Við reiknum með að
fá fleiri umsóknir því umsóknar-
frestur er til 1. maí “ segir Karl sem
bætir því við að Háskólinn hafi ný-
verið auglýst eftir nemendum líka
hér á Íslandi. „Hingað til höfum
við verið að kynna skólann fyrir
erlendum nemendum en kennsl-
an fer fram á ensku. Við vildum þó
líka að prófa að kynna hann fyrir
Íslendingum og verður fróðlegt að
sjá hvernig viðbrögðin verða.“
Námið samanstendur af tveim-
ur hlutum. „Þetta eru sjálfbærni
og forysta. Okkar kennarar bera
ábyrgð á kennslu í hvorum hluta
fyrir sig og að auki fáum við sex
erlenda gestakennara til liðs við
okkur á meðan skólanum stend-
ur,“ segir Karl. Nemendur munu
dvelja á Bifröst meðan á skóla-
hald er í gangi. „Á hverjum mið-
vikudegi fer hópurinn síðan í
námstengdar ferðir og fyrirtækja-
heimsóknir. Stefnan er að sækja
heim fyrirtæki þar sem sjálfbærni
er höfð að leiðarljósi í rekstri. Í
fyrra var Rjómabúið á Erpsstöðum
heimsótt svo dæmi sé tekið og í ár
erum við að vinna með að heim-
sækja Hellisheiðavirkjun og Sjáv-
arklasann. Á laugardögum er boð-
ið upp á skoðunarferðir um Borg-
arfjörðinn og Snæfellsnes þar sem
þáttakendur fá að fara á hestbak, í
skemmtisiglingu og margt fleira.“
Karl segir sumarskólinn mik-
ilvægan þátt í starfi Háskólans.
„Skólinn hefur heilmikla þýðingu
fyrir okkur. Hann setur Bifröst á
kortið og stuðlar að enn frekari al-
þjóðavæðingu skólans.“
hlh
Sumarskóli Háskólans
á Bifröst eftirsóttur
Karl Eiríksson alþjóðafulltrúi Háskólans á Bifröst.
Hress hópur sumarskólanemenda á Bifröst í fyrra við fossinn Glanna í Norðurá.