Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 201716 Spurningin „Hvers vegna valdir þú að fermast?“ (Spurt í Dalabyggð) Anna Karen Thorlacius: „Ég vil játa trúna á Guð og staðfesta skírnarheitið. Að fermast er stór hluti af lífi mínu.“ Friðjón Kristinn Friðjónsson: „Til að játa skírn mína.“ Kristófer Daði Líndal Guð- mundsson: „Mig langar til að vera tengdur Guði og eiga trú.“ Sigurdís Katla Jónsdóttir: „Af því að ég vil játa trú mína og skírnina.“ Sá siður hefur lengi tíðkast hér á landi að ferma ungmenni. Eftir siðaskiptin á sextándu öld féll ferm- ing víðast hvar niður meðal Lúth- erstrúarmanna þar sem þeir viður- kenndu hana ekki sem sakramenti. Hún hélst hins vegar við á Íslandi og var lögfest í danska ríkinu 1736 sem athöfn á undan fyrstu altaris- göngu, að undangenginni fræðslu í kristnum fræðum. Altarisgangan var því aðalmálið. Fyrir flesta Ís- lendinga þýðir ferming staðfest- ing. Staðfesting á þeirri ákvörð- un foreldra að láta skíra barnið og yfirlýsing viðkomandi að hann vilji gera Jesú Krist að leiðtoga lífs síns. Miklar vangaveltur hafa af og til blossað upp um hvort barn sé nógu gamalt til að staðfesta skírn sína 14 ára, eða hvort það sé of gamalt. Ekki skal lagður dómur á það hér. Sumir prestar hafa þó farið þá leið að spyrja ekki hinn- ar mikilvægu spurningar um hvort einstaklingurinn vilji leitast við að gera Jesú Krist að leiðtoga lífs síns. Spurningin sem stendur eftir er þá hvort um eiginlega fermingu sé að ræða? En fermingin er einnig annað og meira. Það hefur lengi verið tal- að mun það að með fermingunni komist viðkomandi einstaklingur í fullorðinna manna tölu. Það er ekki lítið stökk. Á einum degi fer einstaklingur frá því að vera barn til þess að verða fullorðinn. Hér áður fyrr urðu mikil þáttaskil við þessa athöfn, líklega meira en við þekkjum nú. Umbúnaður í kring- um ferminguna var einnig misjafn milli heimila, þá eins og nú. Mis- jafnt eftir efnahag, aðstæðum fólks og áherslum. Þó virðist ætíð hafa verið reynt að gera daginn eftir- minnilegan fyrir fermingarbarn- ið, þótt fólk byggi við misjöfn kjör. Áður fyrr þótti jafnvel gott ef bakaðar voru pönnukökur í til- efni dagsins. Það var kannski svo mikil nýbreytni að fermingarbarn- ið mundi það alla ævi. Ekki fengu heldur öll börn fermingargjafir. Efnin hrukku ekki til þess en dag- urinn og umgjörð hans urðu þess í stað sú dýrmæta minning sem eft- ir lifði í huga fermingarbarnsins. Þetta skal rifjað upp til áminningar um að veraldlegum gæðum hefur ekki alltaf verið réttlátlega skipt og svo er ekki enn. Vonandi eiga þó öll fermingar- börn eftir að upplifa ánægjulegan dag þegar stóra stundin rennur upp. Fjölskyldur koma saman og gleðjast. Það er nefnilega svo að gleði, öryggi og væntumþykja er það besta sem hverju fermingar- barni er veitt. Að þessu sinni eru fermingar- börnin sjálf í forgrunni í Skessu- horni, líkt og verið hefur í Ferm- ingarblaði Skessuhorns undanfarin ár. Myndir eru birtar af fermingar- börnum ársins og þau spurð að því hvers vegna þau völdu að fermast. Þá er meðal annars rætt við eldri fermingarbörn og þau fengin til að rifja upp stóra daginn. Einnig er spjallað við nokkur væntanleg fermingarbörn um fermingardag- inn sjálfan, vonir þeirra og vænt- ingar til stóra dagsins. Skessuhorn óskar öllum ungmennum til ham- ingju með þann stóra áfanga sem framundan er í lífi þeirra, með von um bjarta og gæfuríka framtíð. Ferming - staðfesting skírnarinnar í athöfn Flottar fermingargjafir Þjóðbraut 1 - Akranesi - sími 431 3333 Rúmföt frá PYTT Living Skart frá Sign Úr frá 24 ICELAND Armbönd frá 24 ICELAND Bleutooh hátalari frá Lemus frábær hljómur Verð: 27.690,- Verð: 12.900,- Verð: 4.900,-Verð: 19.900,-

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.