Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 47

Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 47
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 47 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Leikið var í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik síðasta miðvikudag. Snæfell mætti Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði og bar öruggan sigur úr býtum, 60-75 eftir að hafa verið sterkari allan leikinn. Var þetta tí- undi sigur Íslandsmeistaranna í röð í Domino‘s deildinni. Snæfellskonur höfðu yfirhönd- ina frá fyrstu mínútu. Þær byrjuðu af krafti og voru komnar í 2-9 þegar Haukar tóku aðeins við sér. Snæfell réði þó áfram gangi mála og leiddi 10-16 eftir upphafsfjórðunginn. Ís- landsmeistararnir juku forskot sitt í tíu stig snemma í öðrum leikhluta en Haukakonur minnkuðu muninn í fjögur stig skömmu fyrir hléið. En Snæfell átti lokaorðið í fyrri hálfleik og góðar lokamínútur skiluðu liðinu níu stiga forskoti í hléinu, 22-31. Snæfellskonur komu ákveðnar til síðari hálfleiks og gerðu í raun út um leikinn fyrstu mínúturnar eftir hléið. Með góðum leikkafla komust þær 20 stigum yfir, 29-49 og eftir það sáu Haukar aldrei til sólar. Heimaliðið náði rétt aðeins að klóra í bakkann í lokafjórðungnum og minnka mun- inn í 15 stig. Snæfell sigraði örugg- lega, 60-75 og hefur þar með unnið tíu leiki í röð. Aaryn Ellenberg skoraði 26 stig fyrir Snæfell og gaf sex stoðsend- ingar. Bryndís Guðmundsdóttir var með 13 stig og Gunnhildur Gunn- arsdóttir lauk leik með ellefu stig, átta fráköst og fjóra stolna bolta. Þegar þrjár umferðir eru eftir situr Snæfell sem fastast í toppsæti deild- arinnar með 40 stig og hefur tveggja stiga forskot á Keflavík í sætinu fyrir neðan. Næst leikur liðið í dag, mið- vikudag, þegar Stjarnan kemur í heimsókn í Hólminn. kgk Tíu sigrar í röð hjá Snæfelli Svipmynd úr viðureign liðanna í Stykkishólmi fyrr í vetur. Ljósm. sá. Síðasta umferð Domino‘s deild- ar karla í körfuknattleik var leikin á fimmtudag. Skallagrímur mætti Grindavík suður með sjó. Borgnes- ingar voru fallnir fyrir leikinn og höfðu því ekki að neinu að keppa. Þeir virkuðu hálf andlausir á köfl- um, enda erfitt að gíra sig upp fyr- ir leik sem engu máli skipti. Fór að lokum svo að heimamenn höfðu sig- ur, 101-89. Grindvíkingar byrjuðu leikinn af krafti og höfðu níu stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 29-20. Heimamenn réðu áfram ferðinni út fyrri hálfleik- inn. Staðan breyttist lítið í öðrum leikhluta og Grindvíkingar leiddu með sjö stigum í hálfleik, 50-43. Skallagrímsmenn mættu ákveðn- ari til síðari hálfleiks og jöfnuðu metin í 50-50 snemma í þriðja leik- hluta. Grindvíkingar náðu fimm stiga forystu skömmu síðar en aft- ur spyrntu Skallagrímsmenn við fótum og minnkuðu muninn í eitt stig, 57-56 skömmu áður en leik- hlutinn var hálfnaður. Eftir það náðu Grindvíkingar aftur tökum á leiknum og þægilegu 14 stiga for- skoti fyrir lokafjórðunginn, 81-67. Mest náðu heimamenn 20 stiga forskoti snemma í fjórða leikhluta. Leikmenn Skallagríms náðu aðeins að klóra í bakkann það sem eftir lifði leiks en sigur Grindvíkinga var aldrei í hættu. Heimamenn sigruðu með 101 stigi gegn 89. Flenard Whitfield var eini leik- maður Skallagríms sem náði sér á strik í leiknum. Hann gerði raun- ar gott betur en það. Flenard átti magnaðan leik, skoraði hvorki fleiri né færri en 50 stig og tók tólf frá- köst. Sigtryggur Arnar Björnsson var með 14 stig og tíu fráköst en aðrir höfðu minna. Eins og ljóst var fyrir leikinn í á fimmtudag lýkur Skallagrímur keppni í Domino‘s deild karla í 11. sæti. Munu Borgnesingar því leika í 1. deild næsta vetur. kgk/ Ljósm. úr safni. Skallagrímsmenn kvöddu hljóðlega ÍA mætti Fjölni í lokaleik 1. deildar karla í körfuknattleik að kvöldi síð- asta föstudags. Leikið var á Akranesi. Með sigri gat Fjölnir tryggt sér 2. sæti deildarinnar og þar með heima- vallarrétt í úrslitakeppninni, sama hversu langt þeir ná í þeirri keppni. Skagamenn höfðu hins vegar að litlu að keppa, myndu enda í 8. sæti deildarinnar óháð úrslitum leiksins. Fjölnir hafði yfirhöndina allan leik- inn en Skagamenn gerðu stöku at- lögu að forystu þeirra en höfðu ekki erindi sem erfiði. Fjölnir hafði að lokum öruggan sigur, 81-100. Nokkuð jafnræði var með liðun- um í upphafi og staðan jöfn, 12-12, þegar upphafsfjórðungurinn var hálfnaður. Eftir það náði Fjölnir góðum kafla og þægilegu 14 stiga forskoti fyrir annan leikhluta, 15-29. Gestirnir bættu nokkrum stigum við forskotið áður en Skagamenn tóku við sér og minnkuðu muninn í tíu stig. Sú staða hélst meira og minna óbreytt til hálfleiks. Fjölnir leiddi í hléinu, 40-52. Í þriðja leikhluta komust gest- irnir síðan á góða siglingu. Þeir voru komnir með 20 stiga forskot um miðjan leikhlutann og leiddu með 23 stigum að honum loknum, 55-78. Skagamenn klóruðu í bakk- ann í lokafjórðungnum en kom- ust aldrei nær en sem nam 14 stig- um seint í leiknum. Gestirnir bættu nokkrum stigum á töfluna á loka- mínútunum og sigruðu að lokum örugglega, 81-101. Derek Shouse var atkvæðamestur í liði Skagamanna með 23 stig, 14 fráköst, sex stoðsendingar og fjóra stolna bolta. Áskell Jónsson var með 19 stig, Jón Orri Kristjánsson með níu stig og níu fráköst og Ármann Örn Vilbergsson skoraði sömuleiðis níu stig en aðrir höfðu minna. Þegar keppni í 1. deild karla er lokið sitja Skagamenn í 8. og næst- neðsta sæti deildarinnar með tólf stig, fjórum stigum frá Fsu og Vestra í sætunum fyrir ofan en langt fyrir ofan botninn. Þar sitja Ármenning- ar með aðeins tvö stig. Deildin er alla jafnan tíu liða, en einungis níu lið kepptu í vetur. Því mun eitt lið falla og Skagamenn halda sæti sínu í deildinni. kgk Tap í lokaleiknum hjá ÍA Derek Shouse í baráttunni við leik- menn Fjölnis í lokaleik 1. deildar karla á föstudag. Ljósm. jho. Skallagrímur mætti Keflavík í stór- leik Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Keflavík á miðvikudagskvöld. Skallagrímur var sterkari framan af leik en um miðj- an þriðja leikhluta skellti heimaliðið í lás í vörninni, komst yfir og stakk svo af á lokamínútunum. Lokatölurnar gefa því ekki alveg rétta mynd af þró- un leiksins. Keflavík vann 72-51. Jafnræði var með liðunum framan af upphafsfjórðungnum. Með góð- um kafla undir lok hans náði Skalla- grímur g og tíu stiga forystu, 23-13. Keflvíkingar hjóu í forskotið í öðrum fjórðungi, minnkuðu muninn tvíveg- is í tvö stig en Skallagrímsliðið var áfram sterkara og leiddi með fimm stigum í hálfleik, 27-32. Algjör viðsnúningur varð á leikn- um eftir hléið. Keflavík skellti heldur betur í lás í vörninni og hélt Skalla- grímskonum stigalausum fyrstu sjö mínútur síðari hálfleiks. Skoruðu Borgnesingar aðeins þrjú stig allan fjórðunginn. Þessi ótrúlegi leikhluti skilaði Keflvíkingum átta stiga for- skoti fyrir lokafjórðunginn, 43-35. Þar hafði Keflavík áfram yfirhönd- ina og hélt Skallagrími í skefjum, leiddu með átta til níu stigum fram- an af. Um miðjan fjórðunginn misstu Skallagrímskonur heimaliðið síðan endanlega frá sér og endaði leikurinn með nokkuð stórum sigri Keflavíkur, 72-51. Tavelyn Tillman skoraði 22 stig fyrir Skallagrím og var eini leikmað- ur liðsins sem náði tveggja stafa tölu á stigatöflunni. Jóhanna Björk Sveins- dóttir var með níu stig og átta fráköst og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var með tólf fráköst en aðeins fimm stig. Úrslit leiksins gera það að verk- um að Skallagrímur hefur 36 stig í 3. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Keflavík og fjórum sigum á eft- ir toppliði Snæfells þegar þrjár um- ferðir eru eftir. Næst leikur Skallagrímur í dag, miðvikudaginn 15. mars, þegar liðið mætir Haukum í Borgarnesi. kgk Komu að læstum dyrum eftir hléið Tavelyn Tillman var eini leikmaður Skallagríms sem náði tveggja stafa stigatölu gegn Keflavík. Ljósm. úr safni. Snæfell og Þór Ak. mættust í síð- ustu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik á fimmtudag. Leikið var á Akrueyri. Sem kunnugt er varð fall Snæfells óumflýjanlegt í febrúar en Þór háði harða baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Eftir dapran fyrri hálfleik beggja liða gerðu heima- menn út um leikinn með góðum kafla í þriðja leikhluta. Þeir unnu að lokum öruggan sigur, 89-62. Leikurinn fór hægt af stað og hvorugt lið virtist ætla að eiga góð- an dag í upphafi leiks. Að loknum fyrsta leikhluta leiddu heimamenn með 20 stigum gegn 14 stigum Snæ- fells. Annar fjórðungur var fremur bragðdaufur sömuleiðis og fátt um fína drætti. Munurinn hélst nokkuð svipaður allt til hálfleiks þar sem Þór leiddi með fimm stigum, 40-35. Snæfellingar mættu ákveðnir til síðari hálfleiks og minnkuðu mun- inn snarlega í eitt stig, 40-39. Virt- ist þessi sprettur Snæfells vekja Þór af værum blundi. Heimamenn tóku öll völd á vellinum eftir það og náðu fljótt þægilegu forskoti. Að loknum þriðja leikhluta leiddu þeir með 18 stigum, 68-50 og stóðu með pálm- ann í höndunum fyrir lokafjórð- unginn. Þar bættu þeir enn við for- skot sitt, jafnt og þétt til leiksloka og unnu að lokum öruggan 27 stiga sig- ur, 89-62. Árni Elmar Hrafnsson skoraði 15 stig fyrir Snæfell, Christian Covile var með 14 stig og sex fráköst og Sveinn Arnar Davíðsson tíu stig og átta fráköst. Snæfell lýkur keppni í Domino‘s deild karla á botninum þetta árið, án stiga og mun því leika í 1. deild að ári. kgk Misstu leikinn frá sér eftir hléið Árni Elmar Hrafnsson var atkvæðamestur leikmanna Snæfells í lokaleik vetrarins. Ljósm. úr safni/ karfan.is.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.