Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 201738
Það var gleði og söngur sem ein-
kenndi sálmakvöld í Safnaðarheim-
ili Ingjaldshólskirkju 1. mars síðast-
liðinn. Þar mættu Kirkjukór Ólafs-
víkurkirkju og Kór Ingjaldshóls-
kirkju ásamt kórstjórum og undir-
leikara. Tilgangur kvöldsins var að
hittast og syngja en Margrét Bóas-
dóttir, verkefnisstjóri kirkjutón-
listar, var í heimsókn til að kynna
nýja sálmabók sem gefin verður út
í haust. Einnig kenndi hún kórun-
um. Þá voru sálmar úr nýju sálma-
bókinni sungnir ásamt því að Mar-
grét sagði frá starfi sínu sem verk-
efnisstjóri kirkjutónlistar, en það
starf hét áður söngmálastjóri Þjóð-
kirkjunnar. Vel var mætt af kór-
félögum og nutu þeir kvöldsins og
lærðu heilmikið. Var sálmakvöldið
upphitun fyrir haustið en þá stend-
ur til að halda annað sálmakvöld í
tengslum við afmæli Ólafsvíkur-
kirkju. þa
Sálmakvöld í Snæfellsbæ
Loðnuvertíðin á Akranesi hófst
formlega þegar Venus NS, upp-
sjávarveiðiskip HB Granda, kom
með nánast fullfermi til hafnar á
Akranesi að kvöldi sunnudagsins
26. febrúar. Vinnsla hófst strax eft-
ir að búið var að landa úr skipinu.
Hrognafrysting hófst síðan rúm-
um sólarhring síðar, eftir að búið
var að skera og hreinsa og loks
drena hrognin. Að sögn Gunn-
ars Hermannssonar, verkstjóra í
hrognavinnslu HB Granda, hef-
ur loðnuvinnslan gengið afar vel
fyrir sig það sem af er yfirstand-
andi vertíð. „Þetta hefur gengið
mjög vel og vinnslan hefur ekkert
stoppað. Við erum búin að frysta
samfleytt í 13 sólarhringa, án þess
að hafa þurft að gera hlé á vinnsl-
unni,“ segir Gunnar í samtali við
Skessuhorn á mánudag. Prýðilega
gekk að fá fólk til starfa í vinnsl-
unni. Það kemur að hluta til úr
annarri landvinnslu fyrirtækisins
og að hluta kemur verkafólk og
verktakar af Akranesi og úr sveit-
unum af Vesturlandi öllu, allt vest-
ur á Snæfellsnesi og í Dali.
Þegar Skessuhorn leit við í
Heimaskagahúsinu á mánudag-
inn voru loðnuskip HB Granda
við veiðar norður af Skjálfanda.
Gunnar taldi að vertíðin væri farin
að styttast verulega í annan end-
ann, en loðnan hrygnir alla jafnan
um miðjan marsmánuð og drepst
eftir það. „Við verðum að frysta í
alla nótt og alveg þangað til ein-
hvern tímann í fyrramálið [þriðju-
dag] en eftir það vonum við bara að
við fáum meira af loðnu í vinnsl-
una. En það verður bara að koma í
ljós,“ segir Gunnar Hermannsson.
kgk
Konur í Kvenfélagi Hvítársíðu
fóru nýverið í heimsókn til félaga
í Björgunarsveitinni Heiðari sem
hefur aðsetur á Varmalandi. Kven-
félagskonur færðu björgunarsveit-
inni 150 þúsund króna gjafabréf en
auk þess heitt súkkulaði, pönnu-
kökur og kleinur til að lífga upp á
stjórnarfund sem þá stóð yfir. Að
vonum var vel tekið á móti gest-
unum. „Við fengum að heyra hvað
þeir í Heiðari væru að gera og
fengum að skoða tæki, tól og að-
stöðu. Þetta eru hetjurnar sem fara
út í vondu veðrin og bjarga okkur
hinum,“ segir Þuríður Guðmunds-
dóttir á Sámsstöðum en hún er
formaður kvenfélagsins.
Æfa farsa í Þinghamri
Kvenfélagskonur komu einnig við
þar sem leikdeild Umf. Stafholts-
tungna æfir nú farsa í félagsheim-
ilinu. „Þar hittum við leikara og
leikstjóra sem voru að ljúka æf-
ingu. Við gáfum þeim líka veiting-
ar til að hressa sig með. Þetta eru
sjálfboðaliðarnir sem skemmta
okkur,“ segir Þuríður.
Leikritið sem leikdeild Umf.
Stafholtstungna færir nú á fjal-
irnar er þýddur farsi sem nefn-
ist: „Einn koss enn, og ég segi
ekki orð við Jónatan.“ Leikstjóri
er Hörður Sigurðarson. Að sögn
Ásgeirs Ásgeirssonar, sem tekur
þátt í uppfærslunni, er stefnt að
frumsýningu 25. mars. „Hér er á
ferðinni þýddur farsi sem efnis-
lega fjallar um mann sem heldur
við þrjár konur sem allar eru flug-
freyjur hjá sitthvoru flugfélaginu.
Eins og títt er með farsa þá út-
heimtir það mikla útsjónarsemi að
láta leiðir þeirra ekki liggja sam-
an og illa fer þegar eitt flugfélagið
eignast hraðskreiðari þotur,“ segir
Ásgeir.
mm
Færðu Heiðarsmönnum og
leikdeildarfólki glaðning
Grétar Þór Reynisson á Höll er formaður Heiðars. Hér er hann með gjafabréfið í
hönd ásamt fulltrúum kvenfélagsins við snjóbíl sveitarinnar.
Hillir undir lok loðnuvertíðar
Hrognin pokuð í Heimaskagahúsinu eftir öllum kúnstarinnar reglum. Þrír pokar
fara saman á eina pönnu og pönnurnar fara síðan með færibandi inn í frysti.
Uppsjávarveiðiskip HB Granda, Víkingur AK og Venus NS, skiptust á að landa loðnu á Akranesi snemma í mars þegar loðnu-
vertíðin stóð sem hæst og stutt var á miðin. Ljósm. mm.
Pönnurnar komnar úr frystingu. Þar eru pokarnir þrír fjarlægðir úr pönnunum og
pakkað í kassa sem síðan er raðað á bretti. Pönnurnar fara aftur á móti í gegnum
þvottavél og inn í pökkunarsalinn að nýju.
Glaðbeittir piltar í frystingunni að útbúa umbúðirnar utan
um hrognin.
Þegar kassarnir koma úr pökkuninni við enda færibandsins
er þeim raðað á bretti.
Þær voru heldur betur samtaka við færibandið þegar Skessuhorn bar að garði.