Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 5
Að hátíðarfundi sveitastjórnar loknum verður
150 ára verslunarafmæli
Borgarness
Hátíðarfundur sveitarstjórnar
Borgarbyggðar 22. mars 2017
Boðað er til hátíðarfundar hjá
sveitarstjórn Borgarbyggðar þann
22. mars kl. 15.00 í Kaupangi.
Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Reykhólahreppur auglýsir til úthlutunar
tvær lóðir á athafnasvæði í Flatey.
Um er að ræða tvær lóðir sem báðar eru á skilgreindu athafna-
svæði við ferjuhöfn Flateyjar skv. gildandi aðalskipulagi Reyk-
hólahrepps 2006-2018 en um lóðirnar gildir deiliskipulag fyrir
byggingu á geymslu- og starfsmannahúsum á athafnasvæði við
Tröllenda í Flatey, en deiliskipulagið var birt í B-deild Stjórnar-
tíðinda þann 24. nóvember 2016.
Umræddar lóðir eru eftirfarandi:
Tröllendi 1, leigulóð, 492 m2 stærð, landnr. 225026. Á
lóðinni má byggja allt að 120m2 hús á einni hæð, auk 20m2
geymslu, allt skv. sérskilmálum í deiliskipulagi. Verð bygg-
ingaréttar kr. 2,7 millj.
Tröllendi 2, leigulóð, 82,5 m2 stærð, landnr. 225027. Endur-
byggja skal 32 m2 geymsluskúr sem var á lóðinni skv. sér-
skilmálum í deiliskipulagi. Verð byggingaréttar kr. 800 þús.
Samkvæmt skilmálum Reykhólahrepps um lóðaúthlutanir skulu
umsækjendur tilgreina með glöggum hætti byggingaráform sín
og framkvæmdahraða og verður lagt mat á þarfir umsækjanda
til lóðar við úthlutun. Til að umsókn teljist gildi skulu umsækj-
endur greiða kr. 20.000 í staðfestingargjald og þá skulu þeir
jafnframt leggja fram skriflega staðfestingu frá banka eða lána-
stofnun um greiðsluhæfi og/eða möguleika á lánafyrirgreiðslu
vegna fyrirhugaðrar húsbyggingar. Skal í staðfestingunni koma
fram að umsækjandi geti fjármagnað 100% kostnaðar fyrir-
hugaðrar húsbyggingar.
Deiliskipulag um Tröllenda, úthlutunarskilmálar og
umsóknareyðublað er aðgengilegt á vef sveitarfélagsins
www.reykholar.is. Umsókn skal senda á Stjórnsýsluhús Reyk-
hólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppi, eða á netfangið
sveitarstjori@reykholar.is. Umsóknarfrestur er til og með
4. apríl.2017.
a.
b.
Síðastliðinn laugardagsmorgun bar
ærin Grána, sem er í eigu Ólafs
Helga Ólafssonar frístundabónda í
Ólafsvík, tveimur frískum lömbum.
„Grána var borin um morguninn
þegar ég kom í fjárhúsin, mynd-
arlegum lömbum,“ sagði bóndinn
sem hafi átt von á því að kindin gæti
borið í kringum 20. mars. Hrútarn-
ir höfðu nefnilega tekið forskot á
sæluna og brugðið sér í ótímabæra
heimsókn til ánna 30. október. Því
hafi þessi snemmbúnu lömb ekki
komið mjög á óvart. af
Fjör hjá
frístundabændum
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
Rafvirki Borgarnesi
Starfssvið
Viðhald á dreifikerfi RARIK
Eftirlit með tækjum og búnaði
Viðgerðir
Nýframkvæmdir
Vinna samkvæmt öryggisreglum
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Sturla Rafn
Guðmundsson, deildarstjóri framkvæmdasviðs á Vesturlandi eða starfsmannastjóri RARIK í síma
528 9000. Umsóknarfrestur er til 30. mars 2017 og skal skila umsóknum með ferilskrá á netfangið
atvinnuumsokn@rarik.is.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess
að afla, dreifa og annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík
og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breitt um landið.
RARIK ohf auglýsir eftir rafvirkja með aðsetur í Borgarnesi. Hér er um ölbreytt starf að ræða í
öflugum vinnuflokki sem vinnur við dreifikerfi RARIK á Vesturlandi.
Hæfniskröfur
Sveinspróf í rafvirkjun
Öryggisvitund
Almenn tölvukunnátta
Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
Skessuhorn mars 2017: