Skessuhorn


Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 39

Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 39 Eyja- og Miklaholtshreppur auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra við Laugargerðisskóla Laugargerðisskóli er fámennur leik- og grunnskóli í afar fallegu umhverfi í Eyja- og Mikla- holtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi. Í leikskóladeild eru nú sex börn og 17 nemendur í grunnskóladeild. Skólinn er vel búinn og við hann er íþróttahús og sundlaug. Einkunnar- orð skólans eru traust – virðing – vinátta. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2017. Umsóknir skulu berast til Eggerts Kjartanssonar (s. 435-6870 eða 865-2400), oddvita, Hofsstöðum 311 Borgarnesi eða með rafrænum hætti á netfangið eyjaogmiklaholtshreppur@vortex.is fyrir 31. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu sveitarfélagsins á þessari slóð: www.eyjaogmikla.is SK ES SU H O R N 2 01 7 Leikdeild Umf. Skallagríms kynnir gamanleikinn: Saumastofan Höfundur: Kjartan Ragnarsson- Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson Sýnt í Lyngbrekku 9. sýning  mmtudaginn 16. mars kl. 20:30 10. sýning föstudaginn 17. mars kl. 20:30 Lokasýning laugardaginn 18. mars kl. 20:30 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR! Miðapantanir í síma 846 2293 og leikdeildskalla@gmail.com Miðaverð kr. 3.000 - Veitingasala á sýningum - posi á staðnum Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Jó- hannes Kristleifsson á Sturlu-Reykj- um í Reykholtsdal eru um þessar mundir að undirbúa opnun ferða- þjónustufyrirtækis í hestatengdri ferðaþjónustu. Mun það bera heit- ið Visiting HorseFarm. Þar verður tekið á móti ferðamönnum og þeim gefinn kostur á að komast í návígi við íslenska hestinn. Skessuhorn hitti Hrafnhildi að máli á dögunum og fékk að heyra örlítið um væntanlega ferðaþjónustu á Sturlu-Reykjum. „Þetta er nýjung í ferðaþjónustu. Hér stendur til að taka á móti ferða- fólki og bjóða því að kíkja í hesthús- ið. Þar getur fólk fengið að klappa hestunum, taka myndir af þeim og aðeins að kynnast þeim í návígi,“ segir Hrafnhildur. „Gengið verð- ur inn í móttöku þar sem fólk getur hengt af sér, fengið sér kaffi og far- ið á klósettið. Síðan verður smá sal- ur þar sem hægt verður að tylla sér í sófa og á veggjunum verða myndir af hestunum okkar með smá fróðleik um hvern og einn og kannski nokkr- ir verðlaunagripir. Hugmyndin er að fólki líði eins og það sé mætt heim í stofu, sjái myndir af hrossunum okk- ar á veggjunum og fari síðan út í hest- hús og fái að kynnast þessum sömu hestum í návígi, klappa þeim og taka myndir,“ segir hún. Einföld hugmynd - en þörfin er til staðar Hrafnhildur segir að ferðaskrif- stofum og ferðaskipuleggjendum verði boðið að nýta sér aðstöðuna og koma við með sína hópa á leið um Borgarfjörðinn. „Við höfum fundið fyrir áhuga hjá ferðaskrifstofum sem vilja nýta sér þessa aðstöðu okkar. Með því að koma hér við væru tvær flugur slegnar í einu höggi. Hópur- inn fær að skoða hesta, fær kaffisopa og kemst á klósettið. Ef fólkið stopp- ar hjá okkur þá er rútan ekki á meðan úti í vegkanti einhvers staðar á meðan ferðafólk freistar þess að ná myndum af hestum í girðingu. Við teljum okk- ur geta mætt þessari þörf því hvergi hefur verið opnað inn í hesthús með þessum hætti eins og við ætlum að gera,“ segir Hrafnhildur. „Þetta þarf nefnilega ekki að vera flókið. Þessi hugmynd okkar er eiginlega svo ein- föld að þegar okkur datt þetta í hug þá furðuðum við okkur á að engum hefði dottið þetta í hug fyrr. Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað „show“. Ferðamenn hafa ekki síður mik- inn áhuga á að líta við og sjá hvern- ig hlutirnir eru í raun og veru. Þetta á að vera heimilislegt, afslappað, pers- ónulegt en umfram allt raunverulegt. Þess vegna ætlum við bara að taka á móti tiltölulega fáum í einu og held- ur ekki hætta að moka út úr stíu eða vinna í hringgerði, ef við erum að því þegar gestirnir koma. Fólki finnst líka gaman að sjá það, því þannig eru hlutirnir í alvörunni,“ segir hún. Stefnt að opnun fyrir sumarið Byrjað er að leggja nýjan afleggjara upp að hesthúsunum á Sturlu-Reykj- um og verið er að útbúa móttökuna. Enn er eftir nokkur jarðvinna í kring- um hesthúsin og frágangur. Aðspurð segir Hrafnhildur að þau stefni að því að opna fyrir sumarið. „Okkur ligg- ur hins vegar ekkert á og við gerum þetta bara á okkar hraða, eins og efni og aðstæður leyfa. Við erum í þessu sjálf, höfum enga sjóði á bakvið okk- ur og verðum að haga seglum eftir vindi. En þannig viljum við hafa þetta og erum frjálsari fyrir vikið,“ segir Hrafnhildur. Þrátt fyrir að Visiting Horse- Farm sé nýjung í ferðamennsku þá eru hjónin bæði margreynd á sviði hestatengdrar ferðaþjónustu. „Ég er frá Bjarnastöðum í Hvítársíðu. Þar er ein elsta hestaleiga landsins, stofnuð árið 1971 af foreldrum mín- um. Ég vann hjá þeim lengi og þekki vel til í þessum geira,“ segir Hrafn- hildur. „Hér á Sturlu-Reykjum vor- um við hjónin síðan með hestaferð- ir í rúm 20 ár, þar til fyrir þremur árum að við ákváðum að hætta, okkur fannst kominn tími til að breyta til. Það botnaði reyndar enginn í því af hverju við vorum að hætta, því það var alltaf brjálað að gera,“ segir hún og brosir. „En við höfum í gegnum fyrri reynslu mjög gott tengslanet bæði við okkar fyrrum viðskiptavini og við ferðaskrifstofur hér heima og erlendis, sérstaklega í Þýskalandi. Nú þegar okkur langar að byrja aftur, með annars konar hestatengda ferða- mennsku, munu þau tengsl koma að góðum notum,“ segir Hrafnhildur. Lúxusferðir upp með Reykjadalsá Hún segir að samhliða móttöku og heimsóknum í hesthús ætli þau einnig að bjóða upp á lúxushesta- ferðir þar sem riðið verður upp með Reykjadalsá. „Við sjáum fyr- ir okkur sérstakar lúxusferðir, upp undir tveggja klukkustunda lang- ar fyrir mjög fáa í senn. Þá allt nið- ur í bara eitt par eða fjölskyldu sem vill fá að ríða út í ró og næði. Þess- ar ferðir myndum við fara frá byrj- un júní og fram í október,“ seg- ir Hrafnhildur og bætir því við að öllum verði boðið upp á leiðsögn og smá kennslu inni í reiðhöll, í upphafi ferðar. „Þegar kemur að hestaferðum er lykilatriði að vera með góð hross og við teljum okk- ur hafa þau,“ segir hún, en hestar frá Sturlu-Reykjum og í okkar eigu hafa náð góðum árangri í keppni bæði hérlendis og erlendis. „Við höfum verið heppin, bæði átt og fengið að kynnast góðum hestum í gegnum tíðina. Til að mynda voru þrjú hross frá okkur sem kepptu á síðasta heimsmeistaramóti. Þá höf- um við bæði keppt á fjölmörgum mótum og sonur minn, Konráð Axel Gylfason, er landsliðsmaður í hestaíþróttum sem lifir og hrærist í þessu eins og við hér heima.“ Hestaáhuginn skín í gegn í máli Hrafnhildar og það er ekki síst sú ástríða sem hún vill reyna að miðla til gesta. „Við fjölskyldan höfum al- veg ofboðslega gaman af hestum og höfum haft alla tíð, erum alin upp við hestamennsku og höfum verið í kringum hesta frá barnsaldri. Það er ekkert sem veitir okkur meiri ánægju og nú viljum við skapa tækifæri fyrir annað fólk að upplifa það sem okkur þykir svo ánægjulegt,“ segir Hrafn- hildur Guðmundsdóttir á Sturlu- Reykjum að lokum. kgk Bjóða ferðafólki að kynnast íslenska hestinum í návígi Hrafnhildur Guðmundsdóttir í hesthúsinu á Sturlu-Reykjum. Sonur Hrafnhildar, Konráð Axel Gylfason, lifir og hrærist í hestum eins og hún og maðurinn hennar. Hér er Konráð á Fengi á Norðurlandamótinu í Biri í Noregi á síðasta ári.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.