Skessuhorn - 15.03.2017, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2017 39
Eyja- og Miklaholtshreppur auglýsir lausa til
umsóknar stöðu skólastjóra við Laugargerðisskóla
Laugargerðisskóli er fámennur leik- og grunnskóli í afar fallegu umhverfi í Eyja- og Mikla-
holtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi. Í leikskóladeild eru nú sex börn og 17 nemendur
í grunnskóladeild. Skólinn er vel búinn og við hann er íþróttahús og sundlaug. Einkunnar-
orð skólans eru traust – virðing – vinátta.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2017.
Umsóknir skulu berast til Eggerts Kjartanssonar (s. 435-6870 eða 865-2400),
oddvita, Hofsstöðum 311 Borgarnesi eða með rafrænum hætti á netfangið
eyjaogmiklaholtshreppur@vortex.is fyrir 31. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu sveitarfélagsins á þessari slóð: www.eyjaogmikla.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Leikdeild Umf. Skallagríms kynnir gamanleikinn:
Saumastofan
Höfundur: Kjartan Ragnarsson- Leikstjóri: Gunnar Björn Guðmundsson
Sýnt í Lyngbrekku
9. sýning mmtudaginn 16. mars kl. 20:30
10. sýning föstudaginn 17. mars kl. 20:30
Lokasýning laugardaginn 18. mars kl. 20:30
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Miðapantanir í síma 846 2293 og leikdeildskalla@gmail.com
Miðaverð kr. 3.000 - Veitingasala á sýningum - posi á staðnum
Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Jó-
hannes Kristleifsson á Sturlu-Reykj-
um í Reykholtsdal eru um þessar
mundir að undirbúa opnun ferða-
þjónustufyrirtækis í hestatengdri
ferðaþjónustu. Mun það bera heit-
ið Visiting HorseFarm. Þar verður
tekið á móti ferðamönnum og þeim
gefinn kostur á að komast í návígi
við íslenska hestinn. Skessuhorn hitti
Hrafnhildi að máli á dögunum og
fékk að heyra örlítið um væntanlega
ferðaþjónustu á Sturlu-Reykjum.
„Þetta er nýjung í ferðaþjónustu.
Hér stendur til að taka á móti ferða-
fólki og bjóða því að kíkja í hesthús-
ið. Þar getur fólk fengið að klappa
hestunum, taka myndir af þeim og
aðeins að kynnast þeim í návígi,“
segir Hrafnhildur. „Gengið verð-
ur inn í móttöku þar sem fólk getur
hengt af sér, fengið sér kaffi og far-
ið á klósettið. Síðan verður smá sal-
ur þar sem hægt verður að tylla sér
í sófa og á veggjunum verða myndir
af hestunum okkar með smá fróðleik
um hvern og einn og kannski nokkr-
ir verðlaunagripir. Hugmyndin er að
fólki líði eins og það sé mætt heim í
stofu, sjái myndir af hrossunum okk-
ar á veggjunum og fari síðan út í hest-
hús og fái að kynnast þessum sömu
hestum í návígi, klappa þeim og taka
myndir,“ segir hún.
Einföld hugmynd - en
þörfin er til staðar
Hrafnhildur segir að ferðaskrif-
stofum og ferðaskipuleggjendum
verði boðið að nýta sér aðstöðuna og
koma við með sína hópa á leið um
Borgarfjörðinn. „Við höfum fundið
fyrir áhuga hjá ferðaskrifstofum sem
vilja nýta sér þessa aðstöðu okkar.
Með því að koma hér við væru tvær
flugur slegnar í einu höggi. Hópur-
inn fær að skoða hesta, fær kaffisopa
og kemst á klósettið. Ef fólkið stopp-
ar hjá okkur þá er rútan ekki á meðan
úti í vegkanti einhvers staðar á meðan
ferðafólk freistar þess að ná myndum
af hestum í girðingu. Við teljum okk-
ur geta mætt þessari þörf því hvergi
hefur verið opnað inn í hesthús með
þessum hætti eins og við ætlum að
gera,“ segir Hrafnhildur. „Þetta þarf
nefnilega ekki að vera flókið. Þessi
hugmynd okkar er eiginlega svo ein-
föld að þegar okkur datt þetta í hug
þá furðuðum við okkur á að engum
hefði dottið þetta í hug fyrr. Það þarf
ekki alltaf að vera eitthvað „show“.
Ferðamenn hafa ekki síður mik-
inn áhuga á að líta við og sjá hvern-
ig hlutirnir eru í raun og veru. Þetta á
að vera heimilislegt, afslappað, pers-
ónulegt en umfram allt raunverulegt.
Þess vegna ætlum við bara að taka á
móti tiltölulega fáum í einu og held-
ur ekki hætta að moka út úr stíu eða
vinna í hringgerði, ef við erum að því
þegar gestirnir koma. Fólki finnst
líka gaman að sjá það, því þannig eru
hlutirnir í alvörunni,“ segir hún.
Stefnt að opnun fyrir
sumarið
Byrjað er að leggja nýjan afleggjara
upp að hesthúsunum á Sturlu-Reykj-
um og verið er að útbúa móttökuna.
Enn er eftir nokkur jarðvinna í kring-
um hesthúsin og frágangur. Aðspurð
segir Hrafnhildur að þau stefni að því
að opna fyrir sumarið. „Okkur ligg-
ur hins vegar ekkert á og við gerum
þetta bara á okkar hraða, eins og efni
og aðstæður leyfa. Við erum í þessu
sjálf, höfum enga sjóði á bakvið okk-
ur og verðum að haga seglum eftir
vindi. En þannig viljum við hafa þetta
og erum frjálsari fyrir vikið,“ segir
Hrafnhildur.
Þrátt fyrir að Visiting Horse-
Farm sé nýjung í ferðamennsku þá
eru hjónin bæði margreynd á sviði
hestatengdrar ferðaþjónustu. „Ég
er frá Bjarnastöðum í Hvítársíðu.
Þar er ein elsta hestaleiga landsins,
stofnuð árið 1971 af foreldrum mín-
um. Ég vann hjá þeim lengi og þekki
vel til í þessum geira,“ segir Hrafn-
hildur. „Hér á Sturlu-Reykjum vor-
um við hjónin síðan með hestaferð-
ir í rúm 20 ár, þar til fyrir þremur
árum að við ákváðum að hætta, okkur
fannst kominn tími til að breyta til.
Það botnaði reyndar enginn í því af
hverju við vorum að hætta, því það
var alltaf brjálað að gera,“ segir hún
og brosir. „En við höfum í gegnum
fyrri reynslu mjög gott tengslanet
bæði við okkar fyrrum viðskiptavini
og við ferðaskrifstofur hér heima og
erlendis, sérstaklega í Þýskalandi. Nú
þegar okkur langar að byrja aftur,
með annars konar hestatengda ferða-
mennsku, munu þau tengsl koma að
góðum notum,“ segir Hrafnhildur.
Lúxusferðir upp með
Reykjadalsá
Hún segir að samhliða móttöku
og heimsóknum í hesthús ætli þau
einnig að bjóða upp á lúxushesta-
ferðir þar sem riðið verður upp
með Reykjadalsá. „Við sjáum fyr-
ir okkur sérstakar lúxusferðir, upp
undir tveggja klukkustunda lang-
ar fyrir mjög fáa í senn. Þá allt nið-
ur í bara eitt par eða fjölskyldu sem
vill fá að ríða út í ró og næði. Þess-
ar ferðir myndum við fara frá byrj-
un júní og fram í október,“ seg-
ir Hrafnhildur og bætir því við að
öllum verði boðið upp á leiðsögn
og smá kennslu inni í reiðhöll, í
upphafi ferðar. „Þegar kemur að
hestaferðum er lykilatriði að vera
með góð hross og við teljum okk-
ur hafa þau,“ segir hún, en hestar
frá Sturlu-Reykjum og í okkar eigu
hafa náð góðum árangri í keppni
bæði hérlendis og erlendis. „Við
höfum verið heppin, bæði átt og
fengið að kynnast góðum hestum í
gegnum tíðina. Til að mynda voru
þrjú hross frá okkur sem kepptu á
síðasta heimsmeistaramóti. Þá höf-
um við bæði keppt á fjölmörgum
mótum og sonur minn, Konráð
Axel Gylfason, er landsliðsmaður í
hestaíþróttum sem lifir og hrærist í
þessu eins og við hér heima.“
Hestaáhuginn skín í gegn í máli
Hrafnhildar og það er ekki síst sú
ástríða sem hún vill reyna að miðla
til gesta. „Við fjölskyldan höfum al-
veg ofboðslega gaman af hestum og
höfum haft alla tíð, erum alin upp
við hestamennsku og höfum verið í
kringum hesta frá barnsaldri. Það er
ekkert sem veitir okkur meiri ánægju
og nú viljum við skapa tækifæri fyrir
annað fólk að upplifa það sem okkur
þykir svo ánægjulegt,“ segir Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir á Sturlu-
Reykjum að lokum. kgk
Bjóða ferðafólki að kynnast íslenska hestinum í návígi
Hrafnhildur Guðmundsdóttir í hesthúsinu á Sturlu-Reykjum.
Sonur Hrafnhildar, Konráð Axel Gylfason, lifir og hrærist í hestum eins og hún og
maðurinn hennar. Hér er Konráð á Fengi á Norðurlandamótinu í Biri í Noregi á
síðasta ári.