Skessuhorn - 15.03.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 201716
Spurningin
„Hvers vegna valdir þú að fermast?“
(Spurt í Dalabyggð)
Anna Karen Thorlacius:
„Ég vil játa trúna á Guð og
staðfesta skírnarheitið. Að
fermast er stór hluti af lífi
mínu.“
Friðjón Kristinn Friðjónsson:
„Til að játa skírn mína.“
Kristófer Daði Líndal Guð-
mundsson:
„Mig langar til að vera tengdur
Guði og eiga trú.“
Sigurdís Katla Jónsdóttir:
„Af því að ég vil játa trú mína
og skírnina.“
Sá siður hefur lengi tíðkast hér á
landi að ferma ungmenni. Eftir
siðaskiptin á sextándu öld féll ferm-
ing víðast hvar niður meðal Lúth-
erstrúarmanna þar sem þeir viður-
kenndu hana ekki sem sakramenti.
Hún hélst hins vegar við á Íslandi
og var lögfest í danska ríkinu 1736
sem athöfn á undan fyrstu altaris-
göngu, að undangenginni fræðslu
í kristnum fræðum. Altarisgangan
var því aðalmálið. Fyrir flesta Ís-
lendinga þýðir ferming staðfest-
ing. Staðfesting á þeirri ákvörð-
un foreldra að láta skíra barnið
og yfirlýsing viðkomandi að hann
vilji gera Jesú Krist að leiðtoga lífs
síns. Miklar vangaveltur hafa af og
til blossað upp um hvort barn sé
nógu gamalt til að staðfesta skírn
sína 14 ára, eða hvort það sé of
gamalt. Ekki skal lagður dómur
á það hér. Sumir prestar hafa þó
farið þá leið að spyrja ekki hinn-
ar mikilvægu spurningar um hvort
einstaklingurinn vilji leitast við að
gera Jesú Krist að leiðtoga lífs síns.
Spurningin sem stendur eftir er þá
hvort um eiginlega fermingu sé að
ræða?
En fermingin er einnig annað og
meira. Það hefur lengi verið tal-
að mun það að með fermingunni
komist viðkomandi einstaklingur
í fullorðinna manna tölu. Það er
ekki lítið stökk. Á einum degi fer
einstaklingur frá því að vera barn
til þess að verða fullorðinn. Hér
áður fyrr urðu mikil þáttaskil við
þessa athöfn, líklega meira en við
þekkjum nú. Umbúnaður í kring-
um ferminguna var einnig misjafn
milli heimila, þá eins og nú. Mis-
jafnt eftir efnahag, aðstæðum fólks
og áherslum. Þó virðist ætíð hafa
verið reynt að gera daginn eftir-
minnilegan fyrir fermingarbarn-
ið, þótt fólk byggi við misjöfn
kjör. Áður fyrr þótti jafnvel gott
ef bakaðar voru pönnukökur í til-
efni dagsins. Það var kannski svo
mikil nýbreytni að fermingarbarn-
ið mundi það alla ævi. Ekki fengu
heldur öll börn fermingargjafir.
Efnin hrukku ekki til þess en dag-
urinn og umgjörð hans urðu þess í
stað sú dýrmæta minning sem eft-
ir lifði í huga fermingarbarnsins.
Þetta skal rifjað upp til áminningar
um að veraldlegum gæðum hefur
ekki alltaf verið réttlátlega skipt og
svo er ekki enn.
Vonandi eiga þó öll fermingar-
börn eftir að upplifa ánægjulegan
dag þegar stóra stundin rennur
upp. Fjölskyldur koma saman og
gleðjast. Það er nefnilega svo að
gleði, öryggi og væntumþykja er
það besta sem hverju fermingar-
barni er veitt.
Að þessu sinni eru fermingar-
börnin sjálf í forgrunni í Skessu-
horni, líkt og verið hefur í Ferm-
ingarblaði Skessuhorns undanfarin
ár. Myndir eru birtar af fermingar-
börnum ársins og þau spurð að því
hvers vegna þau völdu að fermast.
Þá er meðal annars rætt við eldri
fermingarbörn og þau fengin til
að rifja upp stóra daginn. Einnig
er spjallað við nokkur væntanleg
fermingarbörn um fermingardag-
inn sjálfan, vonir þeirra og vænt-
ingar til stóra dagsins. Skessuhorn
óskar öllum ungmennum til ham-
ingju með þann stóra áfanga sem
framundan er í lífi þeirra, með von
um bjarta og gæfuríka framtíð.
Ferming - staðfesting skírnarinnar í athöfn
Flottar fermingargjafir
Þjóðbraut 1 - Akranesi - sími 431 3333
Rúmföt frá PYTT Living Skart frá Sign
Úr frá 24 ICELAND Armbönd frá 24 ICELAND
Bleutooh hátalari frá
Lemus frábær hljómur
Verð: 27.690,-
Verð: 12.900,-
Verð: 4.900,-Verð: 19.900,-