Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 22

Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 22
Julia Roberts, stjarna tíunda ára- tugarins, notar lít- inn sem engan andlitsfarða. Fölt andlit Audrey Hep- burn, fyrirmynd kvenna á sjöunda áratugnum. Hraustlegt útlit Farrah Fawcett sló í gegn. eins fljótir að taka við sér og Frakkar. Par þótti ekki hæfa sönnum hefðardömum að nota kinnalit eins og almúginn held- ur var ráðið að klípa létt í kinnarnar. Slíkar fegrunaraðgerðir dugðu þó skammt auk þess sem þær voru sársaukafullar. Það leið því ekki á löngu þar til enskar hefðarkonur voru teknar að seilast í kinnalitadósirnar svo lítið bar á. Allar götur síðan má segja að kinnalitur hafi þótt sjálfsagður þáttur andlitsförð- unar. Hins vegar hafa verið skiptar skoðanir um hvað þykir rétt og rangt varðandi magn og staðsetningu hans. í kringum fyrri heimsstyrjöldina dró andlitsförðun helst dám af því sem fyrir augu bar í kvikmyndahúsum. Stjörnur þöglu myndanna máluðu augu sín dökk, húðina hvíta og settu roða í kinnarnar sem líktist því einna helst að þær væru með sótthita. Kvikmyndastjörnur voru þá sem nú fyrirmyndir al- mennings og konur tóku að mála andlit sitt til samræmis við þau lögmál sem giltu á hvíta tjaldinu. Útkoman átti lítið sem ekkert skylt við náttúrulegt útlit heldur líktust konur helst máluðum postulínsbrúðum. Eftir því sem nær leið miðbiki aldarinnar tók andlitsförðunin smátt og smátt á sig eðlilegri blæ. Enn sem fyrr púðruðu konur andlit sitt hvítt og mál- uðu varir og kinnar fagurrauð- ar en mun meira hófs var gætt. Þegar sænska leikkonan Ingrid Bergman heillaði Hollywood með náttúrulegu útliti urðu straumhvörf. Konur um allan heim vildu líkjast þessari ungu leikkonu sem geislaði af heil- brigði og æskublóma. Með auknum kvenréttindum varð andlitsfarðinn frjálslegri þótt enn ætti ímynd hinnar vel snyrtu hefðarkonu, með hvítt andlit og rauðar kinnar í anda hertogaynjunnar af Windsor, upp á pallborðið. Hertogaynj- an varð heimsþekkt þegar Ját- varður konungur Bretaveldis afsalaði sér krúnunni til að kvænast henni. Þegar líða tók á sjöunda áratuginn má segja að konur hafi skipst í tvö horn. Annars vegar þær sem notuðu engan farða og hins vegar þær sem þöktu andlit sitt með ljós- um farða, plokkuðu burt KINNALITUR I DAG Náttúrulegt útllt er i tísku. Það er allt í lagi að nota mikinn farða svo lengi sem enginn veit af því. Litur húðarinnar ætti að vera sem jafnast- ur og frekar í Ijósara lagi. Kinnalitur samkvæmt þessarl uppskrift þjónar aðeins þeim tilgangi að gefa andlitinu hlýlegri svip en ekki að forma það. Þeir litir sem nú eru í tísku eru mildir, brúnir litir og ferskjulitir. Enn má sjá fallega rauða liti í hillum snyrtivöruverslana en verði þeir fyrir valinu er vissara að fara hægt í sakirnar og nota þá sparlega. Til að bera litina á þannig að áferðin verði sem jöfnust og liturinn renni sem best saman við farðann bendir Sif Guðmundsdóttir föröunarmeist- ari á að gott sé að nota þykka og breiða bursta. Þá gefur góða raun að púðra létt yfir á eftir. Kinnaliturinn hefur fenglð nýtt gildi því í dag er hann gjarnan notaður í stað augnskugga til að gefa augunum mildan svip. Sanseraðir kinnalitir eru efstir á bannlistanum. Áferð húðarinnar á að vera mött þannig að glitrandi kinnalitur getur skemmt fyrir og gert það að verkum að andlitið litur út fyrir að vera þakið svitaperium. Grundvallaratriðið er þó ávallt að kinnaliturinn sé rétt notaður. Flestum konum hentar best að bera hann aðeins efst á kinnbeinin, rétt við gagnaugað. Þær sem eru með sérlega breiðan kjálka ættu að bursta létt undir kjálkabeinið en gæta þess jafnframt að allt er best í hófi.D augnabrúnirnar og máluðu strik í staðinn. Augun áttu að vera dökk og fölsk augnhár seldust eins og heitar lummur. Með heilsuræktarbylgju áttunda áratugarins tók við tími hraustlegs útlits. Andlitsfarðinn var notaður til að undirstrika náttúrulegt yfirbragð og gefa til kynna að í þessum líkama byggi hraust sál. Ekkert gaf eins góðan árangur og dálítill roði í kinnum. Margar létu ekki nægja að bursta létt yfir kinnbein- in með rauða litnum heldur máluðu þykk rauðbrún strik undir kinnbeinin með þar til gerðum stiftum í þeirri von og trú að þau litu út fyrir að vera hærri fyrir vikið. Því miður kom þetta að litlu gagni, árangurinn varð aðeins rauð strik niður eftir vöngum líkt og hjá indjánum reiðubúnum að leggja til orr- ustu. Hraustlegt yfirbragð leikkonunnar Farrah Fawcett féll vel að tíðarandanum líkt og fyrirsætanna Carol Alt og Christy Brinkley. Andlitsfarða þeirra var ætlað að draga fram og skerpa náttúrulega fegurð þeirra en vera í aukahlutverki að öðru leyti. Á níunda áratugnum var andlitsfarði lítt sparaður. Varalit- ur, augnskuggar og kinnalitir fengu að njóta sín. Rósrauðar kinnar Nancy Reagans bar ósjaldan fyrir augu almennings á síðum dagblaða og á sjón- varpsskjánum. Roðinn í kinn- um forsetafrúarinnar fyrrver- andi bar vott um hreysti og þrótt hennar þótt árin væru tekin að færast yfir. Við upphaf tíunda áratugarins er annað upp á teningnum. Iðulega birt- ast myndir af Hollywood-stjöm- um eins og þeim Juliu Roberts, Daryl Hannah og Debra Winger á gangi, hálf tætingslegum til fara. Það má víst segja að mesti glansinn sé farinn af kvikmynda- stjömunum sem taka gallabuxur og boli fram yfir klæðnað tísku- húsanna og berjast fyrir friðun náttúra og dýra í stað þess að stunda næturklúbbana. Mikill andlitsfarði er nánast bannorð í þessum hópi því nú vilja allir geta státað af náttúrulegri feg- urð sem ekki þarf hjálpar við. Töfraorðið er ekki þykkur farði og rósrauðar kinnar heldur fegr- unaraðgerðir.D 22 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.