Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 26

Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 26
FJÁRMÁL: ÚT ÚR SKULDAFENINU Þegar mánaðarlaunin fara í að borga rafmagn, hita og greiðslukortareikninginn er tœplega um annað að rceða en að taka kortið fram að nýju til að framfleyta fjölskyld- unni nœsta mánuðinn, eða hvað ? Er leið út úr skuldafeninu ? Garðar Björgvinsson gefur holl ráð og miðlar af eigin reynslu í glímunni við heimilisbókhaldið. Undanfarin tvö ár hefur Garðar Björgvinsson aðstoðað fólk í greiðsluörðugleikum. Sjálfur varð hann illa úti þegar skuldir uxu honum og fjölskyldu hans yfir höfuð en honum tókst að vinna sig út úr örðugleikunum og hefur nú sett á stofn fyrir- tæki, Fjármálaþjónustuna, sem sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir fólk sem lent hefur í svipuðum ógöngum. „Allir þurfa að ganga í gegnum ákveðinn þroskaferil til að læra að feta sig í frumskógi fjármálanna. Fólk þarf að geta horfst í augu við vandann, samið við lánardrottna og rofið þann vítahring sem það að lifa um efni fram er.“ Ólíkt því sem margir gætu haldið bendir Garðar á að vandinn sé ekki bundinn við tekjulága einstakl- inga. „Það hafa komið til mín hjón sem hafa fimm til sex hundruð þúsund krónur í mánaðarlaun en gátu ekki látið enda ná saman og virtust ekki sjá leið út úr skuldasúpunni. A hinn bóginn má benda á að ekki alls fyrir löngu leituðu til mín hjón með eitt einstakt afmarkað vandamál. Bæði eru með um sjötíu þúsund krónur á mánuði. Þau eiga tvö ung börn, nýjan bíl, skuldlausa fjögurra herbergja íbúð og fara í Spánarferð annað hvert ár. Fjármál þeirra eru í jafnvægi fyrir utan þetta eina afmarkaða atriði því þau hafa lært að samræma útgjöld og tekjur. Þessi dæmi sýna hversu mikilvægt er að fólk læri að stjórna fjármálum sínum.“ Garðar hefur skipt þroskaferlinum niður í sjö stig. Fyrsta stigið kallar hann ölmusustig en því lýkur þegar fólk hættir að þiggja af öðrum, til dæmis foreldrum, og fer að afla tekna sjálft. Þá tekur óreiðustig við. Á því stigi ákveða flestir að ráðast í húsnæðiskaup og marka sér lífsstíl, það er að segja ákveða hvað þeim finnst eðlilegt að þeir leyfi sér og taka að lifa lífinu samkvæmt því. „A þessu stigi kann fólk ekkert annað en að auka tekjur sínar til að mæta útgjöldum. Staðreyndin er að við eyðum því sem við höfum og því fer svo að flestir lenda fljót- lega í þeim vítahring að lifa um efni fram vegna þess að launin duga ekki til að borga afborganir eða standa undir því sem fólki finnst sjálfsagt að veita sér.“ Þegar fólk síðan fer að verða hrætt, sumir þegar þeir fá fyrstu til kynningu um vanskil, aðrir ekki fyrr en heim- ilið er komið á þriðja og síðasta uppboð, vill það fara að koma fjármálunum í betra horf. Þetta kallar Garðar skuldastig og á þessu stigi segir hann það fólk vera sem leitar til hanQ hans Mikilvægt er að hjón séu samstiga í viðleitni sinni til að ná tökum á vandanum. I upp- hafi námskeiðsins er því markvisst reynt að bæta sam- skiptamunstur hjónanna. „Það er oft mjög erfitt fyrir fólk að nálgast hvort annað þegar ræða þarf fjármál og yfirleitt óttast það viðbrögð hins aðilans. Ég byrja því á að tala vítt og breitt um þessi mál og útskýri fyrir fólki hvað það er sem við erum að gera og að finna þurfi leið til að ð það geti rætt málin án þess að öðrum hvorum aðilanum finnist að á sinn hlut sé gengið. Sú aðferð sem mér hefur fundist gef- ast best er að biðja fólk um að skrifa hvort öðru ástarbréf þar sem það ræðir hlutina. í bréfi ertu annars vegar að segja hvernig þér líður en um leið ertu að leggja hlutina niður fyrir þér. Síðan er skipst á bréfum og þau rædd í um það bil tíu mínútur, ekki lengur, svo fólk taki ekki að horfa um of á smá- atriðin. Þetta hefur gefið mjög góða raun því sá sem les bréf er einhver besti hlustandi sem hægt er að hugsa sér.“ Verstu gryfjurnar eru að mati Garðars allt það sem gerir fólki kleift að eyða um efni fram. Hann bendir þó einnig á að allir smáu hlutirnir, sem kosta ekki nema tvö eða fjögur hundruð krónur, geti oft leikið heimilisbókhaldið illa. Það fyrsta sem hann ráðleggur fólki er að borga niður ávísana- og greiðslukortareikninga þannig að það geti byrjað að standa í skilum með afborganir og jafnvel farið að borga niður skulda- halann. Margir mikla þetta fyrir sér en með því að áætla ákveðna upphæð í byrjun mánaðar til að lifa af og semja um raunhæfa leið við lánardrottna til að borga skuldir og afborg- anir er það hægt. „Flestir sem leita til mín sjá ekki fram á að þeir getir minnkað neitt við sig. Þegar síðan á hólminn er komið og fólk hefur aðeins vissa upphæð til að lifa af þá verð- ur það að láta hana nægja og einhvern veginn hefst það alltaf. Ef hins vegar greiðslukortið liggur uppi í skáp er freistingin mikil að grípa til þess þegar pyngjan er farin að léttast í lok mánaðarins. Láti fólk það eftir sér er hætt við að allt kerfið fari í handaskolum á ný.“ Markmiðið er ekki aðeins að auka við tekjurnar heldur að ráða fram úr málum þannig að eyðsla og útgjöld haldist í hendur. Þegar því er náð er komið á jafn- vægi, eins og Garðar kallar fjórða þroskaskeiðið. Flestum reynist nógu erfitt að halda í horfinu eftir að slíku jafnvægi í heimilisbúskapnum er náð. Margir taka víxlspor öðru hverju eins og að skella sér í sólarlandaferð án þess að eiga fyrir henni en hafi þeir náð tökum á fjármálunum ættu þeir að geta unnið sig út úr skuldunum á nokkrum mánuðum. Þrjú efstu stigin nefnir Garðar áhættu, ástríðu og velmegun. Á þeim stigum hefur fólki tekist að safna fé sem það þarf ekki að nota til daglegrar neyslu. Flestum reynist erfitt að leggja fyrir því auðveldara er að eyða peningum en afla þeirra. Grétar gefur þeim sem vilja reyna að safna inn á bók það ráð að borga inn á reikninginn í byij- un mánaðar líkt og ef um afborgun af láni væri að ræða en hugsa ekki sem svo að verði eitthvað eftir í lok mánaðarins þá skuli það leggjast inn á bók. Staðreyndin er að við eyðum því sem við höfum til ráð- stöfunar þannig að sjaldn- ast verður nokkuð eftir.D Það er ekki eingöngu lágtekjufólk sem leitar til Garðars vegna þess að það ræður ekki við heimilisbókhaldið. 26 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.