Heimsmynd - 01.11.1991, Page 42
KARLMENN OG KYNÞOKKI - Hvað gerir það að verkum að sumir karlmenn geta fengið hjörtu
Klúrir
vœmnir
klárir,
eða
eru þetta
Hvað er
Útlit, gáfur, peningar, vöðvar og völd, allt
einskis virði nema annað og meira komi til.
Kynþokki er nokkuð sem sumum karlmönnum er
gefið en öðrum ekki. Kynþokki er eftirsóknarverð-
ur og þeir eru ófáir karlmennirnir sem hafa brotið
heilann um hvað geri það að verkum að konur lað-
ast að ákveðnum mönnum en öðrum alls ekki.
„Some guys have all the luck, some guys have all the brakes, “
syngur Rod Stewart og margir hafa tekið undir með honum.
Það er alls ekki jafn auðvelt og margir vilja vera láta að
útskýra hvað felst í kynþokka. Engu að síður er kynþokki
áþreifanleg staðreynd og afskaplega verðmætur eiginleiki sé
rétt með hann farið. Það getur verið eitthvað í augnaráðinu,
röddinni, því hvernig karlmaður ber sig, stendur, situr, hvern-
ig hann horfir á konu, talar og brosir til hennar. Stundum fer
þetta allt saman, stundum aðeins eitt, tvennt eða þrennt, en
staðreyndin er eftir sem áður sú að sumir karlmenn eru kyn-
þokkafullir en aðrir ekki. Þeir sem falla í síðari hópinn virðast
lítið geta gert til að breyta þeirri staðreynd á sama hátt og þeir
kynþokkafullu eru og verða kynþokkafullir.
Kynþokki umlykur menn líkt og ára. Athygli kvenna dregst
ósjálfrátt að þeim hvar sem þeir koma, í Hagkaupum, Lands-
bankanum, í fiskbúðinni og á barnum. Alls staðar taka konur
eftir þeim. Þetta eru mennirnir, andlitin, sem ekki gleymast,
nöfn þeirra koma ótrúlega oft upp í samræðum kvenna, hvort
sem er í vinnunni eða saumaklúbbnum. Eitthvað í fari þeirra
vekur áhuga og forvitni, löngun til að kynnast manninum nán-
ar. Þessir menn þurfa ekki nauðsynlega að vera sykursætir,
fullkomnir í vextinum eða klæddir samkvæmt nýjustu tísku,
þótt það spilli vissulega ekki fyrir og sé yfirleitt mikilvægur
þáttur kynþokkans. Galdurinn felst fyrst og fremst í því að
kunna að gefa umhverfi sínu örlítið undir fótinn, daðra við
það. Það er einhver dulúð sem býr að baki hreyfingunum og
augnaráðinu sem rafmagnar andrúmsloftið og gefur til kynna
að undir yfirborðinu ólgi rauðglóandi eldhaf. Konur sækjast
eftir návist við þessa menn, ekki eingöngu í þeirri von að kló-
festa þá líkt og svo margir telja heldur er ástæðan í raun sú að
návist þeirra gefur konunni staðfestingu á eigin kynþokka, að
hún sé aðlaðandi. Kynþokki byggist á samspili karls og konu.
Kynþokkafullur maður gefur umhverfinu ákveðin merki um
reisn, sjálfsöryggi og lífshamingju. Umhverfið, sem í þessu til-
felli væri konan, sér og nemur merkin og hrífst af viðkomandi.
Hann fær til baka jákvæð skilaboð aðdáunar og eftirtektar, og
við það styrkist sjálfsímynd hans og sjálfstraust. Það er hárfín
lína milli þess að kunna að beita kynþokka sér til framdráttar í
samskiptum við hitt kynið og þess að vera beinlínis ágengur,
reyna við konuna. Kynþokki er eins og hálfkveðin vísa, gefur
hugmyndafluginu byr undir báða vængi án þess að afhjúpa
neitt. Þeir sem kunna listina spila út þeim trompum sem þeir
hafa án þess að skjóta yfir markið. Ung reykvísk kona í
áhrifastöðu lét þau orð falla á dögunum að hún nýtti sér kyn-
þokkann óspart þegar hún þyrfti að semja við karlmenn í við-
skiptaheiminum. Arangurinn léti ekki á sér standa, viðræð-
urnar yrðu persónulegri og í alla staði ánægjulegri. Að beita
kynþokka er ekki það sama og að reyna við konu. Þarna fara
margir karlmenn flatt. Þeir vilja ganga í augu kvenna en
kunna ekki að feta réttu leiðina. Þótt ekki séu allir karlmenn
fæddir með þetta sjötta skilningarvit, lærist sumum þeirra að
beita því með árunum um leið og sjálfsöryggi þeirra vex. Við
það virðist kynþokkinn smám saman einnig færast yfir. Sá
sem einu sinni hefur náð tökum á þeirri list sem beiting kyn-
þokka er tapar þeirri kunnáttu seint.
Hvað sem öðru líður verður því ekki neitað að gott útlit
ræður hvað mestu um hvort karlmaður telst kynþokkafullur
eða ekki. Mikið hefur verið um það rætt hversu laglegt ís-
lenskt kvenfólk er en oft vill gleymast að geta þess að íslenskir
42 HEIMSMYND
eftir LAUFEYJU ELÍSABETU LÖVE