Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 53
KARLMENN OG KYNÞOKKI - Heiðar Jónsson snyrtir tjáir sig um íslenska karlmanninn út
frá huglægu mati - og þeim upplýsingum sem hann hefur viðað að sér í starfi sínu með konum.
Myndarlegir,
karlmannlegir
rolegir sterklegir
en hvað skortir
3
Fáir hafa kynnst konum eins náið í gegnum starf sitt og
Heiðar Jónsson snyrtir. I nær tuttugu ár hefur hann leiðbeint
konum í tengslum við allskyns námskeið, uppfrætt þær
um útlit þeirra, framkomu, fas og klæðaburð. Hann
hefur brýnt fyrir þeim sjálfsöryggi, leitt þær inn á
nýjar brautir sjálfstúlkunar, umgengist ráð-
herrafrúr og bankameyjar, tískudömur, feg-
urðardísir og konur á framabraut sem vinkon-
ur - lagt þeim lífsreglurnar og ljáð þeim eyra
þegar vandi steðjar að. í þessum samskiptum
hefur hann öðlast innsýn í líf íslensku konunn-
ar og komist að ýmsu í sambandi við viðhorf
hennar til hins kynsins.
Heiðar Jónsson er nú 43 ára gamall. Hann
rekur eigið fyrirtæki þar sem hann ráðleggur
fólki af báðum kynjum hvernig betrumbæta
megi útlitið og framkomuna svo lífið verði auð-
veldara og ánægjulegra. Heiðar hefur sætt for-
dómum í gegnum tíðina og það er ekki fyrr en
undanfarin ár að þjóðin virðist hafa tekið hann í
fulla sátt, sem er ef til vill vísbending
breytta siði og breytta tíma. Sem yngri maður
var hann lagður í einelti sakir útlits síns
þess að hann hafði áhuga á fegurð og snyrt-
ingu sem þótti sérvettvangur kvenna.
Hann fékk yfir sig háðsglósur um að
hann væri hommi og stóð þær ætíð
sér, rólega og án nokkurra yfirlýsinga. Hann og kona hans
Bjarkey Magnúsdóttir eiga þrjú börn og búa í lítilli íbúð í
Breiðholti. Nú um jólin er væntanleg bók frá Iðunni um líf og
störf Heiðars Jónssonar og vekur hún án efa forvitni margra.
Heiðar hefur margoft tjáð sig hispurslaust um íslenskar
konur, útlit þeirra og klæðaburð en hér á eftir fjallar hann um
íslenska karlmanninn, útlit hans, klæðaburð, framkomu og
kynþokka. Heiðar byggir þessi viðhorf sín bæði á eigin hug-
lægu mati og einnig á þeim upplýsingum sem hann hefur
sankað að sér í samskiptum við ótal íslenskar konur en
þær skipta tugum, sem hafa trúað honum fyrir sínum
hjartans málum.
Þá hafa stöðugt fleiri karlar bæst í hóp þeirra sem
leita ráða hjá Heiðari Jónssyni og hann segir að þar
séu bæði lögmenn, forstjórar, menn úr fjármála- og
viðskiptalífi, þjónustustörfum auk bænda og sjó-
manna.
Heiðar fullyrðir að sjálfsímynd karlmanna hafi
breyst mjög í kjölfar opnara samfélags. Karl-
menn hiki ekkert síður við að koma fram opin-
berlega sem kynverur en konur, sem löngum
sættu fordómum fyrir slíkt. Algengt sé orðið að sjá
hálfnakta karlmenn í tímaritaauglýsingum fyrir
tísku- og snyrtivöruframleiðendur enda eru karl-
menn í æ ríkara mæli að hasla sér völl í störfum
tengdu útliti.
HEIMSMYND 53