Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 77

Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 77
því að hann var svo fyndinn og skrítinn. Þegar tilkynnt var um ráðningu Heimis var hlegið á fréttastofu Ríkisútvarpsins, meira var þó hlegið á frétta- stofu Sjónvarpsins og hæst hlógu fréttamenn Stöðvar 2 - (og hlógu líka lengst). Ég var staddur á skrifstofu dagblaðs hér í borginni þegar kallað var yfir salinn: Markús Örn Antonsson verður næsti borgarstjóri. . . Þá var hlegið vel og lengi. Sjálfstæðismenn eru að verða brandarakarlar í mannaráðningum. Þeir koma alltaf með óvænt útspil, enda formaður flokksins gefið lín- una og hann er frægur spaug- ari. Myllan sem leikin var með nýja útvarpsstjórann byrjaði auðvitað á landsfundinum. Þá byrjaði slagurinn. Geir Haarde vann með Davíð, konan hans er Inga Jóna Þórðardóttir sem var formaður útvarpsráðs, og Geir Haarde tók við for- mennsku flokksins af Ólafi G. Einarssyni. Yfirmaður hennar var menntamálaráð- herrann Ólafur G. Einars- son, stuðningsmaður Þor- steins Pálssonar, sem sagði að framboð Davíðs væri tímaskekkja. Og því var frúnni fórnað fyrir prest, sem á vini sem sögðu honum að sækja um embættið, það vantaði virðulegan mann til að vera útvarpsstjóri, eins og þá Vilhjálm heitinn og Andr- és Björnsson, en þeir voru vitrir og spakir. Þannig er hann Heimir, sögðu þeir, getur skrifað bréf til útvarps- réttarnefndar, íslenskrar málnefndar og fjárveitinga- nefndar á forn-íslensku og ávarpað þjóðina á gamlárs- kvöld. Heimir getur veifað stuðlum og höfuðstöfum, biblíuversum og vitnað í „gömlu konuna og skáldið". Sennilega önduðu starfs- menn Ríkisútvarpsins léttar og tókust í hendur, því nú gátu þeir haldið áfram að stjórna sjálfir, því sem þeir vildu stjórna - eins og þeir höfðu alltaf gert. Sumir segja að sjálfstæðis- mönnum hafi þótt Inga Jóna sem formaður útvarpsráðs breytast með tímanum í kerf- iskellingu og möppudýr ríkis- ins. Hún sat eins og aftur- ,JÞvífór hún ekki og heimsótd alla útuarps- ráðs- menninaV‘ haldssamt íhald og passaði það sem ríkið átti - ekkert frjálsræðisfjölmiðlasam- keppniskjaftæði. Þar var ekki frjálshyggjan, eða opin sam- keppni. Og þar með átti hún ekki möguleika. Varðhundurinn dillaði ekki rófunni í rétta átt og gelti á vitlausum stöðum. Þá var nú presturinn betri. Skemmtidagskrá Sjón- varpsins hélt áfram: And- stutt kurteisisviðtöl og yfir- drifin tilbúin glaðværð. Svo kom óvænt söngatriði, afar frumlegt. Sigfús Halldórsson tón- skáld hallaði sér aftur á bak í risastórum svefn-stól. Hann var afvelta í leðurstólnum og gat ekki hreyft sig eða litið til hægri eða vinstri. Viðtalið var gleðisnautt og Fúsi byrsti sig og gaf yfirlýsingar um eig- ið ágæti og það vottaði ekki fyrir brosi. Honum leiddist, eins og mér. Sigfús spilaði síðan lag eftir sjálfan sig og söngkona sem misst hafði 20 kíló í megrun, reyndist líka hafa misst söngröddina. Teið mitt var orðið kalt og ég stóð upp úr stólnum og hækkaði í sjónvarpinu. Ég fór og straujaði hvíta skyrtu, burstaði skóna mína, málaði forstofuna, tók til í ísskápn- um, umpottaði tvö blóm, þvoði leikfimifötin mín, skrifaði bréf, gerði 30 arm- beygjur, borðaði harðfisk og stangaði úr tönnunum - og á meðan hlustaði ég á Sjón- varpið í afmælisskapi og hugsaði áfram. . . Þrátt fyrir að ráðning framkvæmdastjóra Sjón- varpsins á sínum tíma hafi verið furðuleg þá hefur Pétur Guðfinnsson ekki keyrt sjón- varpið upp í grýtta fjöru, en hann hefur heldur ekki flogið því svo hátt að það bæri við himin. Þetta hefur yfirleitt verið lágflug. Þó ekki alltaf. Sjónvarpið hefur í 25 ár oftast verið rekið í kyrrþey, af háttvísi og prúðmennsku. Þetta hefur þó verið stofnun sem bylti þjóðlífinu á ýmsa vegu, m.a. með því að eyði- leggja allt félagslíf um tíma. En sjónvarpið hefur átt sínar stóru stundir - og þær gleymdust flestar í dagskrá afmælisdagsins. Dagskráin einkenndist af þægilegum strokum um vanga og enni - notalegu rabbi í óþægilegum leðursófum. Hvar var til dæmis myndin Fiskur undir steini sem hrærði upp í þjóðlífinu og kveikti nýjar umræður um menningu og útkjálka- mennsku. Af hverju var ekk- ert minnst á Blóðrautt sólar- lag sem var tilefni blaðaskrifa og æsings? Ekki sá ég minnst á eitt stærsta verkefni Ríkis- sjónvarpsins í norrænni sam- vinnu: Brekkukotsannál, eða fyrstu litkvikmyndina um Lénharð fógeta, eða stór- verkefnið Silfurtunglið . . . og listinn er langur. Ég var viss um að ég fengi að sjá sýnishorn úr mörgum áramótaskaupum, eða úr Maður er nefndur eða þátt- unum hans Jónasar R. - eða úr Kvöldstund í sjónvarpssal. En það kom ekki, sennilega of fyndið fyrir afmælisdag- skrá. Höfundar þessarar dag- skrár voru líka seinir af stað. Andrés Indriðason sagði í viðtali að hann hefði verið í mánuð að undirbúa þessa löngu dagskrá! Þá brostu nú margir. - Þar sannaðist það sem gamall starfsmaður Sjónvarpsins sagði: Jólin koma ráðamönn- um Sjónvarpsins alltaf á óvart. - Og það gerði afmæl- ið líka. Það bara kom upp á dagatalinu og enginn hafði munað eftir því. Andrés Indriðason og Bjarni Vestmann unnu að þessari dagskrá svo úr varð lapþunn svæfandi löng kvöldstund. Tekin var sú stefna að leiða þetta áfram með viðtölum. Það er svo gott að teygja tímann með því að spyrja og láta einhvern svara. (Góð spurning: Svona að lokum. Er eitthvað sem þér er sérstaklega minnisstætt frá þessum árum?) Afmælisdagskrá Sjónvarps- ins átti að segja frá þeim áhrifum sem Sjónvarpið hafði á íslenska leikritun og minnast til dæmis á Jón Þór- arinsson tónskáld, sem lét mynda fjöldann allan af merkilegum verkum, sýndi af sér þor og kjark. Sýna átti brot úr sem flestum verkum, gefa svipmynd af látnum leikurum og þróun upptöku- tækninnar. Jón Þórarinsson framhald á bls.97 HEIMSMYND 77 HEIMSM918-34
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.