Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 91
framvegis. Hann var Framsóknarmaður
framan af og mikill fylgismaður Tryggva
Þórhallssonar. Þegar Sveinn Olafsson í
Firði hætti þingmennsku 1933 mun
Sveinn hafa talið það líklegt að hann
yrði valinn sem eftirmaður hans. En
annað kom í ljós. Ungur skattstjóri í
Reykjavík varð fyrir valinu. Hann hét
Eysteinn Jónsson. Mun Sveini hafa sárn-
að þetta mjög og það var meðal annars
af þeim orsökum sjálfgefið fyrir hann að
fylgja Tryggva Þórhallssyni í Bænda-
flokkinn þegar hann var stofnaður. Var
hann í framboði fyrir Bændaflokkinn
1934 og 1937, en náði ekki kjöri enda við
ramman reip að draga þar sem Fram-
sóknarmenn voru annars vegar. Sveinn
var álitinn hættulegur maður og Jónas
frá Hriflu, formaður Framsóknarflokks-
ins, réðst á hann hvað eftir annað í Tím-
anum eins og honum var einum lagið.
Voru það mjög persónulegar árásir sem
Fanney, kona Sveins, fór jafnvel ekki
varhluta af. Þegar Bændaflokkurinn
lagði upp laupana hafði Sveinn því ekki
skap í sér til að ganga aftur til liðs við
Framsóknarflokkinn - og Jónas frá
Hriflu - og gekk í Sjálfstæðisflokkinn.
Hann var síðan frambjóðandi hans í
kjördæminu, en átti enga möguleika að
ná kjöri vegna þess hve Framsóknar-
mennirnir voru sterkir. Við kjördæma-
breytinguna 1959 áttu Sjálfstæðismenn
loks möguleika á einum þingmanni í
sameinuðu Austurlandskjördæmi og
hugði Sveinn á efsta sætið. Urðu miklar
deilur því að Einar ríki Sigurðsson í
Vestmannaeyjum, sem hafði verið í
framboði í Norðursýslunni, vildi líka
efsta sætið. Að lokum greip flokksforyst-
an í Reykjavík inn í þessar deilur og
þriðji maður var valinn. Þetta gat Sveinn
ekki sætt sig við. Hann var of stórlátur.
Hann lagði af öll opinber afskipti af
stjórnmálum og var dálítið kalinn á
hjarta eftir.
STÓRBÚIÐ OG HÓTELIÐ
Árið 1955 stofnaði Sveinn félagsbú
með tveimur sonum sínum, Jóni Agli og
Ingimar, og hófu þeir þá meðal annars
akuryrkju og síðar svínarækt. Akuryrkj-
an hófst 1956 og var það brautryðjenda-
verk á Héraði. Sveinn og synir hans
komu sér meðal annars upp kornbindi-
vél og afkastamikilli sláttuþreskivél sem
skilaði korninu sekkjuðu um leið og sleg-
ið var. Mest uppskera var 1961 eða 700
tunnur af byggi. Síðan lagðist þessi korn-
yrkja niður vegna kólnandi veðráttu. Eg-
ilsstaðabúið var ávallt í fremstu röð og
teknar þar upp ýmsar nýjungar í búskap
sem hvergi höfðu tíðkast áður hér á
landi. Má þar nefna fyrsta saxblásarann
á landinu 1953 og fyrsta rörmjaltakerfið
1962. Þá er búið annálað fyrir snyrti-
mennsku svo að unun er að koma þang-
að í heimsókn. Þar voru árið 1981 56
mjólkandi kýr, um 200 holdanaut, 35
kálfar, um 225 fjár og 7 gyltur. Árlega
var þá slátrað um 100 grísum.
Sveinn var kvæntur Sigríði Fanneyju
Jónsdóttur og mæddi gistihúsreksturinn
á henni á árunum 1920 til 1970. Hótelið
er í gömlum sveitastíl. Gestirnir sátu til
borðs í stofum heimilisins og nutu menn-
ingarlegra samræðna við húsráðendur.
Fanney tók einnig mjög þátt í félags-
málastörfum í héraðinu, var meðal ann-
ars formaður Sambands austfirskra
kvenna í mörg ár.
Þú heldur það hátíðlegt á Hótel Loftíeiðum
Brúðkaup, brúðkaupsnótt, stórafmceli, brúðkaups-
afmœli, merkisdagar innan fjölskyldunnar. Pað er
sama hvert tilefnið er. Á Hótel Loftleiðum leggjum við
okkur öll fram til þess að gera stóru stundimar í lífi
þínu ógleymanlegar. Aðstaða til hvers konar veislu-
halda, fyrsta flokks veitingar og góð þjónusta.
Pegar stendur eitthvað til hjá þér skaltu hafa samband
strax við okkur hjá Hótel Loftleiðum.
FLUGLEIÐIR
rV11 fi' [ n ri' m 1 ri' [ n
ilfilj l J i' I _j_li _ 11 _ 11
Reykjavíkurflugvelli, sími 91-22322
HEIMSMYND 91