Heimsmynd - 01.12.1993, Page 18

Heimsmynd - 01.12.1993, Page 18
Leikhúslif Baltasar Kormákur og Sólveig Arnardóttir leika veigamikil hlutverk í leikritunum Mávinum og Evu Lúnu sem Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið frumsýna milli jóla og nýárs. Þau hittust yfir kaffi og spjölluðu um leikhúslífið. SA Hvernig á að byrja svona lagað, eigum við að lýsa hvort öðru? BKJá, af hverju ekki. Sólveig er klædd í bláar gallabuxur og svarta rúllukragapeysu. Hún er með rautt hár, bláeygð ... SA Okei, ókei. Tölum frekar um leikhúsið. Segðu mér frá því sem þú ert að gera. BK Eg er að æfa í Mávinum eftir Tsjékhof þessa dagana undir stjórn Iitháíska leikstjórans Rimas Tuminas og sú vinna er svoldið ný fýrir mér því hann beitir öðrum aðferðum en ég hef kynnst áður. Rimas kryfur verkið niður í minnstu smáatriði og flettir ofan af öllum hugmyndum og klisjum sem maður hafði um það og karakterinn. Sú mynd sem ég hef til dæmis haft af mínum karakter er að hann sé rómantískur og inn í sig, en eins og við erum búin að móta hann í dag er hann agressívur og létt geðveikur. Svo gerum við kannski eitthvað annað með hann á morgun. Segðu mér frá því sem þú ert að vinna í. SA Eva Luna er leikrit sem er unnið upp úr skáldsögu en er samt ólíkt henni á margan hátt. Þeir sem hafa lesið bókina vita að sagan er mjög margslungin. Mörkin milli raunveruleika og fantasíu eru óljós og það er flakkað mjög frjálslega þar á milli. BK Milli draums og veruleika þá? SA Nei, það er ekki beint hægt að kalla þennan heim draum. Það má frekar segja að þetta sé óraunverulegur heimur þar sem draugar og furðuatburðir eru hluti af hinu daglega lífi. Mér finnst mitt hlutverk mjög spennandi en um leið mjög erfitt. BK Er mikil breidd í þinni persónu? Það er engin hætta á að hún verði eintóna? SA Það eru mjög miklar tilfinningasveiflur í Evu Lunu og hún á ekki að geta verið eintóna en... BK Þér verður sem sagt kennt um ef það gerist? SA Já, ætli ég verði þá ekki að taka það á mig. BK Hvernig vinnið þið? SA Það er ofsalega gaman að vinna með Kjartani. Hann er svo kraftmikill og drífandi. Þegar hann fær til dæmis einhverjar fínar hugmyndir á æfingum þá stoppar hann allt í einu og kallar upp yfir sig „Bíðið, bíðið, við skulum aðeins ...” og breytir svo kannski textanum eða atriðinu. Við höfum líka sest niður tvö þrjú, sem erum saman í atriði, og rætt það fram og aftur og spunnið mjög mikið. BK Eg hef aldrei unnið með Kjartani en mér heyrist hann vera mjög ólíkur leikstjóranum sem ég er að vinna með. Rimas hefur þá kenningu að leikarinn eigi að hvílast á sviðinu. Hann á ekki að vera þreyttur eftir sýninguna heldur á hann að langa til að fara heim og elskast með konunni sinni. SA En huggulegur leikstjóri. BK Já, finnst þér það ekki. En hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingum, vertu hreinskilin? SA Mér finnst leiðinlegast að spinna, það er líka af því að ég er svo léleg í því. Hvað finnst þér? BK M ér finnst sírennsli á leikritum á æfingatímanum ofboðslega leiðinlegt. Þegar það er leikið aftur og aftur án þess að neitt sé unnið með rennslið. Og svo finnst mér rosalega leiðinlegt að fara í búninginn minn, sérstaklega ef það eru margir búningar í leikritinu. SA Mér finnst ekkert leiðinlegt að fara í búningana. Ég held að það séu tiu búningar hjá mér í Evu Lunu ... BK Pjáturdrós. Búningar eru leiðinlegir en mér finnst aftur á móti fínt að fara í smink og SA Sminkaru þig ekki sjálfur letinginn þinn? BK Nei, nei okkur var ekki kennt það í skólanum og þetta er líka ágætis tækifæri til að láta stjana aðeins við sig. En snúum okkur að öðru. Hvernig tókstu öllum látunum sem urðu í vor yfir því að þú ómenntuð leikkonan fékkst aðalhlutverkið í Evu Lunu? SA Þótt ég vissi að þessu væri kannski ekkert beint gegn mér sem slíkri, tók ég þessu mjög persónulega. Það var aðallega leiðinlegt hvernig umræðan blossaði upp áður en hægt var að kynna þetta í Leikarafélaginu. En þetta er búið núna og almennt finn ég bara fýrir velvild í minn garð. Þú ættir nú að kannast við að vera umtalaður. Hvernig fer það í þig að vita að þú ert á milli tannanna á einhverju fólki sem þú þekkir ekkert? BK Það getur verið ofboðslega þreytandi. Það er voðalega erfitt að eiga allt í einu að fara hegða sér öðruvísi en maður hefur alltaf gert, bara vegna þess að hálf þjóðin er að fýlgjast með manni, tilbúin að velta sér uppúr einhverju sem manni gæti orðið á. En þetta er bara eitthvað sem getur fylgt þessu starfi. SA Það var viðtal við þig í DV um daginn þar sem þú sagðist vera hundleiður á þeirri ímynd að þú værir þessi sæti strákur, ungur leikari á uppleið og bla bla bla. En svo birtist voða sæt mynd af þér á forsíðu með fyrirsögninni Sjarmörinn i leikhúsinu. BK Blaðamenn hafa haft þessa tilhneigingu að slá mér svona upp og ég hef lítið geta ráðið við það. Ég sagði einmitt í þessu viðtali að ég hefði engan áhuga á þessari kyntákns- ímynd og bað um að vera ekki kynntur á þann hátt. En svo var mér skellt á forsíðuna með þessari fyrirsögn. Fólki er mjög gjarnt að hengja ákveðinn karakter á mann burtséð frá því hvernig maður er sjálfur. En hvað ætlar þú svo að gera, Solla, á að læra leiklistina í skóla? SA Já, ég ætla að reyna að komast út að læra. Ég er mjög spennt fyrir Berlín þessa dagana. BK Mér líst vel á það. En eigum við ekki að fara að segja þetta gott. Ég óska þér bara góðs gengis í framtíðinni. SA Sömuleiðis. BK Og ég vona að það gangi vel hjá ykkur upp í Borgarleikhúsi, en ekki þó betur en hjá okkur... (hlæjandi)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.