Heimsmynd - 01.12.1993, Síða 32
karlmennskuhugmyndir sínar? Hvernig
upplifa þeir það að vera karlar? Á sama
hátt held ég að við þurfum að átta
okkur betur á því hvernig konur verða
konur.“-
Það er ekki langt síðan að
rannsóknir á kynferðislegu ofbeldi
hófust. Nægja þær til að segja til um
það hvort almenn efnahagskreppa
hafi áhrif á tíðni slíkra glæpa?
„Nei, það er of stutt síðan að farið var
að leggja stund á þessar rannsóknir.
Sem dæmi má nefna að í bandarískri
kennslubók í geðlæknisfræði frá 1979
er staðhæft að sifjaspell séu mjög
sjaldgæf. Tíðni þeirra er talin vera einn
á móti milljón. Nú hafa rannsóknir sýnt
að um 20 prósent barna verða fyrir
sifjaspellum og fjórða hvert stúlkubarn
verði fyrir kynferðislegri áreitni eða
kynferðislegu ofbeldi áður en það
verður sextán ára.“
- Getur verið að börn sem njóta
góðs atlætis í æsku séu færari um að
verjast afleiðingum kynferðis-legs
ofbeldis en þau sem verr er búið að?
„Jú, ég held að það ráðist mikið af
uppeldisaðstæðum og bakgrunni hvers
og eins hvernig viðkomandi tekst að
vinna úr slíku. Ef allt er börnum
andstætt ofan á þetta, þá er þau að
sjálfsögðu verr í stakk búinn til að
takast á við hlutina. Ef við tökum sem
dæmi 4-5 ára barn sem elst upp við
öryggi og ástúð og er misnotað af
einhverju skyldmenni utan heimilisins
til dæmis frænda, þá finnst mér líklegt
að þetta barn geti fyrr losað sig frá
þessurn ofbeldismanni en barn sem
hefur búið við öryggisleysi. En ef þetta
væri pabbinn í báðum tilvikum þá em
möguleikar barnanna ámóta litlir til að
reyna bjarga sér. Þarna eru
tilfinningatengslin miklu sterkari. Þetta
er jú pabbi og hann er inni á heimilinu.
Barnið kemst ekki hjá því að
umgangast hann daglega. En það getur
samt verið að barn sem býr við góðar
aðstæður eigi auðveldara með að
verjast tilfinningaáfallinu."
- Nú virðist langtímaatvinnuleysi
vera að verða staðreynd á íslandi.
Þá verður væntanlega til hópur
barna sem býr alla tíð við erfiðar
aðstæóur. Ef kynferðislegt ofbeldi
bætist þar ofan á, eiga þessi börn
sér þá nokkurrar viðreisnar von?
„Ég vil ekki líta svo á að þau eigi sér
ekki viðreisnar von. Ef maður hefur
lært eitthvað í þessu starfi sem ég hef
verið í, þá er það trn á manneskjuna.
Trú á möguleika manneskjunnar til
þess að ná tökum á lífinu jafnvel þó að
það séu hinar erfiðustu aðstæður sem
maður mætir.“
- Margir telja skipulagðar nauðganir
stríðandi fylkinga á Balkanskaga
eitthvað mesta áfall sem
siðmenningin hefur orðið fyrir á
síðustu áratugum. Maðurinn virðist
ekki bara verða að villidýri heldur
að einhverskonar skepnu sem
flestir héldu að heföi verið sögulegt
slys í nasismanum. Bendir þetta
ekki til þess að siðmenningin sé
bara skán?
„Freud hefði líklega samsinnt þessu.
Hann taldi að siðmenningin væri bara
örþunnt lag og undir niðri væri
maðurinn villidýr þar sem hvatirnar
væru allsráðandi og kynhvötin sterkust
og stjórnlausust. En varðandi stríðið í
fyrrverandi lýðveldi Júgóslavíu þá sýna
rannsóknir að nauðganir hafa frá því
sögur hófust verið notaðar skipulega í
styrjöldum til að brjóta niður sjálfs-
virðingu og andspyrnu þeirra sem verið
er að ráðast á. Svo það er ekki nýtt í
sjálfu sér að sigurvegarinn noti þetta
vopn til að brjóta niður mót-spyrnu og
þrek andstæðingsins. Þetta sýnir okkur
að því er ég tel að frumorsök þessa
kynferðislega ofbeldi er ekki óstjórnleg
kynhvöt heldur liggur meginorsökin í
misbeitingu valds. Kynferðislegt ofbeldi
veitir ofbeldismanninum tilfinningu fyrir
að vera alls ráðandi.“
- Erum við þá ekki bara eins og apar
sem taka hvern annan í rassinn til
aó sýna vald sitt?
„Það hafa nýlega verið gerðar mjög
skemmtilegar rannsóknir á samfélögum
apa. I þeim kom í ljós að þessi
hugmynd okkar er ekki á rökum reist.
Apar búa við mjög skipulagt samfélag
þar sem í gildi eru mjög ákveðin
„norm” og reglur. Og það hefur einmitt
verið bent á það, að hjá öpum leyfast
ekki svona hlutir eins og við erum að
tala um. Það leyfist ekki að nota barnið
sitt kynferðislega. Það eru mjög
ákveðnar reglur um kynferðisleg
samskipti í apahópum svo ekki hafa
menn þetta „eðli“ þaðan.“
- Staóa karla hefur óneitanlega
veikst á liðnum árum og áratugum.
H e i
Hæfar konur streyma út á
vinnumarkaðinn og ógna stöðu
þeirra í hvívetna. Er kynferóislegt
ofbeldi og áreitni ekki einfaldlega
leið til að brjóta niður keppi-
nautinn?
„Það eru margir sem halda því fram að
með auknu sjálfstæði og virkni kvenna
þá verði kynferðislegt ofbeldi
nærtækara fyrir karla til að halda því
sem þeir höfðu. Þetta er tilgáta. En ég
er bjartsýnismanneskja og trúi því
eiginlega ekki að karlmenn séu svo illa
staddir að þeir sjái ekki að það er líka
þeirra hagur að hlutskipti kvenna verði
betri.“
- Að lokum langar mig til að spyrja
þig um dóm sem féll nýlega í
héraði. Sextán ára stúlka var dæmd
í fimm ára fangelsi fyrir að ganga í
skrokk á jafnöldru sinni með mjög
alvarlegum afleiðingum. Þetta er
óneitanlega þungur dómur,
sérstaklega í ljósi þess hvað stúlkan
er ung og einnig í samanburði við
þá dóma þar sem fullorðnir
karlmenn hafa verið að fá mun
vægari dóma fyrir alls kyns ofbeldi
gagnvart konum. Eru þetta
innbyggðir fordómar gagnvart
konum í þjóðfélaginu sem við
byggjum?
„Mín skoðun er sú að það séu ákveðin
viðhorf í gangi í réttarkerfinu sem eru
andstæð hagsmunum kvenna og barna.
Orð þeirra og frásagnir eru almennt
ekki teknar alvarlega, þess vegna lenda
mörg kærumál ofan í skúffu án þess að
þeim sé lokið. Það er greinilegt að
dómarar álíta mikla áverka nauðsynlega
sem sönnun fyrir ofbeldi. Þess vegna er
þessi mikli munur á dómum fyrir
kynferðislegt ofbeldi og líkamlegt
ofbeldi. Dómar fyrir kynferðislegt
ofbeldi eru þar af leiðandi mjög vægir.
Ef það hefði verið strákur en ekki
stelpa sem framdi verknaðinn býst ég
við dómurinn hefði orðið svipaður.
Þetta vakti hins vegar meiri athygli af
því að það var stúlka sem beitti
ofbeldinu en það er ekki algengt að
konur grípi til slíkra aðgerða. Mat mitt
er að dómurinn sé mjög þungur
sérstaklega í samanburði við það sem
kynferðisofbeldis-mennirnir fá. Nú það
er heldur ekki sama hvar líkamlegu
ofbeldi er beitt. Það hefur eftir því sem
ég best veit aðeins fallið einn dómur
þar sem sambýlismaður var dæmdur
fyrir að beita sambýliskonu sína
líkamlegu ofbeldi.“ ■
m s m y n d
3 2
Desember