Heimsmynd - 01.12.1993, Side 55
5 Halla komin á sviðið í gömlu
Iðnó.
Helga í hlutverki Höllu.
6 Helgi og Helga í hlutverkum
sínum í "Eftir konsertinn" eftir
Odd Björnsson, sem leikið var I
Þjóðleikhúsinu.
rökkva úti á Lækjargötunni og Helga
stendur á fætur og teygir úr sér. Það
hefur verið sagt að hún sjái lengra en
nef hennar nær. Eða er það bara
ofurnæmi listamanns?
„Ég trúi ekki á kukl. En draumar eru
draumar. Mig dreymir margt og ég
skynja sumt. Stundum er það vont og
veldur mér miklum óþægindum. Ég
hef alla tíð forðast miðilsfundi og allt
slíkt. En þetta var mér mjög erfitt þegar
ég var yngri. En ekki lengur. Maður
verður að velja og hafna. Góðar bænir
góðs fólk hjálpuðu mér mikið, þegar
mér fannst dimmt og ónotalegt í
kringum mig. Móðir mín var alltaf
mjög trúuð, en ég hef sjálf átt mínar
efastundir. Þó kannski ekki fleiri en
hver önnur sæmilega greind mann-
eskja.
Ég held að þetta ofurnæmi hafi vak-
nað í Skálholti. Þar var ég í sjö sumur
sem barn og unglingur. Það var í Skál-
holti, sumarið áður en Kamban var
myrtur, sem mig dreymdi hann. Ég
hafði aðeins einu sinni hitt hann og
horft í þessi djúpu, hlýju augu.
Mig dreymdi að ég var við pollinn,
þar sem vopnin voru þvegin til forna
og Hvítá rennur undir. Þá kom
Kamban til mín og sagðist þurfa að
fara yfir á vaðinu. „Komdu, frænka mín
með mér, ég veit þú ratar,“ sagði hann.
Þegar vatnið náði mér í brjóst sagði
jörðinni,
þegar maður
var lítill. Ég
minnist þessara sumra í
Skálholti sem eins sam-
fellds sólardags og öll
rómantíkin í kringum
staðinn og sögu hans var
engin smáfarangur út í
lífið.“
Helga lék hjá Leikfélagi
Reykjavíkur fram til ársins
1976 .
Hún hlaut ýmsar viður-
kenningar fyrir list sína,
hlaut Silfurlampann,
verðlaun leikgagnrýnenda,
árið 1968 fyrir Heddu
Gabler. Riddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu
hlaut hún árið 1986.
Og hún hefur brallað eitt
og annað, var varaform-
aður í skólanefnd Leik-
listarskólans í mörg ár, sat í
stjórn friðarsamtaka lista-
manna og var fyrsti
stjórnarformaður Hlað-
varpans.
„Ég er kvenréttindakona. Það er mitt
blóð. Ég varð fyrir því sem stelpa að
komast ekki í menntó af því að tveir
4 Fyrir túlkun sína á Heddu
Gahler hlaut Helga
Sifurlampann, viðurkenningu
fslenskra leikgagnrýnenda.
Myndina tók Oskar Gíslason.
hann. „Snúðu við, ég held áfram.“ Það
síðasta sem ég sá af honum, var að
hann veifaði mér af hinum bakkanum.
Jörundur Brynjólfsson alþingismaður
og bóndi hafði mig stundum sem
leiðsögukonu í Skálholti þegar ferða-
menn komu og ég fékk að lyfta hler-
unum yfir steinum biskupanna. Þetta
voru góðir tímar, alltaf sól og ég lék
mér við Gauk, frænda minn, son Jör-
undar, sem nú er Umboðsmaður Al-
þingis. Veistu af hverju flestum finnst
að það hafi alltaf verið gott veður
þegar þeir voru börn? Páll Bergþórsson
segir að það sé vegna þess að það er
svo miklu hlýrra
„þarna niðri“,
maður
var svo
miklu
n æ r
Heimsmynd
Desember
5 5