Heimsmynd - 01.12.1993, Síða 107
HEIMSMYND valdi ellefu lög af jafnmörgum plötum sem koma út fyrir þessi jól
og kannaði grip þeirra á nokkrum tónlistarmönnum.
Bubbi
Leiðin til San Diego af Lífið er Ijúft
Magnús Kj: Bubbi kominn í Brimkló og nú
er spurningin: Hvenær fer hann í HLH? Ég
hef gaman af þessari tónlist og hand-
bragöið er mjög gott. Bubbi þurfti að gera
tíu LP plötur til að fatta að það getur verið
gaman að nota raddir í einu og einu lagi.
Þetta er svona prýðis lúxusjeppa popp.
Ottó: Það er sorglegt hvað þetta selst.
Kiddi: Þetta væri fullkomið ef Bubbi hefði
fengið Kenny Rogers og Dolly Parton með
sér. Ég fíla þetta, það er eitthvað bölvað
kántrýgrín í mér þessa dagana.
Yrjur: Þetta er mjög Ijúft lag, það er sól yfir
því.
Björgvin: Lítið, þægilegt og gamaldags.
Ég fíla þetta ágætlega. Lagið minnir
svolítið á „Don't think twice is alright” eftir
Bob Dylan og það er stutt í Neil Young.
Þarna er ekki verið að finna upp hjólið og
væntanlega hefur það ekki verið ætlunin
hjá Ásbirni. Það er stutt í gamla kántrý
sándið þarna og það kann ég vel við.
Pís of keik
Do You Like That af Do It
Ottó: Það er flott að hafa læf trommur í
þessu og það liggur greinilega fagmannleg
vinna á bak við lagið, en það er samt
einhvern veginn frekar
dull. Það situr ekkert
eftir.
Kiddi: Alls ekki slæmt
lag, en full frasakennt
fyrir minn smekk. Fær
tvo plúsa fyrir saxa-
fóninn.
Magnús Kj: Þetta er
mjög gott tísku-
sýningapopp. Undirleikurinn gæti til dæmis
verið við Filodorosokkabuxur og ef Ingi-
björg væri að sýna sig og einhvern fatnað
myndi ég horfa á það. En ég er kominn á
þann aldur að ég nenni ekki að hlusta á
svona. Það er samt örugglega mjög
gaman að vera í svona hljómsveit.
Björgvin: Kröftugt og gott hjá Pís of keik.
Álitsgjafar
Yrjur
Margrét Sigurðardóttir og Kristbjörg K.
Sólmundardóttir, söngkonur í Yrju.
Magnús Kjartansson
hljómborðsleikari, söngvari og
lagahöfundur.
Ottó nashyrningur
söngvari og bassaleikari í Ottó og
nashyrningarnir
Magnús Jónsson
söngvari í Silfurtónum og leikari.
Björn Baldvinsson
söng í Bleiku Böstunum.
Kiddi kanína
umboðsmaður og
hljómplötuverslunareigandi
Björgvin Halldórsson
Hinn eini og sanni
Máni vex með hverju verkefni. Grípandi
taktur sem minnir á Lenny Kravits.
Lúbburnar batna sífellt, sem og allt
samplið. Smekklegt og MTV-legt.
Magnús J.: Flott byrjun en verður
flatneskjulegt þegar á líður, of mikið um
endurtekningar, tvær stjörnur.
Todmobile
Ég geri allt sem þú vilt af Spillt
Björgvin: Flott byrjun á laginu. Todmobile
geta verið nýstárleg og skemmtileg. Þau
eiga það stundum til að taka sig of hátíð-
lega, en ekki í þessu lagi. Gott og grípandi
viðlag og líklegt til
vinsælda. Todmobile
hefur sinn stíl og það
er mikilvægt í þessum
bransa.
Kiddi: Þetta er
voðalega pottþétt
hljómsveit en mér
finnst fullmikið jóla-
sánd í þessu lagi.
Magnús Kj: Ef ég væri tuttugu ára myndi
ég fíla Todmobile. Þegar þeim tekst vel
upp þá syngja þau og spila eins og þau
sem valdið hafa. Þau eru töff án þess að
fara útí Stjórnarlegt pjátur.
Ottó: Næsta lag.
Magnús J.: Kemur þægilega ekki á óvart.
Ágætis melódíu- uppbygging en máttlaus
viðlagskafli. Dæmigerð síðrómantík.
Björn: Leiðinleg popplumma. En Tod-
mobile er þéttasta tónleikaband landsins,
þetta eru allt eintómir snillingar á hljóð-
færin. Ef ég væri hljómplötuútgefandi
myndi ég reyna að selja þetta band út.
Páll Óskar
Hjálmtýsson
Partídýr af Stuö
Magnús J: Æðislegt, fjórar stjörnur af
fimm mögulegum, hefði fengið fullt hús ef
röddin væri ekki mixuð svona framarlega.
Barry White þarf að passa sig.
Yrjur: Þetta er svona lag sem maður
hlustar á með fótunum. Söngurinn hjá
Palla er aðeins of seiðandi og það vantar
örlítið meiri kraft í lagið.
Bakraddasöngkonurnar
smellpassa í þetta
hlutverk.
Magnús Kj: Nú eru
Rokklingarnir farnir að
raka sig. Þetta er líka
svona tískusýninga-
popp. Af hverju keypti
hann ekki undirspilið af
Gunna Þórðar af Þú og ég plötunum?
Hann hefði getað sett smá elektrónískt
slagverk yfir það og sungið. Það góða við
Palla sem söngvara er að hann syngur
áreynslulaust en verður stundum fyrir vikið
hálf máttlaus.
Nýdönsk
Kvikindi af Hunang
Magnús J.: Grípandi rytmi og gott lag, flott
hljómborðsóló í lokin. Blur- áhrifin eru
merkjanleg, gott hjá þér Bjössi, stela, ekki
stæla. Fimm stjörnur.
Ottó: Þetta er flott lag, gott töffara-grrúv,
enda Björn Jörundur töffari sem ekki
klikkar.
Björgvin: Gott gítarsánd en þetta er ekki
Heimsmynd
Desember
1 0 7