Heimsmynd - 01.12.1993, Page 31

Heimsmynd - 01.12.1993, Page 31
mræða um kyn- ferðisofbeldi, nauðganir, sifja- spell og kynferöis- lega áreitni hefur aukist mjög á liðnum árum. Kynferðisofbeldi er kynbundið. Það eru fyrst og fremst konur og börn sem verða fyrir því. Ofbeldistíðnin er geig- vænleg. Erlendar rann- sóknir benda til þess að íjórða hver stúlka og tólfti hver drengur verði fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku. En hverjir fremja slíkan verknað? Karlmenn í langflestum tilfellum. Ríkir, fátækir, ungir, gamlir, fallegir og ljótir. Því efur verið haldið fram í fullri alvöru að hver einasti karlmaður sé mögulegur nauðgari. Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars árið 1990 stofnuðu hópar kvenna Stígamót, en þangað geta konur og börn sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi leitað sér aðstoðar. Dr. Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi sem verið hafði kennslustjóri í félagsráðgjöf við Háskóla íslands frá 1981 hóf störf við Stigamót fyrir tveimur árum. „Þegar kvennaathvarfið opnar förum við að kynnast betur kjörum kvenna sem verða fyrir ofbeldi og kom þá í 1 jós að konur höfðu ekki eingöngu verið barðar af sambýlis- eða eigin- mönnum heldur höfðu sumar þeirra líka orðið fyrir nauðgunum og sifjaspellum. Þegar við í undir- búningshópunum fórum að ræða þetta kom í ljós að margar okkar höfðu orðið fyrir einhvers konar kynferðis- legu ofbeldi. Þetta voru bara hlutir sem var ekki talað um, þetta var algert „tabú“ að ræða.“ - En getur verið að konur sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku leiti í það ástand sem full- orðnar konur? Guðrún telur svo ekki vera. „Ég held að það sé mikill misskilningur. Það er engin sem vill búa við ofbeldi af neinu tagi. Það er ekkert sem fólk leitar eftir af því að það fái kikk út úr því. En það má náttúrulega segja að börn sem eru beitt kynferðislegu ofbeldi eru illa í stakk búin til að bera hönd fyrir höfuð sér og sjálfsmat og sjálfsmynd þeirra sem fullorðinna verður oft brotakennd og skert, þannig að sem fullorðnar konur eiga þær erfitt með að trúa því að þær eigi rétt á einhverju öðru og betra en svona meðferð. Stúlkur sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku eru oft illa hæfar til að takast á við erfiðleika í lífinu og til að setja mörk og segja“ „hingað og ekki lengra, þetta þoli ég ekki.“ - En er hægt að sjá eitthvað mynstur í kynferðislegu ofbeldi? Er þetta frekar á einum stað heldur en öðrum í þjóðfélaginu? „Nei, það er mjög merkilegt með kynferðislegt ofbeldi að þó að mikið hafi verið reynt til að flokka það eða finna eitthvað sem ofbeldismennirnir eiga sameiginlegt, þannig að hægt sé að segja fyrir um hverjir séu líklegri en aðrir til slíkra verka, þá hefur það ekki tekist. Ég hef lesið að rannsóknir erlendis sýni að í hópi þeirra sem hafa verið dæmdir fyrir kynferðislegt ofbeldi megi finna um 50 persónuleika- einkenni. Það þýðir að nánast er um þverskurð af mannkyninu að ræða.“ - Nú er oft sagt að hver einasti karlmaður sé mögulegur nauðgari. Er hægt aó fullyrða eitthvað svipað um karlmenn í sambandi við kynferðisofbeldi gagnvart börnum? „Ég get ekki og vil ekki hafa þá skoðun. Það væri óbærilegt að eiga syni, eiginmann, föður, afa og frændur og búa við þá hugsun að hver sem er af þeim gæti beitt kynferðislegu ofbeldi. Hinsvegar getur verið að við höfum ekki verið að leita að réttum hlutum þegar við höfum verið að reyna að átta okkur á af hverju sumir menn brjóta þessi bönn og skeyta svona lítið um líðan annarra sem ég hygg að mikill meirihluti karla virði. Líklega þurfum við að kanna betur hvernig karlar tileinki sér það að verða karlar. Hvernig tileinka karlar sér Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi: „Ríkir,fátœkir, ungir, gamlir,fallegir, Ijótir. Því hefur verið haldiðfram að hver einasti karlmaður sé mögulegur nauðgari. “ H e m s m y n d Desember 3 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.